Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 9
Jólahappdrætti Sjálfsbjargar
Dregið var 24. desember 2014
1. Nissan Leaf Nordic rafbifreið frá BL ehf. að verðmæti kr.
4.490.000,-
8680
2. - 21. iPhone 6 plus 128GB snjallsímar, hver að verðmæti kr.
164.990,-
343 1286 2669 3295 5168
10641 14222 17081 22273 22293
23625 25400 25501 25982 27243
27436 29178 29350 29563 29649
22. - 41. Eldsneytiskort frá Orkunni, hvert að verðmæti kr. 150.000,-
1001 2120 2800 2983 3245
12915 13539 14781 15215 18065
18185 18540 19782 21987 24215
25155 25466 26956 27687 29943
42. - 61. Gjafakort, hvert að verðmæti kr. 150.000,-
2185 2989 3828 4387 7591
9897 16555 17335 20328 21735
22134 23147 24212 24280 24710
26993 28097 29037 29590 29781
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra að Hátúni 12, Reykjavík,
sími 5500360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 12. janúar 2015.
Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu samtakanna sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra
þakkar landsmönnum veittan stuðning.
(b
irt
án
áb
yr
gð
ar
)
Vinningar og vinningsnúmer
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Lögreglustjórinn á höfuðborgar-
svæðinu birti í gær bráðabirgðatöl-
ur um fjölda helstu brota á árinu
sem er að líða. Þar kemur fram að
umferðaróhöppum þar sem öku-
maður var grunaður um akstur und-
ir áhrifum ávana og fíkniefna fjölg-
aði mjög á árinu, eða um 80 prósent.
Flest brotin áttu sér stað á fyrri
hluta ársins en fækkaði með hækk-
andi sól. Brotum vegna aksturs
undir áhrifum ávana- og fíkniefna
fjölgaði um 23 prósent á milli ára. Á
sama tíma fækkaði brotum vegna
ölvunar við akstur um sjö prósent
en í fyrsta sinn eru brot vegna akst-
ur undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna fleiri en ölvunarakstursbrot.
Alls lögðu lögregla og tollgæsla
hald á mesta magn maríhúana sem
tekið hefur verið hér á landi frá því
að skráningar hófust eða 55 kíló.
Hins vegar var lagt hald á töluvert
minna magn af amfetamíni og al-
sælu miðað við fyrri ár. Málum sem
tengjast innflutningi á fíkniefnum
fjölgaði um 40 prósent.
Ofbeldið eykst enn
Ofbeldisbrotum hefur fjölgað
töluvert síðastliðin ár og voru um
átta prósent fleiri árið 2014
miðað við árið 2013. Um 40 pró-
sent allra ofbeldisbrota áttu sér
stað í miðborg Reykjavíkur. Minni-
háttar líkamsárásum fjölgaði um
átta prósent og meiriháttar líkams-
árásum fjölgaði um sjö prósent milli
ára.
Rúmlega helmingur allra ofbeld-
isbrota átti sér stað að kvöld- eða
næturlagi um helgar.
Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði
hegningarlagabrotum um fjögur
prósent samanborið við árið 2013.
Að meðaltali var tilkynnt um tæp-
lega 21 hegningarlagabrot á dag.
Kynferðisbrotum fækkar hlut-
fallslega mest, eða um 40 prósent en
fjallað er nánar um ástæðu þess hér
til hliðar. Þjófnuðum fækkaði um
sex prósent en tilkynningum um
þjófnaði hefur stöðugt verið að
fækka síðan árið 2009. Þannig virð-
ist sem farsímaþjófar séu á und-
anhaldi því farsímaþjófnuðum fækk-
aði um 25 prósent.
Innbrotum fjölgaði hins vegar um
fjögur prósent á milli ára og fjölgaði
innbrotum í ökutæki þar mest eða
um 43 prósent.
Að meðaltali bárust lögreglunni
tæplega 20 tilkynningar um heim-
ilisofbeldi á mánuði á árinu. Til-
kynningum um heimilisofbeldi fjölg-
aði um 11 prósent á milli ára.
Fíkniefnaneysla
eykst í umferðinni
Ökutækjatjónum sem rekja má til fíkniefna fjölgaði um 80%
Morgunblaðið/Júlíus
Stoppað Umferðaróhöppum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna fjölgaði um 80
prósent á árinu. Í fyrsta sinn eru brot vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna fleiri en ölvunarakstursbrot.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Kjarnafæði-ekki
Norðlenska
Erla Magna Alexandersdóttir skrif-
aði í Velvakanda í gær að hamborg-
arhryggur sem hún keypti og
snæddi hefði verið frá Norðlenska.
Það er ekki rétt, hann var frá
Kjarnafæði. Hún biður þá hjá Norð-
lenska afsökunar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Útsölur í öllum helstu verslunum
eru nú handan við hornið en venja
er að þær hefjist í byrjun janúar. Í
Kringlunni og Smáralind hefjast
herlegheitin 2. janúar og verður
opið lengur af því tilefni eða til kl.
21. Útsölurnar standa svo út jan-
úarmánuð. Sumar verslanirnar
hafa þó tekið forskot á sæluna og
þegar hafið útsölur, kaupglöðum
landsmönnum til mikillar ánægju.
Janúarútsölurnar
á sínum stað
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á Facebook
Útsalan hefst
2. janúar
opið í dag kl. 10–12
GLEÐILEGT ÁR
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á
ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
ÚTSALAN HEFST 2. JANÚAR kl. 13
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ritstjóraskipti urðu á DV í gær
þegar Hallgrímur Thorsteinsson
stóð upp úr ritstjórastólnum eftir
aðeins 39 daga í starfinu og þau
Eggert Skúlason og Kolbrún Berg-
þórsdóttir voru ráðin í hans stað. Þá
var Hörður Ægisson ráðinn við-
skiptaritstjóri blaðsins. Þrír blaða-
menn á DV misstu vinnuna í kjölfar
breytinganna.
Þeir starfsmenn DV sem Morg-
unblaðið ræddi við í gær eru mjög
ósáttir við nýjasta útspil stjórnar
blaðsins að ráða Eggert sem rit-
stjóra. Ekki er langt síðan Eggert
vann skýrslu fyrir stjórnina þar sem
hann gaf blaðinu sem hann ritstýrir
nú falleinkunn. Allir starfsmenn DV
skrifuðu í kjölfarið undir yfirlýsingu
sem send var fjölmiðlum þar sem
skýrslan var kölluð hrákasmíð.
Sömu starfsmenn eiga erfitt með
að hugsa sér að starfa undir nýjum
ritstjóra og sögðust búast við flótta
starfsmanna. „Hann hefur þegar
sagt hvaða álit hann hefur á okkur,“
sagði einn blaðamaður DV og spurði
um leið um vinnu á Morgunblaðinu.
Hallgrímur leiðir útvarpssvið
Jón Bjarki Magnússon og Jóhann
Páll Jóhannsson, blaðamenn á DV
sem unnu blaðamannaverðlaun
Blaðamannafélags Íslands fyrir um-
fjöllun um lekamálið, gagnrýndu
ráðningu Eggerts Skúlasonar harð-
lega í viðtali við Kastljós í gær-
kvöldi. Sögðust þeir meðal annars
hafa grínast með að Eggert yrði
ráðinn ritstjóri því það væri svo frá-
leitt.
Uppsagnir blaðamanna DV eru
hluti af skipulagsbreytingum sem
ráðist var í vegna samruna DV og
Pressunnar. Sá samruni kemur í
kjölfar kaupa Pressunnar, sem er í
meirihlutaeigu Björns Inga Hrafns-
sonar, sem á um 70 prósent í DV
ehf.
Björn Ingi og Hallgrímur fund-
Hallgrímur
Thorsteinsson
Eggert
Skúlason
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Breytingar gerðar á yfirstjórn DV
Ólga meðal
starfsmanna
Hörður
Ægisson
uðu í gærmorgun um fyrirhugaðar
breytingar en hurfu svo af vettvangi
og létu Stein Kára Ragnarsson
framkvæmdastjóra sjá um tilkynn-
inguna til starfsmanna sem og upp-
sagnirnar.
Hallgrímur mun starfa áfram á
vegum Pressunnar og leiða stefnu-
mótun á sviði talmálsútvarps.
Breytinga að vænta
DV sendi frá sér tilkynningu í
gær þar sem sagt er að breytingar
verði gerðar á aðkeyptu efni í hag-
ræðingarskyni. Er það í samræmi
við markmið nýrrar stjórnar DV að
félagið verði rekið með hagnaði á
nýju ári.
Næsti útgáfudagur DV er föstu-
dagurinn 9. janúar næstkomandi. Í
byrjun nýs árs mun DV kynna
margvíslegar breytingar sem ætlað
er að fjölga áskrifendum og auka
lausasölu blaðsins. Jafnframt verður
ráðist í ýmsar markaðsaðgerðir til
að styrkja stöðu blaðsins, en það var
stofnað sem dagblaðið Vísir árið
1910.
mbl.is
Tilkynntum kynferðisbrotum fækkaði töluvert á milli ára, eða um 40 pró-
sent. Hlutfallslega fækkaði vændismálum mest, um heil 96 prósent. Fóru
úr 55 málum í aðeins tvö. Skýringin felst aðallega í niðurskurði en þrír
lögregluþjónar störfuðu við þennan málaflokk á árinu 2012 og 2013. En
fjárveitingin var aðeins til tveggja ára og því voru stöðugildin felld niður.
Enginn lögreglumaður er sérstaklega að vinna í málaflokknum enda
segir lögreglan í tilkynningunni að þessi brot séu að mestu tilkomin
vegna frumkvæðisvinnu lögreglu.
Mjög mikil fjölgun varð á skráðum brotum um kaup á vændi, árið 2013.
Þá komu 175 mál á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Suður-
nesjum það ár. Að meðaltali voru tilkynnt þrjú kynferðisbrot á viku á
árinu.
Enginn vinnur við vændið
AÐEINS TVÖ VÆNDISMÁL KOMU Á BORÐ LÖGREGLUNNAR