Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Traust og góð þjónusta í 18 ár
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LAUGARDAGA 11-14
Er ekki kominn tími á að fá sér
góð les-, tölvu- eða fjærgleraugu
Verð frá 19.900,-
umgjörð og gler
Munið okk
ar
vinsælu
GJAFABRÉ
F
fi p y j g p
C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
Villibráðar-paté prikmeð pa
Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró
Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ
- salat skufer
ðbo
arðameð Miðj
kjRisa-ræ
með peppadew iluS
ajónmeð japönsku m
het
Hörpuskeljar má, 3 s
Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð
Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R
ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Veitingar fyrir öll tækifæri,
stór og smá, fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það
sama, glæsilegar veitingar
og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta.
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
„Í Kjarnalundi eru hátt í fimmtíu
herbergi, flest þeirra eru vel búin og
standast þær kröfur sem gerðar eru
til heilsuhótels, auk þess sem húsið
er vel byggt. Við ætlum að opna
heilsuhótel í Kjarnalundi næsta vor
og þessa dagana er verið að skipta
um gler í húsinu og eftir áramót
verður settur aukinn kraftur í ýmsar
nauðsynlegar lagfæringar,“ segir
Magnús Guðjónsson, eigandi bygg-
ingarfélagsins Fjölnis á Akureyri.
Eignarhaldsfélagið Kjarnalundur
hefur keypt fasteignina Kjarnalund
af Landsbankanum, en í húsinu var
síðast rekin öldrunarþjónusta á veg-
um Akureyrarbæjar. Náttúrulækn-
ingafélag Akureyrar byggði Kjarna-
lund í því skyni að reka þar heilsu-
hæli, en húsið stendur á rúmlega 20
þúsund fermetra lóð í austanverðum
Kjarnaskógi við Akureyri. Magnús
segir að sundlaug sé í Kjarnalundi
og önnur nauðsynleg aðstaða til að
reka heilsuhótel.
„Á fyrstu hæðinni er gert ráð fyrir
heilsueflandi starfsemi og staðsetn-
ingin getur vart verið betri. Lóðin er
fullfrágengin og ræktuð með fal-
legum trjágróðri, skjólgirðingum,
grasflöt, heitum pottum og fleira.
Kjarnaskógur er perla Eyjafjarðar
og við ætlum að tengja hótelið betur
við skóginn með göngustígum.
Þannig geta gestirnir með auðveld-
um hætti notið náttúruparadísar-
innar í Kjarnaskógi enn betur.“
„Okkar markhópur verður fyrst
og fremst fólk sem vill koma til
Akureyrar og styrkja líkama og sál.
Ferðaþjónusta hefur verið að eflast
hérna fyrir norðan á undanförnum
árum og ég er sannfærður um að
slíkt heilsuhótel verður góð viðbót í
fjölbreytta flóru ferðaþjónustunnar.
Akureyri er auk þess einn fjölsótt-
asti ferðarmannabær landsins og öll
þjónusta í bænum er til staðar.
Heilsuþjónusta er í vexti
Heilsutengd ferðaþjónusta hefur
verið að sækja í sig veðrið á undan-
förnum árum hér á landi og við sem
stöndum að þessu verkefni viljum
taka þátt í enn frekari vexti grein-
arinnar. Þau viðbrögð sem við höf-
um fengið til þessa lofa góðu, þannig
að ég get ekki annað en verið nokk-
uð bjartsýnn á reksturinn,“ segir
Magnús Guðjónsson.
Morgunblaðið/Karl Eskil Pálsson
Kjarnalundur Náttúrulækningafélag Akureyrar byggði Kjarnalund og var húsið tekið í notkun árið 1993. Í húsinu
er meðal annars sundlaug og önnur aðstaða til að reka heilsutengda starfsemi. Stefnt er að opnun næsta vor.
Kjarnalundi verður
breytt í heilsuhótel
„Kjarnaskógur er perla Eyjafjarðar,“ segja nýir eigendur
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Alls búa 12,2% barna á Íslandi á
heimilum undir lágtekjumörkum og
8,3% barna búa við skort á efnis-
legum gæðum. Þetta kemur fram í
Félagsvísum sem Eygló Harðar-
dóttir, félags- og húsnæðismála-
ráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórn-
arinnar í gærmorgun.
Í umfjöllun um Félagsvísa á vef-
síðu velferðarráðuneytisins segir að
þessar tölur séu með þeim lægstu
sem þekkist og að það sama gildi um
tölu þeirra Íslendinga sem hafa
tekjur undir lágtekjumörkum en það
munu vera 9,3% þjóðarinnar.
Tekjur 27% einstæðra foreldra eru
undir lágtekjumörkum sé miðað við
upplýsingar í Félagsvísum.
Þá eru tekjur 23% einhleypra karla
undir lágtekjumörkum samanborið
við 9% einhleypra kvenna.
„Alls telja 26% landsmanna hús-
næðiskostnað vera þunga byrði, sama
hlutfall hjá einstæðum foreldrum er
43%. Helmingur allra heimila á erfitt
með að ná endum saman og á það við
um 77% heimila einstæðra foreldra
(tafla 20). Þegar staða á húsnæðis-
markaði er skoðuð í ljósi kostnaðar,
segja 17,9% leigjenda á almennum
markaði að húsnæðiskostnaður sé
verulega íþyngjandi, samanborið við
6,8% eigenda með fasteignalán, en í
þeim hópi nefnir lægst hlutfall hús-
næðiskostnað sem verulega íþyngj-
andi [...],“ segir í umfjölluninni.
8,3% barna sögð búa við skort
Helmingur allra heimila á erfitt með að ná endum saman
Lyfjakostnaður
lækkar um ára-
mót vegna
skattalækkana
og breytinga á
hámarkshlutfalli
sjúklinga.
Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu frá velferð-
arráðuneytinu.
Segir þar að hlutur sjúkra-
tryggðra í lyfjakostnaði muni
lækka 1. janúar nk. skv. reglugerð
sem heilbrigðisráðherra hefur gef-
ið út. „Þak á árlegum hámarks-
kostnaði lyfjanotenda lækkar um
10%; fer hjá almennum notendum
úr 69.416 kr. í 62.000 og hjá börn-
um og lífeyrisþegum og ungmenn-
um yngri en 22 ára úr 46.277 kr. í
41.000 kr,“ segir þar m.a.
Að auki lækka fjárhæðir
afsláttarþrepa í lyfjagreiðslukerf-
inu, ásamt því sem virðisauka-
skattur á lyf lækkar um áramót, fer
úr 25,5% í 24%.
Lyfjakostnaður
lækkar um áramótin
Lyf lækka í verði.