Morgunblaðið - 31.12.2014, Síða 30
Heimild: syriza.org *ESB, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Evrópski seðlabankinn
Stofnað árið 2004 þegar flokkur
fyrrverandi kommúnista og fleiri
vinstriflokkar sameinuðust
Bandalag róttækra vinstriflokka
Fylgi í könnunum
Kapa-rannsóknir
Syriza
Nýtt
lýðræði
Alko
Alexis Tsipras
Aldur: 40 ára. Á tvö börn2009
2012
2014
Fékk 5,04% atkvæða í
þingkosningum.
Tsipras kjörinn á þing
Syriza í sókn í Grikklandi
Leiðtogi flokksins
Helstu markmiðFékk 26,9% fylgi og
flokkurinn Nýtt lýðræði
29,7% í þingkosningum
Maí: Fékk 26,57%
atkvæða í kosningum til
Evrópuþingsins.
Spáð sigri í kosningum sem
verða haldnar 25. janúar
Varaformaður Flokks
evrópskra vinstrimanna
Er andvígur sparnaðaraðgerðum
sem lánardrottnar knúðu fram*
27,2%
24,7%
28,3%
25%
Vill að erlendar
skuldir Grikklands
verði afskrifaðar að hluta
Antonis Samaras, forsætisráðherra
stjórnar mið- og hægriflokka í
Grikklandi, sagði í gær að þingkosn-
ingar sem verða haldnar 25. janúar
réðu úrslitum um hvort landið héldi
evrunni. Boða þurfti til kosninganna
eftir að þinginu tókst ekki að kjósa
næsta forseta í stað Karolos Papou-
las, en fimm ára kjörtímabili hans
lýkur í mars.
Þetta er í annað skipti á tæpum
tveimur árum sem efnt er til þing-
kosninga í Grikklandi. Skoðana-
kannanir benda til þess að flokkur-
inn Syriza, Bandalag róttækra
vinstriflokka, fái ívið meira fylgi en
mið- og hægriflokkurinn Nýtt lýð-
ræði. Talið er þó að hvorugur flokk-
anna fái nógu mikið fylgi til að geta
myndað nýja ríkisstjórn og óttast er
því að boða þurfi aftur til kosninga
eftir að nýtt þing kemur saman til að
kjósa forseta, að sögn Kathimerini,
frjálslynds dagblaðs í Grikklandi.
Syriza-flokkurinn er andvígur
sparnaðaraðgerðum sem stjórn
Grikklands samþykkti til að fá að-
stoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Evr-
ópusambandsins og Evrópska seðla-
bankans vegna efnahagskreppunnar
í landinu. Flokkurinn vill að skil-
málum aðstoðarinnar verði breytt.
„Forgangsverkefni okkar er að
bjarga landinu innan evrusvæðisins,
ekki að bjarga evrunni í Grikklandi
með því að eyðileggja samfélagið,“
segir leiðtogi flokksins, Alexis Tsip-
ras.
Vill auka ríkisútgjöld
Flokkurinn hefur lofað að hækka
laun og ellilífeyri, binda enda á upp-
sagnir opinberra starfsmanna og
stöðva einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja. ESB og AGS höfðu sett þess-
ar sparnaðaraðgerðir og einkavæð-
inguna sem skilyrði fyrir aðstoðinni
vegna mikils fjárlagahalla og skulda-
vanda Grikklands.
Holger Schmieding, aðalhagfræð-
ingur Berenberg Bank, segir að Sy-
riza hafi mildað málflutning sinn að
undanförnu en telur „um 30% líkur á
nýrri kreppu“ sem gæti orðið til
þess að Grikkland segði skilið við
evruna. bogi@mbl.is
Ræður úrslitum um
evruna í Grikklandi
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar
í Rússlandi, Alexej Navalní, hvatti til
fjöldamótmæla gegn Vladímír Pútín
forseta í gær eftir að dómstóll í
Moskvu dæmdi hann í þriggja og
hálfs árs skilorðsbundið fangelsi.
Bróðir Navalnís, Oleg, var einnig
dæmdur í þriggja og hálfs árs fang-
elsi en dómurinn yfir honum var ekki
skilorðsbundinn.
Ráðamenn í Kreml hafa lengi haft
horn í síðu Alexej Navalnís sem er
álitinn hættulegasti pólitíski and-
stæðingur Pútíns og raunar sá eini
sem talinn er geta velgt forsetanum
undir uggum. Andstæðingar Pútíns
segja að saksóknin á hendur Navalní
sé af pólitískum rótum runnin og
með því að láta dæma bróður hans í
fangelsi hafi ráðamennirnir í Kreml
tekið hann í gíslingu til að reyna að
þagga niður í stjórnarandstöðuleið-
toganum. Navalní hafði boðað fram-
boð gegn Pútín í næstu forsetakosn-
ingum sem eiga að fara fram árið
2018.
„Þessir ráðamenn reyna ekki að-
eins að tortíma pólitískum andstæð-
ingum sínum … Núna ráðast þeir á
nána ættingja þeirra, pynta og
kvelja þá,“ sagði Navalní eftir að
fangelsisdómarnir voru kveðnir upp
yfir bræðrunum. „Það verður að
kollvarpa þessari stjórn.“
Hefur gagnrýnt spillingu
Navalní er 38 ára og þykir gæddur
sérstökum hæfileika til að hrífa fólk
með sér og hefur vakið mikla athygli
á netinu með hvassri og hnyttinni
gagnrýni á spillingu meðal ráða-
manna í Kreml og bandamanna
þeirra sem stjórna ríkisfyrirtækjun-
um. Hann lýsti til að mynda
stjórnarflokknum Sameinuðu Rúss-
landi sem „flokki lævísra svikalóma
og þjófa“ og sú nafngift festist strax
við hann. Hann þykir einnig snjall í
því að krydda gagnrýni sína með
orðaleikjum sem hitta í mark.
Navalní hóf baráttu sína gegn
spillingu árið 2007 þegar hann keypti
hlutabréf í fyrirtækjum í meirihluta-
eigu ríksins og mætti á ársfundi
þeirra til að rekja garnirnar úr
stjórnendum þeirra. Hann hóf einnig
bloggskrif um spillinguna og stór-
felld fjársvik rússneskra risafyrir-
tækja á vefsetrinu Rospil.info sem
hefur notið mikilla vinsælda meðal
þeirra sem vilja fylgjast með þjóð-
félagsumræðunni í Rússlandi.
Navalní varð einn af þekktustu
leiðtogum stjórnarandstöðunnar í
mótmælum í Rússlandi veturinn
2011-2012 áður en Pútín var kjörinn
forseti í þriðja skipti. Það voru fjöl-
mennustu götumótmæli í Rússlandi
frá því að Pútín komst til valda.
Rússnesk yfirvöld hófu þá sak-
sókn á hendur Navalní og hann var
dæmdur í fimm ára fangelsi í júlí á
síðasta ári fyrir fjársvik. Hann var
þó leystur úr haldi þegar dómnum
var áfrýjað og Navalní bauð sig fram
í borgarstjórakosningum sem fóru
fram í Moskvu 8. september 2013.
Hann fékk þá 27,2% atkvæðanna.
Navalní-bræðurnir voru í gær
dæmdir fyrir hafa svikið fé út úr
rússnesku dótturfélagi franska
snyrtivörufyrirtækisins Yves Roch-
er þótt fyrirtækið segist ekki hafa
orðið fyrir tjóni af viðskiptum við
bræðurna.
Kveða átti upp dóminn í málinu 15.
janúar og þúsundir manna höfðu lof-
að að taka þátt í mótmælafundi sem
halda átti þann dag. Dómsuppkvaðn-
ingunni var hins vegar flýtt í fyrra-
dag, að því er virðist til að koma í veg
fyrir að andstæðingar forsetans
gætu fengið leyfi frá lögreglunni til
að halda mótmælafund í Moskvu.
Mótmæli voru boðuð í borginni síð-
degis í gær en lögreglan gerði ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir þau,
lokaði meðal annars torgi þar sem
stjórnarandstæðingar hugðust koma
saman.
Reynt að þagga niður
í erkifjanda Pútíns
Öflugasti pólitíski andstæðingur Pútíns forseta fékk skil-
orðsbundinn dóm en bróðir hans var dæmdur í fangelsi
AFP
Dæmdir Erkifjandi Pútíns, Alexej Navalní (fyrir miðju), og bróðir hans,
Oleg (t.h.), fyrir rétti í Moskvu í gær þegar þeir voru dæmdir fyrir fjársvik.
Hæstiréttur Grikklands fyrirskip-
aði í gær rannsókn á því hvað olli
eldsvoða í bílaferjunni Norman Atl-
antic í Jónahafi á sunnudaginn var.
A.m.k. ellefu manns fórust í elds-
voðanum og tveir albanskir sjó-
menn biðu einnig bana þegar
strengur á milli togbáts þeirra og
ferjunnar slitnaði. 437 komust lífs
af en ekki er vitað um örlög 38 sem
voru á skrá yfir farþegana. Hugs-
anlegt er að einhverjum þeirra hafi
verið bjargað eða að skráningin
hafi verið röng. Margir farþeganna
segja að viðbrögðum áhafnarinnar
hafi verið ábótavant, hún hafi t.a.m.
ekki varað farþega við eldinum.
Kona, sem lifði af eldsvoðann,
faðmar hér börn sín sem tóku á
móti henni á flugvelli í Aþenu.
Rannsókn á orsökum
eldsins fyrirskipuð
AFP
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is