Morgunblaðið - 31.12.2014, Qupperneq 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Umboðsaðili: Celsus
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Nettó.
Eygló Ósk Gústafsdóttir
Íþróttakona Reykjavíkur 2014
VIRKAR
fyrir mig
Íþróttakona Reykjavíkur 2014
Ólympíuleikar 2012, 20. sæti
10. sæti á HM-25 2014
7. og 8. sæti á EM-25 2013
44 Íslandsmet í einstaklingsgreinum
65 Íslandsmeistaratitlar
Lífræn fæða
Ég stefni ótrauð á Ólympíuleikana 2016. Lifestream
vörurnar henta mér best vegna þess að þær eru hrein
lífræn fæðunæring. Næringarríkt fæði er mikilvægt.
Með Lifestream fæðunæringu hef ég betra úthald og
hreysti til að takast á við erfiðar æfingar og áskoranir.
Yfirvöld í Indónesíu staðfestu í gær
að brak sem fannst í Jövuhafi, suð-
vestan við eyjuna Borneó, væri úr
farþegaþotu AirAsia sem hvarf á
sunnudaginn var.
Alls höfðu 40 lík fundist í sjónum
síðdegis í gær þegar hlé var gert á
leitinni vegna óveðurs. Farþegaþot-
an, sem var af gerðinni Airbus A320-
200, var á leiðinni frá Surabaya,
næststærstu borg Indónesíu, til
Singapúr þegar hún hvarf. Alls voru
162 menn í þotunni, þar af 155 frá
Indónesíu. Ættingjar farþega í vél-
inni grétu og föðmuðust á flugvell-
inum í Surabaya þegar myndir af
líkum voru sýndar í sjónvarpi.
Áður en farþegaþotan fór á loft
hafði flugstjórinn óskað eftir leyfi
flugumferðarstjóra til að fljúga
hærra en gert var ráð fyrir í flug-
áætlun til að sneiða hjá óveðri sem
var á þessum slóðum. Beiðninni var
synjað vegna mikillar flugumferðar
á svæðinu.
Eftir að þotan var komin á loft bað
flugstjórinn um að fá að hækka flug-
ið og breyta flugstefnunni vegna
óveðursins. Þotan fékk að breyta
stefnunni en beiðni um að hækka
flugið úr 32.000 fetum í 38.000 fet
var ekki samþykkt vegna hættu á
árekstri við aðrar flugvélar. Tveim-
ur eða þremur mínútum síðar hugð-
ist flugumferðarstjóri heimila þot-
unni að hækka flugið í 34.000 fet en
þá hafði sambandið við þotuna rofn-
að, að sögn flugumferðarstjórnar
Indónesíu.
Brak úr þotunni fannst
Tugir líka fundust þar sem þota AirAsia hrapaði Þotan
hafði ekki fengið leyfi til að hækka flugið vegna óveðurs
AFP
Á bæn Ættingjar farþega í þotu AirAsia fara með bæn saman á flugvell-
inum í Surabaya þegar þeir biðu eftir fréttum af leitinni að þotunni.
París. AFP. | Margt furðulegt bar
til tíðinda á árinu sem er að ljúka:
Í janúar fullyrti japanskur
undirfataframleiðandi að hann
hefði sett á markað mjög svo
undarlegan brjóstahaldara. Hann
væri þeim eiginleikum gæddur að
ekki væri hægt að opna krækj-
urnar nema sá sem haldaranum
klæddist væri ástfanginn. Brjósta-
haldarinn var kallaður „True Love
Tester“.
Í febrúar datt par í Kaliforníu
heldur betur í lukkupottinn er það
var úti að ganga með hundinn
sinn. Parið fann grafinn fjársjóð
gullpeninga, um 10 milljóna doll-
ara virði. Þetta er einn dýrmæt-
asti fjársjóður sem fundist hefur í
Bandaríkjunum.
Í mars sagðist danskt ferða-
þjónustufyrirtæki ætla að rífa upp
fæðingartíðni í Danmörku með því
að senda fleiri Dani til róman-
tískra borga á borð við París. Í
auglýsingunni sagði: Gerðu það
fyrir Danmörku!
Í júní strauk 89 ára gamall fyrr-
verandi hermaður, sem barðist í
síðari heimsstyrjöldinni, frá hjúkr-
unarheimili sínu á Englandi til að
vera viðstaddur minningarathöfn í
norðurhluta Frakklands. Hann var
með medalíurnar sínar faldar und-
ir frakka sínum.
Í júlí héldu suðurkóreskir búdd-
istar bænasamkeppni í Seoul. Þar
komu m.a. fram rappandi nunnur
og syngjandi munkar. Tilgangur-
inn var að laða yngra fólk að sam-
tökum þeirra.
Í september gekkst gullfiskur-
inn Georg undir mjög áhættusama
heilaskurðaðgerð í Melbourne í
Ástralíu. Eigandi fisksins vildi
frekar greiða fyrir aðgerðina en
að láta aflífa hann.
Í október var fyrrverandi kjúk-
linga- og sveppabóndi kjörinn
ungfrú Úganda. Búið er að gera
miklar breytingar á keppninni þar
í landi og í stað þess að konurnar
kæmu fram á sundbolum kepptu
þær í að mjólka kýr og sinna geit-
um og kindum.
Í nóvember kom 91 árs gömul
pólsk kona starfsmönnum líkhúss í
opna skjöldu með því að byrja að
hreyfa sig á borðinu hjá þeim. Þá
voru liðnar 11 klukkustundir frá
því að hún var úrskurðuð látin.
„Er við höfðum komið henni heim
sagðist henni vera kalt og hún bað
um heitt te,“ segir frænka kon-
unnar.
AFP
Sönn ást? Brjóstahaldari sem ekki
er hægt að opna án ástar.
Gerðu það
fyrir Dan-
mörku!