Morgunblaðið - 31.12.2014, Síða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
22.2 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Við vorum kosin
til að gera breytingar
Við fengum mjög afdrátt-
arlaus skilaboð í alþing-
iskosningunum. Við vorum
kosin til að gera breytingar.
Það erum við að gera og
munum gera áfram.
24.2 Elín Hirst
Niðurstaða Bjarna er rétt
Afsal á fullveldi þjóðarinnar
sem hún hefur tiltölulega ný-
lega endurheimt eftir mörg
hundruð ár sem nýlenda,
kemur ekki til greina.
25.2 Bjarnheiður Hallsdóttir
Hver á að borga?
Það er meira að segja sums
staðar farið að örla á pirringi
og óvild í garð ferðamanna,
sérstaklega þeirra erlendu
sem eru sagðir vera með
ágang og traðka niður náttúruna.
27.2 Jón Sigurðsson
Staða aldraðra í öryggisíbúðum
Kjarni vandans virðist vera sá
að aldrað fólk greiddi Eir
stórfé fyrir öryggisíbúðir, en
fékk ekki tryggingarbréf eða
þinglýst veð í tiltekinni eign á
móti.
28.2 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Menntadagur atvinnulífsins
Þýðing menntunar, hvort
sem hún á sér stað innan
vinnustaðar eða skóla, er
mikilvægari en nokkru sinni
fyrr, hvort sem litið er til at-
vinnulífsins eða samfélagsins í heild.
1.3 Skúli Mogenson
Viljum við einokun?
Það eru miklir þjóðfélagslegir
hagsmunir í því fólgnir að
eðlileg og heilbrigð sam-
keppni komist á í ferðaþjón-
ustunni.
4.3 Þorsteinn Arnalds
Svartstakkarnir
hennar Þorgerðar
Ef það eru svik að fara ekki
eftir öllu því sem sagt er í
sjónvarpsþáttum, þá eru það
enn meiri svik að fylgja ekki
eindregnum samþykktum
landsfundar.
5.3 Hjörleifur Guttormsson
Leikhús fáránleikans í boði
Alþingis og Ríkisútvarpsins
Af máli beggja verður m.a.
dregin sú ályktun að það sé
stjórnmálaflokkanna að móta
stefnu í máli sem þessu og
leggja hana undir dóm kjós-
enda í alþingiskosningum.
6.3 Jóhann Gunnar Ólason
Landsfundarsamþykkt
er líka kosningaloforð
Þeir telja að ummæli ein-
stakra frambjóðenda í sjón-
varpskappræðum séu helgir
dómar, en skýrar landsfund-
arsamþykktir, birtar op-
inberlega og víða ræddar, séu bara eitt-
hvert píp. En þannig er það ekki.
8.3 Gústaf Adolf Skúlason
Er ekkert að marka alþingis-
kosningar á Íslandi?
Að afturkalla umsóknina um
aðild að Evrópusambandinu
er hið eina rétta eins og kom-
ið er. Þá er hringferð blekk-
ingarferlisins lokið og Alþingi
tekur mikilvægt skref í endurnýjun virð-
ingar og tengsla við þjóðina.
10.3 Finnur Magnússon
Íslensk réttarframkvæmd
og rétturinn til að
fella ekki á sig sök
Þótt einstaklingi sé tryggður
þessi réttur við rannsókn
mála fyrir lögreglu, þá getur
verið jafnmikil þörf á því að
tryggja vernd réttarins þegar
mál eru rannsökuð hjá öðrum stjórnvöld-
um.
11.3 Sigríður Ásthildur Andersen
Minnihlutinn krefst
uppgjafar meirihlutans
Hví spurðu þeir ekki þáver-
andi þingmeirihluta að þessu
fyrir fjórum árum? Þá höfðu
hvorki ESB-sinnar né frétta-
menn mikinn áhuga á sátt-
um.
12.3 Marta Guðjónsdóttir
Fjárfestum í framtíð
barnanna okkar
Það er alls ekki dýrt fyrir
Reykjavíkurborg að veita 8.
bekkingum sumarstörf hjá
Vinnuskólanum enda launa-
kostnaðurinn ekki mikill.
13.3 Ragnhildur Kolka
Ef greind er normið þá fyrst
verður heimskan áhugaverð
Þótt við höfum margt til Evr-
ópu að sækja þá efast ég um
að sérþarfaþjóðin sem byggir
Ísland sætti sig við til lengdar
að láta ókjörna embætt-
ismenn í Brussel skipa hér málum.
15.3 Sigurður Ingi Jóhannsson
Vísindalegar forsendur -
ábyrgar veiðar
Afstaða Íslands í viðræðum
um nýtingu makrílstofnsins
hefur í meginatriðum verið
að standa vörð um hagsmuni
Íslands og að makrílstofninn
sé nýttur á ábyrgan hátt.
17.3 Haukur Örn Birgisson
Voru tryggingar stjórnenda
Glitnis einskis virði?
Eftir stendur þá spurningin:
Leiddu aðgerðir slitastjórnar
Glitnis til þess að kröfuhafar í
þrotabúi bankans geta ekki
sótt bætur til Trygginga-
miðstöðvarinnar vegna tjóns sem kom
ekki í ljós fyrr en eftir bankahrun?
18.3 Helgi Seljan
Bakþankar vegna bjórdagsins
Okkur bindindismönnum er
oft legið á hálsi fyrir þröng-
sýni eða einsýni og vel þekkj-
um við ofstækisstimpilinn.
20.3 Óskar Bergsson
Sundabraut aftur á dagskrá
Látum Sundabraut vera eitt
af táknum þess að tímabil
erfiðleika er liðið og við tekur
tímabil framfara, bjartsýni og
velgengni.
21.3 Ingibjörg Marmundsdóttir
Að vera eða vera ekki
í heimabyggð
Ég skora á heilbrigð-
isráðherra og alla aðra, sem
ráða í þessum geira, að setja
nú mannúðina númer eitt í
úthlutunarreglurnar þannig
að í reglunum verði fyrsta spurningin:
Hvaða hjúkrunarheimili óskar viðkomandi
eftir er laust pláss þar?
22.3 Hjálmar Vilhjálmsson
Pútín, Icesave og
„ískalt hagsmunamat“
Lyktir Icesave-málsins eru til
marks um að í náinni evr-
ópskri samvinnu getur hinn
smái mætt þeim stóra á jafn-
réttisgrundvelli og uppskorið
sigur.
24.3 Björn Bjarnason
ESB-viðræðunum
lauk í mars 2011
ESB-viðræðunum er sjálf-
hætt. Formsatriði vefjast þó
fyrir ríkisstjórn og alþingi.
Deilan snýst um hver eigi að
kasta rekunum. Að rifist skuli
um hvort öll þjóðin eigi að koma að þeirri
ákvörðun er í raun óskiljanlegt.
25.3 Halldór Jónsson
Afdalamennska
Gera heldur refsilaust að
keyra með 1 prómill í blóði ef
ekki er valdið slysi. Sé valdið
slysi mega viðurlög byrja
neðar á skalanum þannig að
menn taki helst ekki vín ef þeir eru á bíl.
28.3 Andrey V. Tsyganov
Óska Íslendingum friðar
og velfarnaðar
Okkur hefur tekist að leggja góðan grund-
völl að samstarfi í tæknigeiranum og við
höfum opnað dyr fyrir nýt-
ingu á fjárfestingar-
tækifærum sem eru til staðar
í íslenska hagkerfinu, með
fullri virðingu fyrir hags-
munum þjóðanna.
29.3 Björn S. Stefánsson
Talningu atkvæða lokið
Þrálátir fundir fyrir utan Al-
þingishúsið undanfarið eru
kynntir í fréttum eins og þeir
séu merkilegir. Þá fundi sæk-
ir ekki nema brot að tiltölu
við þá, sem sóttu kjörfund.
29.3 Hörður Guðmundsson
Uppreisn námsins
Róttæk einka- og tæknivæð-
ing á framhaldsskólastigi
myndi skila sér í hagræðingu,
betri menntun og væri skref í
átt að bjartari og upplýstari
framtíð!
31.3 Ragnheiður Davíðsdóttir
Hefur þú efni á að veikjast
af krabbameini?
Það er sárara en tárum taki
að ungt krabbameinsveikt
fólk þurfi að herða stult-
arólina svo mikið vegna rann-
sókna, læknis- og lyfjakostn-
aðar að öll fjölskyldan líður.
1.4 Ari Trausti Guðmundsson
Semja fyrst - hanna
nýtt kerfi á eftir
Auðvitað átti að hefja um-
ræður og viðræður um breyt-
ingar framhaldsskólakerf-
isins á stjórnmálasviðinu
fyrir mörgum mánuðum og í
víðtækum vinnuhópum.
2.4 Leifur Magnússon
Aðgerðir Reykjavíkurborgar
gegn flugvelli sínum
sl. fimm mánuði
Hér er um að ræða meirihátt-
ar og grófar falsanir stað-
reynda, sem annaðhvort
benda til þess að umræddir
borgarfulltrúar viti ekki eða
skilji ekki staðreyndir málsins, eða séu
vísvitandi að hafna þeim.
3.4 Helgi Sigurðsson
Breivik og bankahrun
Í kjölfar falls bankanna var
vikið frá réttarskipulagi á Ís-
landi með stofnun aðhalds-
lausrar rannsóknarnefndar
og risavaxins saksóknaremb-
ættis, enda lýsti erlendi ráðgjafinn því yfir
að á Íslandi störfuðu fleiri við rannsóknir
efnahagsbrota en í Frakklandi.
4.4 Gunnar Þórarinsson
Prófkjör virt að vettugi
Þau undirmál og það ofríki
sem hefur grasserað innan
nefnda og ráða flokksins síð-
ustu vikurnar opinberaðist
þar með skýrum hætti.
5.4 Sigríður Hlíðar
Hugleiðingar kennara í verkfalli
Þegar nemandinn þiggur
sæti í einhverjum skóla ber
honum skylda til að sinna
náminu eftir bestu getu. Það
skuldar hann því samfélagi
sem býður honum þessi forréttindi.
7.4 Jóhanna María Sigmundsdóttir
Ættleiðingar og mannréttindi
Og á meðan önnur lönd vinna
sig í áttina að því að leyfa
ættleiðingar milli landa til
samkynhneigðra þá ættum
við að vinna áfram það góða
starf sem við getum hérlendis til að vera
undir það búin þegar stundin kemur.
8.4 Elín Oddný Sigurðardóttir
Vegið að þeim sem síst skyldi!
Samkvæmt lögum um fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga
ber sveitarstjórnum að
greiða íbúum sem ekki geta
séð sér farborða með öðrum
hætti, fjárhagsaðstoð.
10.4 Jóhannes Rúnar Jóhannsson
Kaupþing og greiðslujafn-
aðarvandinn
Að því er Kaupþing varðar
skiptir því mestu að finna
viðunandi lausn á eignar-
hlutnum í Arion banka. Takist
að selja hann fyrir gjaldeyri
og ljúka slitameðferðinni með nauða-
samningi hefur það án efa jákvæð áhrif á
íslenskt efnahagslíf.
11.4 Kristín Helgadóttir
Mannauður í laxeldi
Laxeldið býr til störf sem
skapa verðmæti fyrir nær-
samfélagið. Það skapast um
19 ný störf á hver eitt þúsund
tonn af fiski sem alin eru í
sjókvíaeldi.
12.4 Fabian Stang
Óslóartréð
Því hef ég nú þegar skrifað
bréf til borgarstjórans, Jóns
Gnarrs, með hugleiðingum
um hvernig við getum sem
best viðhaldið og betr-
umbætt þá hefð að Ósló færi Reykjavík
jólatré að gjöf.
14.4 Guðmundur Karl Jónsson
Forseti borgarstjórnar
á villigötum
Með flutningi flugvallarins úr
Vatnsmýri verður tenging
Reykjavíkur við aðra lands-
hluta endanlega eyðilögð.
15.4 Lena Valdimarsdóttir
Væntingar til laxeldis - eru þær
raunhæfar?
Það tekur mun lengri tíma að
framleiða fisk í sjókvíum við
Ísland heldur en í Noregi,
fyrst og fremst vegna lægri
sjávarhita, en sú staðreynd
minnkar hagkvæmni laxeldis í sjó hér við
land.
16.4 Hulda Rós Sigurðardóttir
Að slíta aðildarviðræðum
Ísland ætti að geta átt gott
samstarf við Evrópusam-
bandsríkin þó að við slítum
viðræðunum og hvergi finn-
ast þær upplýsingar um að
við myndum ekki geta sótt um að nýju ef
aðstæður breytast.
17.4 Sigurður Árni Þórðarson
Hallgrímur í lit
Ímynd Hallgríms Péturssonar
er of dimm. Sjónum hefur
um of verið beint að hörmu-
legum þáttum í lífi hans.
Vissulega lenti hann í klandri.
19.4 Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
Sjálfræði aldraðra á hjúkrunar-
heimilum - hvenær kemur það?
Það má færa sterk rök fyrir
því að með því fyrirkomulagi
sem gildir í dag um greiðslu-
fyrirkomulag á hjúkrunar-
heimilum sé verið að brjóta
stjórnarskrárvarinn rétt einstaklinga.
Morgunblaðið/Þórður
Flugvallarmálið var
ofarlega á baugi á
árinu, og afhentu
flugvallarvinir Einari
K. Guðfinnssyni tæp-
lega 70.000 undir-
skriftir í maímánuði.