Morgunblaðið - 31.12.2014, Síða 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
23.4. Sigríður Björnsdóttir
Ávinningur á tíu árum
Gerendur þrífast í samfélagi
afneitunar og komast upp
með athæfi sitt eins lengi og
þeir sjá að ekkert er að gert
og meðan þeir eru ekki
stöðvaðir.
24.4. Bragi Björnsson
Gleðilegt landsmótssumar
Því vekur það furðu hversu
lítil virðing er almennt borin
fyrir starfi sjálfboðaliða hér á
Íslandi samanborið við mörg
önnur lönd.
25.4. Elín Lára Baldursdóttir
Ungt fólk er framtíðin
Ég hvet öll ungmenni á Ís-
landi til þess að finna leiðir til
þess að láta rödd sína heyr-
ast, ekki bara innanlands
heldur einnig út fyrir land-
steinana því við erum framtíðin í sam-
félaginu!
26.4. Bergþór Ólason
Öllu snúið á hvolf
Árið 2009 tók það vinstri-
stjórnina tvo mánuði að gera
Ísland að umsóknarríki. Þá
talaði enginn um offors, of-
stæki og flýtimeðferð.
29.4. Fjóla Þorvaldsdóttir
Markmið bæjarstjórans
Við munum því næsta kjör-
tímabil tryggja það að kjör á
leikskólum í Kópavogi stand-
ist allan samanburð við önn-
ur sveitarfélög og auka svig-
rúm til faglegs undirbúnings og eftirfylgni
í leikskólunum.
30.4. Sigurður Steinar Ásgeirsson
Íbúahverfi í gíslingu
Þegar fyrstu íbúarnir voru að
flytja inn í Bryggjuhverfið var
þeim tjáð að Björgun myndi
yfirgefa hverfið innan tveggja
ára. Síðan eru liðin 15 ár og
enn virðist ekki vera fararsnið á Björgun.
1.5. Ólafur F. Magnússon
Umferðaröryggi í öndvegi
Þar talar klúðrið með Borg-
artún og Hofsvallagötu sínu
máli, þar sem litið er framhjá
þeirri staðreynd, að umferð-
arteppur beina umferð inn í
aðliggjandi hverfi.
2.5. Guðbjörg Snót Jónsdóttir
Skipulagsruglið í Reykjavík, þó
sérstaklega Vesturbænum
Að setja svo íbúðarbyggð við
Suðurgötuna, fyrir framan
prófessorsbústaðina svoköll-
uðu, er annað ruglið, sem
tekur alveg útsýnið frá íbúum þeirra húsa.
5.5. Eiríkur Elís Þorláksson
Er stjórnarskráin lifandi?
Hugleiðingar um túlkun
stjórnarskrárinnar.
Rökin fyrir því að beita
óbreytilegri skýringu eru í
stuttu máli t.d. þau að dóm-
stólar eigi ekki að setja lög
en það geri þeir í reynd þegar
stjórnarskráin er túlkuð með breytilegum
hætti eftir því hvernig vindar blása.
6.5. Jóhann Tómasson
Vélar og launsvik siðanefndar
Læknafélags Íslands
Siðanefnd og formaður
Læknafélags Íslands gerðu
síðan allt til að tefja málið í
siðanefnd. Því lauk ekki fyrr
en eftir þrjú og hálft ár.
7.5. Dóra Magnúsdóttir
Aðförin ógurlega að
einkabílnum
Sú staðreynd að við fáum í
fyrsta sinn svolítið pláss í
borginni, pláss sem er ein-
göngu ætlað hjólreiðafólki er
ekki aðför að einkabílnum né
til marks um hatur núverandi meirihluta í
borginni á bílum.
9.5. Jóhanna María Sigmundsdóttir
Af tilfinningaklámi og
dreifbýlistúttum
En ég er komin með nóg af
því að vera skömmuð ef
minnst er á raunverulegt
ástand landsbyggðarinnar
eða þörf fyrir góða tengingu
við flugvöllinn í Reykjavík.
12.5. Finnur Magnússon
Um vernd heimildarmanna
fjölmiðla
Ljóst er að fjölmiðlar gætu
illa sinnt sínum skyldum ef
ekki mætti treysta því að þeir
héldu trúnað gagnvart heim-
ildarmönnum sínum.
13.5. Þröstur Ólafsson
Umskipti Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Ben., Ólafur Thors og
Gunnar Thoroddsen voru
þeir foringjar sem gerðu
Sjálfstæðisflokkinn að frjáls-
lyndum flokki hægra megin
við miðju
14.5. Hrund Ásgeirsdóttir
„Upp veslast ónotaðar gáfur“
Ég skora á þig Illugi að beita
þér fyrir jafnri aðstöðu allra
barna á landinu þegar kemur
að kunnáttu í tækni svo upp
veslist ekki ónotaðar gáfur
eins og Guðmundur frá Lundi orðaði það.
15.5. Kristinn Karl Brynjarsson
150 milljóna króna
misskilningur?
Stefnan hefur verið mörkuð,
en framkvæmd hennar ein-
ungis verið frestað fram yfir
kosningar, vegna ótta við
töpuð atkvæði. Í besta falli
gæti orðið um breytingar sem lítil áhrif
hafa á heildarmyndina.
16.5. Björn Jón Bragason
Umhverfisslys Dags B.
Í stóru og strjálbýlu landi er
nægt rými fyrir ný hverfi og
engin ástæða til að skerða
stórkostlega lífsgæði borg-
arbúa með þröngri blokk-
arbyggð á aðalútivistarsvæði borgarinnar.
17.5. Ólöf Kristín Sigurðardóttir
Aðgengi að menningararfi
Það er hlutverk safna að
varðveita minningar og segja
sögur. Í fórum þeirra eru
munir sem leggja grunn að
sjálfsmynd þjóða og end-
urspegla bæði náttúru- og menningararf.
19.5. Janne Sigurðsson
Flugsamgöngur eru byggðamál
Það er fagnaðarefni að ráð-
herra skuli vilja beita sér fyrir
lækkun álaga á innanlands-
flug enda stendur því ógn af
hækkunum sem innleiddar
hafa verið.
21.5. Helgi Laxdal
„Vélstjóri“ verðmætt fagheiti
Í heildina er hér um allt að tíu
ára nám að ræða. Af sjálfu
leiðir að fagheiti sem grund-
vallast á jafn víðtæku og fjöl-
breyttu námi og fagheitið
vélstjóri er verðmæti rétthafa þess sem
þeir einir mega nota.
22.5. Sigrún Edda Jónsdóttir
Upplýsingatækni mikilvæg í
þróun skólastarfs
Margir kennarar eru langt komnir í að nýta
sér þá möguleika sem spjald-
tölvurnar hafa upp á að bjóða
en nauðsynlegt er að styðja
þá starfsmenn sem vilja auka
færni sína í notkun spjald-
tölva.
23.5. Jón Sigurjónsson
Aðförin að versluninni
Verslun í miðbænum á í vök
að verjast, vegna þrenginga,
lokana, hækkunar bílastæða-
gjalda, fækkunar bílastæða
og ýmissa fleiri þátta sem
borgaryfirvöld bera einkum ábyrgð á.
24.5. Ásgerður Halldórsdóttir
Seltjarnarnes - bæjarfélag í
fremstu röð
Rekstur bæjarfélagins er
traustur og afkoman með því
allra besta sem þekkist á
landsvísu. Seltjarnarnesbær
er með eitt allra lægsta
skuldahlutfall allra sveitarfélaga landsins,
þó að skattar á íbúa séu óvíða lægri.
26.5. Guðjón Tómasson
Vinstristjórnavandinn
Hjá öllum hreinum vinstri-
stjórnum virðist aldrei hugað
að því að eiga fyrir út-
gjöldum, heldur að ráðstafa
fjármunum sem ekki eru til.
27.5. Sóley Tómasdóttir
Burtu með fátækt
Það eina sem þarf til að inn-
leiða gjaldfrjálsa leikskóla,
skólamáltíðir og frístunda-
heimili er pólitískur kjarkur
og ábyrg fjármálastjórn þar
sem forgangsraðað er í þágu barna.
Vinstri græn eru reiðubúin til þess.
28.5. Auður Hallgrímsdóttir
Vaknið Garðbæingar! Björt
og heiðarleg framtíð
Margir eldri Garðbæingar
hafa sömu sögu að segja,
enda hafa yfirvöld í bæj-
arfélaginu ekki sett í forgang
aðbúnað við aldraða.
30.5. Björk Vilhelmsdóttir
Virkni og öryggi á efri árum
Eldri borgarar vilja eiga þess
kost að búa sem lengst á eig-
in heimili og til þess þarf að
tryggja næga heimaþjónustu
og heimahjúkrun.
2.6. Björgvin Guðmundsson
Eldri borgarar vilja lægra
lyfjaverð
Nauðsynlegt er að gerðar
verði betri ráðstafanir til
þess að koma til móts við
lágtekjufólk meðal aldraðra
og annarra í þessu nýja
greiðsluþátttökukerfi.
3.6. Jón Gerald Sullenberger
Þöggun? - Opið bréf
til Gests Jónssonar
Jón Ásgeir harðneitaði eið-
svarinn fyrir dómi að stjórna
Fjárfari ehf. og að eiga nokk-
uð í því nema örfá prósent.
4.6. Lára G. Sigurðardóttir
Maðurinn sem situr
Að hreyfa sig á að vera jafn-
lífsnauðsynlegt og að sofa,
borða og drekka. Við eigum
ekki að láta hreyfingu mæta
afgangi.
5.6. Jenna Jensdóttir
Reiði
Hún safnar úr undirvitund-
inni öllum ljótum orðum og
vondum og býr til úr þeim
hárbeitt vopn sem skal særa
og skera í nafni réttlátrar
hefndar.
6.6. Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Kúgun karla?
Karlar eru ekki aðeins
skammlífari en konur og líf
þeirra þungbærara, eins og
tíðni sjálfsvíga sýnir, heldur
er líf karlanna miklu hættu-
legra.
7.6. Axel Kristjánsson
Siðferði Samfylkingar
Allt var þetta gert til að Sam-
fylkingin yrði ekki af vináttu
og stuðningi fjárglæfra-
mannsins, sem þá réð ríkjum
í 365 miðlum og a.m.k. ein-
um af bönkum landsins.
10.6. Stefán Már Gunnlaugsson
Ímynd stangaveiðinnar
Varasamt er að fordæma og
alhæfa um heila tóm-
stundaiðju eins og stanga-
veiðin hefur oft mátt þola og
bar við í umræðunni um þátt-
töku ráðamanna þjóðarinnar í opnun
Norðurár sem voru að sinna embætt-
isskyldum sínum og gerðu af myndarbrag.
11.6. Óli Björn Kárason
Þegar stjórnmál hætta að
snúast um hugsjónir
Með því að tala skorinort og
setja stefnumálin fram með
afdráttarlausum hætti geta
sjálfstæðismenn breytt ís-
lenskum stjórnmálum.
12.6. Hanna Birna Kristjánsdóttir
Tímamót í málefnum
hælisleitenda
Við eigum að líta á það sem
tækifæri þegar erlendir rík-
isborgarar vilja koma hingað
til lands til að stunda nám
eða starfa.
13.6. Guðni Ágústsson
Ég ákæri ritstjóra DV og
Fréttablaðsins
Ég virði rétt annarra til að
stunda sína trú fari þeir að
lögum og mannréttindum,
sem við höfum á mörgum
sviðum verið öðrum þjóðum
fremri og fyrr að setja.
16.6. Ásmundur Stefánsson
Farsæld, hagvöxtur og jöfnuður
Þegar flest bendir til þess að
jöfnuður hamli ekki hagvexti,
frekar auki hann, og vitað er
að félagsleg og heilsufarsleg
vellíðan eykst með auknum
jöfnuði, ættum við að geta
orðið sammála um að standa vörð um
jöfnuðinn.
19.6. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
100 ár að ári
Það er tímabært nú að félög
kvenna, félög jafnréttissinna
og allra þeirra sem vilja
minna á og heiðra þá sem að
réttindabaráttunni komu,
undirbúi hátíð eða viðburði árið 2015.
24.6. Hrefna Sigurjónsdóttir
Hver vill styttri vinnuviku?
Á Íslandi vinna flestir for-
eldrar fulla dagvinnu og
margir talsverða yfirvinnu.
Foreldrar eru oft í kapphlaupi
við tímann og sumir í stríði
við samviskuna.
25.6. Guðjón Sigurðsson
Hugleiðingar um
„sjálfstætt líf“ 2014
Hvað græðum við á því sem
þjóðfélag að tryggja öllum
sjálfstætt líf? Við brosum
meira, sem er öllum hollt. Í
stað þess að hafa þiggjendur
fara allir sem geta að leggja sitt af mörk-
um.
26.6. Heiðar Guðjónsson
Umboðsmaður Alþingis sinnir
ekki störfum sínum
Á sama tíma og hann átelur
stjórnvöld fyrir drátt á máls-
meðferð og brot á máls-
hraðareglum stjórnsýslulaga,
dregur hann mikilsverð mál
svo árum skiptir. Það getur vart talist trú-
verðugt.
27.6. Tryggvi Gunnarsson
Umboðsmaður Alþingis svarar
Ég ítreka að því miður hefur
afgreiðsla umboðsmanns Al-
þingis á kvörtun Ursusar ehf.
tekið lengri tíma en ég hefði
kosið og hef miðað við í starfi
mínu.
28.6. Össur Skarphéðinsson
Kínasamningurinn skapar
einstök tækifæri
Þetta viðhorf hins miðstýrða
stórveldis þurfum við að not-
færa okkur rækilega meðan
við komum okkur fyrir á kín-
verskum mörkuðum. Við
þurfum að vinna hratt og nýta forskotið
meðan það varir.
30.6. Jakob Falur Garðarsson
Við þurfum skýra stefnu í
heilbrigðismálum
Ísland er því miður að drag-
ast aftur úr þegar kemur að
meðferðarúrræðum og það
er alvarlegt mál sem þarfnast
umræðu í samfélaginu með
þverfaglegri aðkomu vísindasamfélagsins,
stjórnmálamanna og almennings.
Leiðréttingin var eitt stærsta mál ríkis-
stjórnarinnar, og forráðamenn ríkisstjórn-
arinnar, þeir Bjarni Benediktsson, fjár-
málaráðherra, og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, forsætisráðherra, kynntu
niðurstöður hennar í byrjun nóvember.