Morgunblaðið - 31.12.2014, Qupperneq 47
UMRÆÐAN 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Morgunblaðið/Golli
Lekamálið leiddi til þess að Hanna Birna
Kristjánsdóttir sagði af sér embætti inn-
anríkisráðherra í lok nóvember. Við
starfi hennar tók Ólöf Nordal, fyrrver-
andi varaformaður og þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
18.11 Jóhann Bogi Guðmundsson
Með þróaðri þjóðum heims?
Þeir sem reka smábát vita
að rekstrarkostnaðurinn er
mikill og má reikna með að
hann sé helmingur af inn-
komu.
19.11 Skírnir Garðarsson
Í minningu Steinunnar hús-
freyju á Sjöundá
Samtími Steinunnar á Sjö-
undá var ekki til í að meta já-
kvæðu hliðarnar á þessari
hæfileikakonu, slúður og öf-
und mótuðu því afstöðu
fólks til hennar.
20.11 Hörður Harðarsson
Svínabændur leggjast gegn
hækkun matarskatts
Verði frumvarpið samþykkt
mun verð á ferskum mat-
vælum, sem eru að mestu
innlendar landbúnaðar-
afurðir, hækka umtalsvert.
21.11 Jóhanna María Sigmundsdóttir
Staðgöngumæðrun
og samkynhneigð
Þá eru álíka ákvæði og við
ættleiðingu þegar kemur að
því að segja barninu frá fæð-
ingu þess með staðgöngu-
mæðrun, en það skal gera
eigi síðar en fyrir sex ára afmælisdag þess.
22.11 Arthúr Björgvin Bollason
Hallgerður fær uppreisn æru
Og ógæfan sem elti Hall-
gerði á röndum fólst ekki
síst í því að hún var lögð í
einelti í Rangárþingi. Þar var
Bergþóra, eiginkona Njáls,
fremst í flokki.
25.11 Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Hugleiðingar tónlistarnema
Fundir, með löngu millibili
þar sem ekkert þokast
áfram og stétt tónlistar-
kennara er engin virðing
sýnd, ganga ekki upp.
26.11 Jón Jónsson
Reykjavíkurflugvöllur og
raunsæi
Ef borgarstjórn teldi sig hafa
pólitískt umboð til að bæta
Reykjavíkurflugvöll fullum
bótum og vildi hreyfa við
málinu reynir á takmörk
skipulagsvaldsins.
27.11 Böðvar Bjarki Pétursson
Útflutningur á menntun
Það eru raunveruleg tæki-
færi hér á ferð. Risastórir
hópar námsmanna eru að
verða til bæði í Asíu og Afr-
íku sem fara á milli landa í
nám.
28.11 Hanna Kristín Ólafsdóttir
Er Landspítalinn bara fyrirtæki?
Hvers vegna er hægt að
ganga út frá því að öryggi
sjúklinga sé tryggt á Land-
spítalanum ef það hefur
ekki verið tryggt annars
staðar við sambærilegar aðstæður?
29.11 Kristín Heimisdóttir og Kristrún
Heimisdóttir
er Hriflu-Jónas genginn aftur?
Forsendur til
að sækja sér
frekari mennt-
un eftir fram-
haldsskólann
felast í því að hafa nægilega margar ein-
ingar á stúdentsskírteininu til að geta sótt
um háskóla, hérlendis eða erlendis.
3.11 Arna Guðmundsdóttir
Læknaverkfall - hvar endar
þetta?
Ég hef valið að búa á Íslandi.
Mig langar til að starfa á Ís-
landi. Ég vil hafa öflugan
spítala á Íslandi og ég vil ekki
þurfa að óttast það að verða
gömul á Íslandi.
4.11 Páll Gunnar Pálsson
Er erfitt að fara að
samkeppnislögum?
Fyrirkomulag gámaflutninga
milli Íslands og Evrópu kostar
árlega nálægt miljarði meira
en þyrfti ef skipin yrðu sam-
nýtt og samkeppni breytt.
5.11 Ólöf Ýr Atladóttir
Gæði og fagmennska
lykillinn að framtíð
íslenskrar ferðaþjónustu
Gæðaferðaþjónusta verður
ekki til nema við vinnum að
því sameiginlega markmiði
að hér þrífist atvinnugreinin í
sátt við fólk, samfélag og
náttúru.
6.11 Arnar Eggert Thoroddsen
Popp bjargar mannslífum
Svo ég ræði um það sem
snýr að mínu sérsviði, dæg-
urtónlistinni, er ljóst að Sjón-
varpið, Rás 1 og Rás 2 vinna
öll sérstaklega mikilvægt
starf.
7.11 Ari Gísli Bragason
Loksins, loksins...
Að því leyti er það þó hvergi
skýrara hvað sú bók var
sannspá á sínum tíma og í
raun sannkallað meistaraverk
því hvað hefur gerst síðan?
8.11 Þorsteinn Sæmundsson
Klukkan og birtan
En skammdegi er ekki bund-
ið við morgnana. Á kvöldin
myndi seinkun klukkunnar
hafa gagnstæð áhrif og
lengja skammdegið, bæði
haust og vor.
10.11 Ögmundur Jónasson
Borg og ríki komin út í mýri
Þetta samkomulag var ekki
hugsað sem konfektkassi til
að pikka uppúr mola eftir
smekk borgarstjóra eða inn-
anríkisráðherra. Það var allt eða ekkert.
11.11 Ragnar Önundarson
Snorri Sturluson þekkti
forn rit um sálina
Við sjáum að Snorri bjó yfir
nægri þekkingu á sálarlífinu
til að greina þrjár helstu
geðraskanir mannsins. Í
þessum þremur dæmum
notuðum við orðið enga um þá eigind sem
við prófuðum að rýra.
12.11 Sigurjón Arnórsson
Ríkið, bankar og peningar
Á sama tíma er það sér-
staklega ánægjulegt að Ís-
lendingar eru komnir langt á
veg og tala í alvöru um
hvernig heppilegast sé að
endurreisa efnahagskerfi landsins eftir
hrunið.
13.11 Þórunn Guðmundsdóttir
Höfuðborg - tónlistarborg?
Hvernig sjá borgarfulltrúar
tónlistarmenntun fyrir sér í
framtíðinni? Vonandi vilja
þeir ánægða kennara í öfl-
ugum tónlistarskólum þar
sem nemendur stunda krefjandi og skap-
andi nám.
14.11 Rannveig Gunnarsdóttir
Lyfjaeftirlit er meira
en heimsóknir!
Eftirlit eykur öryggi lyfjanna
sjálfra, framleiðslu þeirra og
dreifingu til notenda og
varnar því að fölsuð eða
gölluð lyf komist inn í lögleg-
ar dreifingarleiðir lyfja.
15.11 Einar Falur Ingólfsson
Enn skal herjað á hálendið
Þegar hugsað er um þann
hluta hálendisins sem enn er
lítt snortinn mega menn ekki
voga sér að hugsa í árum,
kjörtímabilum eða þeim ára-
tugum sem við nú lifum. Tími náttúrunnar
er annar en tími mannanna.
17.11 Bogi Ragnarsson
Skuldaniðurfelling ríkisstjórn-
arinnar á mannamáli
Aðrir hafa komið út í gróða
en margir þeirra hafa samt
fengið milljóna niðurfærslur
sem er ekkert annað en
gjafagjörningur úr ríkissjóði
sem leigjendur, skuldarar námslána og al-
menningur í landinu greiða fyrir.
1.12 Guðrún Hafsteinsdóttir
Íslenskur iðnaður - óteljandi
snertifletir
Við eigum að vera stolt af
því sem áorkast hefur á síð-
ustu áratugum. En við eig-
um ekki að hræðast breyt-
ingar og það er mikilvægt að
nálgast verkefni morgundagsins af áræði
og krafti.
2.12 Gunnar Kvaran
Máttur tónlistar og mikilvægi í
uppeldi barna
Aðalmarkmiðið hlýtur að
vera að skapa og stuðla að
þróun betri einstaklinga,
ekki einungis faglega heldur
ekki síður manneskjulega.
4.12 Ragnhildur Kolka
„Þakka ykkur fyrir að bíða“
Ef málinu hefði lokið þar
hefði mátt efast um orð
Hönnu Birnu um ljótan póli-
tískan leik. En spjótin voru
alltaf pólitísk og skotmark
þeirra aldrei annað en Hanna Birna.
5.12 Þórhallur Heimisson
Með landvættum Íslands
í hákirkjum rómverska
heimsveldisins
Dreki Snorra er í ætt við
orm, því honum fylgja ormar
og eðlur. Ormur eða dreki
Snorra gæti því vel verið hið
forna merki Júda.
6.12 Halldór Halldórsson
Skuldsetta Reykjavík
Svigrúm til skattalækkunar
á borgarbúa skapast ekki
þegar reksturinn er eins og
fjárhagsáætlun ársins 2015
ber með sér.
8.12 Hjálmar Árnason
Skólar gærdagsins
eða morgundagsins
Hlutverk skóla er að kenna
nemendum að læra, halda
þeim forvitnum og sjálf-
bjarga í netheimum. Þannig
búum við þá undir morg-
undaginn.
9.12 Guðlaugur Þór Þórðarsson
Steingrímur J. og Katrín
bera vitni
Það er alvarlegt þegar
fréttastofa Ríkisútvarpsins
sem starfar í skjóli sérstakra
laga og á kostnað skatt-
greiðenda skuli saka þing-
mann um blekkingar og jafnvel beinar
rangfærslur.
10.12 Baldur Ágústsson
ESB og skyld óværa
Guð gaf okkur Íslendingum
bestu landamæri í heimi. Er
ekki kominn tími til að þiggja
þau, nýta og jafnvel segja
takk?
11.12 Ingvi Hrafn Óskarsson
Rökþrot þingmanns?
Hlýtur að teljast nokkurt ný-
næmi að þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins leggi slíkt
traust á yfirlýsingar og upp-
lýsingar frá Steingrími J.
12.12 Guðberg Rúnarsson
Laxeldi og úrtölumenn
atvinnutækifæra í fiskeldi
Staðsetningar fyrir sjókvía-
eldi á Íslandi eru langt frá
helstu laxveiðiám og farleið-
um laxfiska og fiskeldið hér í
mun betri stöðu en ná-
grannalöndunum.
13.12 Hilmar Gunnlaugsson,
Jón Jónsson og Eva Dís Pálmadóttir
Lögreglan á Höfn - rakalaus
umræða - tilraun til úrbóta
Núverandi til-
högun styrkir
jafnframt lög-
regluna á Aust-
urlandi í heild
sinni. Lögreglan verður skip-
uð fleiri lögreglumönnum,
sterkari grunnur verður fyrir
auknum mannafla í rann-
sóknarstörfum og við sak-
sókn.
15.12 Björn Rúnar Egilsson
„Ég þarf bara að safna
hundrað vinum til þess
að verða frægur“
Af samtölum okkar við reyk-
víska 6. bekkinga að dæma
er full ástæða fyrir foreldra
til að láta netnotkun
barnanna sig varða, vera til
staðar og leiðbeina þeim eins og kostur er.
16.12 Sigurður Guðmundsson
Verkfallsdagar
Ef ungt fólk kemur ekki til að
taka við af okkur sem eldri
erum eða fer úr landi, er
þetta búið hjá okkur, svo
einfalt er það.
17.12 Reynir Arngrímsson
Hvað gera þingmenn?
Sér einhver fyrir sér að ís-
lensk flugfélög kæmust upp
með að borga flugmönnum
sínum í næturflugi að utan
3.000 kr. á tímann eftir að
þeir hafa verið í flugi allan daginn á und-
an?
18.12 Ásta S. Helgadóttir
Vandi þeirra tekjulægstu
Það er sláandi hve mikill
fjöldi einstaklinga sem leita
til umboðsmanns skuldara
hefur neikvæða greiðslu-
getu.
19.12 Frosti Ólafsson
Náttúrupassinn snýst
um fleira en peninga
Vandi iðnaðar- og við-
skiptaráðherra er fólginn í
því að fyrirliggjandi frum-
varp um náttúrupassa geng-
ur of skammt í því að breyta
hegðun fólks.
12.20 Gunnþór Þ. Ingason
Hundrað ára Hafnarfjarðarkirkja
Kirkjan var bæna- og griða-
staður í heimsstríði er beðið
var uggandi eftir því að tog-
arar og fiskiskip skiluðu sér
heim eftir háskaför um
ófriðarslóð.
12.23 Einar K. Guðfinnsson
Þá var flutningur ríkisstofnunar
talinn góður og gildur
En nú er allt með öðrum
róm. Ætli ástæðan geti verið
sú að nú er verið að tala um
flutning ríkisstofnana frá
höfuðborgarsvæðinu og út á
land?
12.27 Auðólfur Gunnarsson
Hafa skal heldur það,
er sannara reynist
Íslendingar, sem fluttust til
Vesturheims á þessum tíma,
voru ekki aðeins að flýja fá-
tækt og erfið lífskjör, heldur
einnig misrétti og stétta-
skiptingu.
12.29 Jakob Ingi Jakobsson
Áhrif verðtryggingar á
afborganir heimilanna
lögbrot eða ekki lögbrot?
Engin leiðrétting né krafa
hefur komið fram um að far-
ið skuli að lögum við inn-
heimtu og útreikning af-
borgana þessara
verðtryggðu lána.
29.12 Sigurbjörn Þorkelsson
Ekki eins og hvert
annað ævintýri
Sagan sú er reyndar fyrir
mér ekki eins og hvert ann-
að ævintýri heldur sí-lifandi
og -gefandi staðreynd. Því
sannarlega getur raunveru-
leikinn oft verið hið mesta og besta æv-
intýri.