Morgunblaðið - 31.12.2014, Síða 49
UMRÆÐAN 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181www.innlit.is
Þekking • Þjónusta
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegs nýs árs og
farsældar á komandi ár
Hvern ætlar þú að gleðja í dag?
Augnáverkar
um áramót
Á Íslandi eru
augnslys ein aðal-
orsök varanlegrar
blindu hjá börnum.
Að meðaltali hafa
verið um tvö augns-
lys um hver áramót
og geta áverkarnir
verið allt frá smá-
vægilegum bruna á
augnlokum og yfir-
borði augans og yfir í
alvarlegustu áverka
þar sem augað hreinlega springur.
Af og til hafa komið miklar slysa-
hrinur þar sem margir ein-
staklingar hafa slasast. Slys vegna
flugelda verða á tímabilinu frá því
strax eftir jól og fram í janúar og
því segja tölur frá gamlárskvöldi
ekki alla söguna. Undanfarin ár
hafa orðið slys langt fram í janúar
þar sem börn hafa safnað púð-
urleifum og búið til sprengjur. Í
þessum tilfellum hafa börnin hlotið
misalvarlega áverka á augu,
brennst í andliti, á hálsi og á hönd-
um. Fórnarlömb augnslysa eru oft-
ast drengir eða ungir menn á aldr-
inum10-20 ára. Samkvæmt
íslenskum, sænskum og bandarísk-
um tölum eru hinir slösuðu í yfir
80% tilfella drengir eða ungir
menn, enda eru þeir öðrum skot-
glaðari eins og flestir vita. Aðrir
einstaklingar eru vitaskuld einnig í
hættu því nokkur hluti þeirra sem
slasast af völdum flugelda eru
áhorfendur þeirra. Áður fyrr urðu
mörg augnslys af blysum og kraft-
litlum flugeldum. Sum þessara
slysa voru alvarleg en með aukinni
notkun hlífðargleraugna hefur
þeim fækkað. Hins vegar sýna töl-
ur frá Augndeild Landspítala auk-
inn fjölda slysa vegna mjög kröft-
ugra flugelda og virðist sem
margir átti sig ekki á því hversu
öflugir flugeldarnir eru orðnir. Í
verstu slysunum vegna mjög kröft-
ugra flugelda hafa hlífðargleraugu
ekki mikið að segja og telja margir
að takmarka beri aðgang almenn-
ings að allra kröftugustu flugeld-
unum. Víða erlendis gilda mun
strangari reglur um meðhöndlun
flugelda og eru þá eingöngu fag-
menn sem skjóta kröftugum flug-
eldum. Í þessum löndum eru flug-
eldaslys mun fátíðari.
Augnáverkar af völdum flugelda
eru fyrst og fremst afleiðingar
höggsins sem verður þegar flug-
eldur hittir augað auk bruna af
völdum blysa. Þvermál flugelda er
lítið og því ver augnumgjörðin
ekki augað heldur tekur augað
sjálft höggið. Eins og áður greindi
getur áverkinn verið allt frá væg-
um bruna á augnlokum og yfir-
borði augans og til þess að augað
hreinlega springur. Slíkir alvar-
legir augnáverkar krefjast flókinna
og jafnvel endurtekinna skurð-
aðgerða. Í verstu tilfellum missir
fólk augað. Einnig eru
síðkomnar afleiðingar,
t.d. skýmyndun á
augasteini og gláka.
Varanleg sjónskerðing
vegna þessara slysa er
því miður of algeng.
Við getum hins vegar
gert ýmislegt til að
koma í veg fyrir slys-
in.
Pössum vel upp á
börnin og ung-
lingana okkar.
Flugeldar eru
ekki leikföng.
Ábyrgðin er hjá foreldrum.
Reynslan sýnir að það er að-
allega fólk undir tvítugu sem
verður fyrir þessum slysum.
Notum hlífðargleraugu. Allir
sem meðhöndla flugelda eða
eru áhorfendur ættu að nota
hlífðargleraugu. Einnig er
mikilvægt að nota hanska til
að koma í veg fyrir bruna á
höndum.
Lesum leiðbeiningar framleið-
enda og fylgjum þeim. Mjög
varasamt er að taka flugeld-
ana í sundur og safna púðrinu
saman. Margir alvarlegir
skaðar hafa hlotist af slíku.
Notum trygga undirstöðu fyr-
ir flugeldana og hafið hugfast
að gler- eða málmstandar sem
ætlaðir eru til annarra nota,
geta sprungið í tætlur.
Bogrum ekki yfir flugeldum
þegar þeim er skotið upp.
Hafa ber í huga að hiti sjóð-
andi vatns er 100°C en þegar
flugeldum er skotið upp gefa
þeir frá sér hita á bilinu 800-
1200°C.
Hellið vatni á og hendið flug-
eldum sem ekki hafa farið í
loftið. Slys verða oft með
þeim hætti að bograð er yfir
flugeldum eða blysi sem ekki
hefur skotist upp eða brunnið.
Áfengisneysla og flugeldar
fara illa saman.
Augnabliks óvarkárni og óvita-
skapur getur breytt lífi fólks ævi-
langt. Það er dapurleg upplifun
fyrir foreldra að horfa á barnið sitt
missa sjón á auga. Ég hvet alla til
þess að fylgjast vel með hvað
börnin okkar aðhafast þessa dag-
ana um leið og ég óska öllum
landsmönnum gleðiríkra og slysa-
lausra áramóta.
Eftir Maríu Soffíu
Gottfreðsdóttur
María Soffía
Gottfreðsdóttir
Höfundur er augnskurðlæknir á
augndeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss.
Slys Aðskotahlutur fjarlægður úr auga.Aðgerð Hér eru augnlæknar að störfum í augnaðgerð.
» Þrátt fyrir aukna
fræðslu og var-
úðarráðstafanir sýna
tölur frá Landspítala að
um hver áramót verða
slys í tengslum við flug-
elda.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.