Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Trúlofunarhringar
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn
Kæru landsmenn!
Óskum ykkur gleðilegra hátíðar
og farsældar á komandi ári
Á þessum síðasta degi ársins 2014
liggur fyrir sú staðreynd að ekki
hafa orðið eins fá banaslys í umferð-
inni frá því skráning þeirra hófst ár-
ið 1966. Á árinu 2014 létust samtals
fjórir einstaklingar í þremur bana-
slysum í umferðinni en það er tölvu-
vert minna en á síðustu tíu árum, en
þá létust að jafnaði sextán manns á
ári. Ástæður þessarar fækkunar eru
margar en án efa hafa aðgreiningar
á umferð til og frá höfuðborginni þar
mest að segja en enginn hefur t.d.
látist á tvöfaldri Reykjanesbraut í
rúm 10 ár en þar sáum við því miður
töluna fjóra til fimm árlega tíu árin
þar á undan.
Fyrir átta árum, í framhaldi af
fækkun banaslysa á Reykjanes-
braut í ekkert tvö ár í röð, skrifaði
undirritaður fyrst grein um mögu-
leika þess að Ísland yrði fyrsta land-
ið í heiminum án banaslysa í umferð-
inni á heilu ári. Þessu var fylgt eftir
með nokkrum greinum og síðan árið
2008 með metnaðarfullu
línuriti (mynd 1) sem við
hjá Félagi íslenskra bif-
reiðaeiganda birtum op-
inberlega með núllsýn
að markmiði sem myndi
nást þegar fyrir árið
2015. Og því markmiði
eigum við ennþá mögu-
leika á að ná, vissulega
með smá heppni, en með
sama hugarfari og á
árinu sem er nú að líða.
Við höfum á þessum
tímamótum ástæðu til
að fagna árangri en við höfum aldrei
verið nær þessu markmiði núllsýnar
en akkúrat núna. Á þessu ári hafa
fjórir einstaklingar látist, eins og áð-
ur var sagt, en þeir voru 32 árið
2004, svo dæmi sé tekið um stöðuna
fyrir tíu árum. Þennan einstaka ár-
angur getum við þakkað okkur sjálf-
um sem og þeim fjölmörgu sem tóku
undir þessa sýn FÍB ekki bara í orði
heldur í verki. Má þar nefna verk-
efni okkar með Euro Rap sem og
öflugt starf samgönguyfirvalda,
Samgöngustofu, Vegagerðarinnar,
lögreglu, heilbrigðisstarfsmanna og
hinna ýmsu bæjarfélaga svo ein-
hverjir séu nefndir.
Fyrir næstu tíu ár viljum við því
kynna nýja mynd fyrir Ísland og
hugtak sem ég vil kalla „núllstill-
ingu“ eða „Zero Tuning“ á ensku.
Við getum ekki á raunhæfan hátt
gert kröfu um að umferðarslys séu
ekki lengur hluti af okkar samfélagi
þó að einstök ár gætum við náð þess-
um mikla árangri. En við eigum
engu að síður að stefna að núllstill-
ingu um leið og slys
gerist. Þannig náum
við ekki aðeins einu
ári án banaslysa held-
ur getum við einnig
haldið áfram þessu
markmiði til fram-
tíðar þar sem bana-
slys í umferðinni eiga
ekki að vera viður-
kennd sem órjúfan-
legur hluti af sam-
félagi okkar.
Rétt er að taka
fram að þegar töl-
urnar lækka þarf ekki mikið til að
breyta myndinni og örfá slys geta
breytt fjölda látinna um tugi pró-
senta til hækkunar eða lækkunar.
En aðalatriðið er að banaslysum og
alvarlegum slysum er vissulega að
fækka hér á landi og hvert einasta líf
sem okkur tekst að bjarga er þess
virði. Við skulum því aldrei aftur líta
á banaslys í umferðinni sem eðlileg-
an fórnarkostnað – sá tími er löngu
liðinn.
Gleðilegt nýtt umferðarár.
Eftir Steinþór
Jónsson
» Á árinu 2014 létust
samtals fjórir ein-
staklingar í þremur
banaslysum í umferð-
inni en það er tölvuvert
minna en á síðustu tíu
árum.
Steinþór Jónsson
Höfundur er formaður FÍB.
Látnir í umferðarslysum 2000-2014
Áætlun 2012-2015
20
00
20
08
20
04
20
12
20
02
20
10
20
06
20
14
20
15
20
01
20
09
20
05
20
13
20
03
20
11
20
07
35
30
25
20
15
10
5
0
Núllsýn 2015 –
verðugt markmið
Morgunblaðið/Skapti
Fýlukall Að virða hámarkshraða er liður í að fækka umferðarslysum.