Morgunblaðið - 31.12.2014, Qupperneq 56
56 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Atvinnuauglýsingar
Hertex á Íslandi
Verkefnisstjóri
Second hand búðir
Hertex óskar eftir verkefnisstjóra í afleys-
ingar í eitt ár frá 1. mars 2015.
Við leitum að einstaklingi sem:
- hefur brennandi áhuga á umhverfismálum
og endurnýtingu hluta og fatnaðar.
- er kraftmikill og skapandi,
- hefur gott auga fyrir útstillingum og
vöruvali
- hefur góða samstarfseiginleika
Umsóknum með ferilskrá og kynningarbréfi
skal skilað til dorthea@herinn.is fyrir 15.
janúar 2015. Öllum umsækjendum verður
svarað.
Nánari upplýsingar veitir
Dorthea Høygaard Dam
í síma 8938858 eða á dorthea@herinn.is
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi skipi verður háð á skrif-
stofu sýslumannsins á Ísafirði að Hafnarstræti 1, Ísafirði:
Hamóna ÍS-36, sknr. 1695, þingl. eig. Hjalti Proppé Antonsson og
Harðfiskverkun Antons Proppé ehf., gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær
og Landsbankinn hf., þriðjudaginn 6. janúar 2015 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
30. desember 2014.
Una Þóra Magnúsdóttir, ftr. sýslumanns
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Sámsstaðaland, fnr. 211-7051, Dalabyggð, þingl. eig. Jófríður Anna
Eyjólfsdóttir og Guðmundur Ellertsson, gerðarbeiðendur Dalabyggð,
N1 hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 7. janúar
2015 kl. 10:45.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
30. desember 2014
Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri fullnustudeildar.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Áskot, fnr. 165263, ehl. gþ., Ásahreppur, þingl. eig. Jakob Sigurjón
Þórarinsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 6. janúar
2015 kl. 14.00.
Fossalda 4, fnr. 219-5890, Rangárþing ytra, þingl. eig. Ingibjörg
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Rangárþing ytra og Vátrygginga-
félag Íslands hf., þriðjudaginn 6. janúar 2015 kl. 13.15.
Þrúðvangur 34, fnr. 219-6244 (2246106), Rangárþing ytra, þingl. eig.
Amstur ehf., gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Rangárþing ytra og
Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 6. janúar 2015 kl. 13.00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
30. desember 2014.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Aðalgata 38, Suðureyri, fnr. 212-6736, þingl. eig. Leifur Blöndal,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 6. janúar 2015 kl. 11:30.
Hlíðarvegur 12, Suðureyri. fnr. 212-6803 , þingl. eig. Rúnar Karvel
Guðmundsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 6.
janúar 2015 kl. 11:45.
Túngata 13, Ísafirði, fnr. 212-0759, þingl. eig. Guðmundur Heiðar
Svanbergsson, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, þriðjudaginn 6. janúar
2015 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
30. desember 2014.
Una Þóra Magnúsdóttir, ftr. sýslumanns
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Finnastaðir 152594, jörð - jörð í byggð - Eyjafjarðarsveit, þingl. eig.
Ketill Helgason, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 7.
janúar 2015 kl. 14:00.
Furulundur 11B, íbúð 02-0101, (214-6398), Akureyri, þingl. eig. Birna
Jóna Hannesdóttir og Baldur Brjánsson, gerðarbeiðandi Lífeyris-
sjóður starfsmanna rík., miðvikudaginn 7. janúar 2015 kl. 10:15.
Höfðahlíð 2, einbýli 01-0101, (214-7990), Akureyri, þingl. eig. Erlingur
Örlygsson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Sýslumaðurinn á
Blönduósi og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 7. janúar
2015 kl. 10:00.
Litlu-Hámundarstaðir 152168 jörð, - jörð í byggð - Dalvíkurbyggð,
þingl. eig. Valdimar Þór Jónsson, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og
Sýslumaðurinn á Akureyri, fimmtudaginn 8. janúar 2015 kl. 11:00.
Stapasíða 21B, íb. 02-0101 (215-0789) Akureyri, þingl. eig. Grétar Þór
Eyþórsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 7. janúar
2015 kl. 10:30.
Steinahlíð 9, Viðarholt 01-0101, bílsk. 02-0101 (215-1134) Akureyri,
þingl. eig. Freydís Dana Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Arion banki
hf., miðvikudaginn 7. janúar 2015 kl. 10:45.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
30. desember 2014.
Halla Einarsdóttir, fulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Vesturgata 7 Föstudaginn 2. janúar kl. 13.30 söngstund
með Gylfa Gunnarssyni, kl. 14.30-16 dönsum út jólin við
lagaval Halldóru, Veislukaffi að hætti Brynju. Allir eru vel-
komnir. Starfsfólk Félagsmiðstöðvarinnar á Vesturgötu 7
óskar gestum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári, með kærri þökk fyrir árið sem er að líða.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund nýársdag kl.
14.00.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 517 0150
Vestfjarðabækurnar
standa fyrir sínu!
Þegar þú skilar glæpasögunum, eða
öðrum bókum, fáðu þér þá endilega
Vestfjarðabækur í staðinn.
Vestfirskir sjómenn og stjórnmála-
menn í blíðu og stríðu eru góð
blanda. Svo má nefna Hornstranda-
bækurnar þrjár, Frá Bjargtöngum að
Djúpi og Ýmislegt frá fyrri tímum eftir
Lýð Björnsson sagnfræðing. Ótrúlega
margt í þeirri bók.
Vestfirska forlagið
Bílar
Ný Ford Transit rúta. Hækkar um
milljón um áramótin við breytingu vsk
laga.
Ekki borga meira en þú þarft !
Drífa sig niður í Sparibíl og klára
málið !
Núna er verðið 5.990.000,- án vsk.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
✝ Louise GuðrúnPhillips fæddist
í San Francisco 26.
ágúst 1925. Hún
lést 21. ágúst 2014
á heimili dóttur
sinnar í San Franc-
isco-borg í Kali-
forníu.
Faðir Lovísu,
eins og hún var
jafnan kölluð af Ís-
lendingum, var Fil-
ippus Filippusson frá Gufunesi,
en móðir Helga Agnes Sigur-
jónsdóttir, fædd á
Lágafelli í Kjós en
ættuð úr Land-
sveit í Rangár-
þingi.
Eiginmaður
Lovísu var Robert
Otto Weiss. Börn
þeirra eru Helen,
Philip og James,
öll búsett í Banda-
ríkjunum.
Útför Lovísu fór
fram 26. ágúst 2014 í Banda-
ríkjunum.
Bandarísk merkiskona af ís-
lenskum ættum, Louise Guðrún
Phillips, lést úr krabbameini hinn
21. ágúst sl. á heimili dóttur sinnar,
Helen Diane Weiss, skammt fyrir
utan San Francisco-borg í Kali-
forníu.
Lovísa fæddist í San Francisco
26. ágúst 1925, og átti því fjóra
daga í 89 ár þegar hún lést. For-
eldrar hennar kynntust í þeirri
borg, en þá bjuggu þar allmargir
Íslendingar sem flust höfðu beint
þangað frá Íslandi eða fært sig um
set frá öðrum byggðum í Vestur-
heimi. Hún lærði hjúkrun og starf-
aði á ýmsum sjúkrahúsum þar
ytra, ekki síst við að hlúa að her-
mönnum sem komu heim af víg-
vellinum eftir síðari heimsstyrjöld-
ina, margir hverjir farnir að
andlegri heilsu og líkamlegri. Þar
vann hún þarft og óeigingjarnt
starf, og ef til vill hefur þessi
reynsla mótað hana, en hún var
kona ósérhlífin, einörð í skoðunum
og lét ekki sinn hlut fyrr en í fulla
hnefana. Hún fylgdist vel með
stjórnmálum í heimalandi sínu og
var mikil fylgismaður demókrata.
Hún var kona skarpgreind, víðsýn,
hreinlynd, og eins og afkomendur
hennar, talsmaður mannréttinda
til handa öllum þegnum samfélags-
ins. Það var eitur í hennar beinum
þegar hún sá einhvern órétti beitt-
an. Hún var orðhög og hafði, eins
og reyndar börn hennar, gaman af
orðaleikjum og alls kyns gáfug-
lensi.
Árið 1955 gekk hún að eiga Ro-
bert Otto Weiss. Hann var þýskur
gyðingur af efnuðu atgervisfólki
kominn en hrökklaðist frá Berlín
undan morðæði nasista á fjórða
áratug síðustu aldar. Robert nam
germönsk fræði og kenndi við
ýmsa háskóla í Bandaríkjunum og
fylgdust þau hjón jafnan að ásamt
börnum sínum, þeim Helen, Philip
og James, sem nú eru öll uppkomin
og fjölskyldufólk en nokkuð dreifð
um Bandaríkin eins og verða vill í
því víðfeðma landi.
Þótt örlögin hafi hagað því þann-
ig til að Lovísa kom ekki til Íslands
fyrr en hartnær sjötíu og fimm ára
að aldri og þá til að halda upp á af-
mælið sitt ásamt börnunum þrem-
ur, þá var hún mikill Íslendingur í
sér. Það leyndi sér ekki að hún var
stolt af ætterni sínu, enda hélt hún
til haga ýmsu sem minnti á „gamla
landið“, gömlum bókum, bréfum og
öðru lauslegu sem henni áskotnað-
ist frá foreldrunum. Þá mundi hún
vel nokkrar íslenskar vísur sem
hún hafði lært í æsku, og skildi
furðu margt sem við hana var sagt
á móðurmálinu, þótt ekki hefði hún
heyrt það lengi. Og ekki hafði hún
gleymt pönnukökum og kleinum,
en í samfélagi Íslendinganna í San
Francisco voru íslenskir matarsiðir
lengi í hávegum hafðir.
Lovísa var á leið til Íslands
ásamt börnum sínum og barna-
börnum þegar sá illvígi fjandi,
krabbameinið, lagði hana að velli.
Hún hafði undirbúið þá ferð lengi
og vel. Við vitum að afkomendur
hennar hafa fullan hug á því að
koma til Íslands með hækkandi sól
2015. Lovísa væri sæl að vita að
ekki slitnar sá strengur sem batt
hana við uppruna sinn og varð
henni æ mikilvægari með árunum.
Guðbrandur Gíslason.
Louise Guðrún
Phillips