Morgunblaðið - 31.12.2014, Qupperneq 58
58 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri og bæjar-fulltrúi á Akureyri, hefur lengi látið sig atvinnumál og sér-staklega samgöngumál varða. „Undirstaðan er góðar sam-
göngur, hvort sem er í lofti, láði eða á legi. Ég er t.a.m. annar af
formönnum Hjartans í Vatnsmýrinni en þau samtök berjast fyrir því
að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Staðan í þeim málum
hefur ekki þróast vel undanfarið en við erum ekkert hætt að berjast
fyrir flugvellinum.“ Eiginkona Njáls er Guðrún Gyða Hauksdóttir,
hjúkrunarfræðingur hjá Heilsuvernd, en þau eiga 15 ára brúð-
kaupsafmæli í dag. Synir þeirra eru Stefán Trausti 18 ára og
Patrekur Atli 13 ára.
Njáll Trausti ólst upp á Seltjarnarnesi og var nemandi í Mýrar-
húsaskóla, Valhúsaskóla og varð síðan stúdent frá MR. Fyrir áratug
útskrifaðist hann sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á
Akureyri.
Njáll Trausti hefur lengi haft gaman af því að ferðast og hefur
farið víða, m.a. til Kína, Hong Kong, Egyptalands, Dubaí og margoft
til Bandaríkjanna. „Ég var skiptinemi í Bandaríkjunum og þá hafði
lengi blundaði í mér að líta í kringum mig og læra af öðrum. Ég
ferðast líka mikið innanlands, er m.a. ættaður af Vestfjörðum og fór
í góða ferð þangað síðasta sumar og býst við að fara þangað aftur
næsta sumar. Með því að ferðast mikið um heiminn þá kann maður
betur að meta Ísland.“
Njáll hefur tekið þátt í alþjóðlegu samtökunum Round Table í 20
ár en þau eru félagsskapur ungra karlmanna, og hann var m.a. for-
seti Round Table á Íslandi. „En nú þarf ég að hætta í þeim því efri
aldursmörkin eru við 45 ára aldur.“
Njáll Trausti Friðbertsson er 45 ára í dag
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson
Flugumferðarstjórinn Njáll Trausti fyrir framan flugstöðina á
Akureyri síðastliðið vor með Súlutinda í baksýn.
Lætur sig góðar
samgöngur varða
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hjónin Magnúsína Ágústsdóttir og
Kristján Gunnar Ólafsson, Höfða-
vegi 33 í Vestmannaeyjum, fagna 50
ára brúðkaupsafmæli sínu í dag. Þau
munu verja deginum í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Elsa J. Elíasdóttir varð 70 ára 25. desember síðastliðinn.
Hún er gift Guðmundi Tómassyni. Þau hjónin áttu Hótel
Mælifell á Sauðárkróki um árabil. Hún á fjóra syni og ellefu
barnabörn og von er á fyrsta langömmubarninu. Þau hjónin
eru búsett á Sauðárkróki. Elsa er stödd á Kanaríeyjum.
Árnað heilla
70 ára
I
ngibjörg Sólrún fæddist í
Reykjavík 31.12. 1954 og
ólst þar upp. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MT 1974, BA-
prófi í sagnfræði og bók-
menntum frá HÍ 1979, var gestanemi
í sagnfræði við Kaupmannahafn-
arháskóla 1979-81 og stundaði cand-
.mag. nám í sagnfræði við HÍ 1981-
83.
Ingibjörg Sólrún stundaði ýmis al-
menn störf með námi frá 1974 og var
m.a. starfsmaður dönsku póstþjón-
ustunnar 1979-81. Hún var ritstjóri
tímaritsins Veru 1988-90 og sinnti
ýmsum ritstörfum og blaðamennsku
1990-91.
Í eldlínu stjórnmálanna
Ingibjörg Sólrún var einn af stofn-
endum Kvennaframboðs árið 1982 og
var borgarfulltrúi Kvennaframboðs í
Reykjavík 1982-86, Kvennalistans í
Reykjavík 1986-88, sat í borgarráði
1987-88, var borgarfulltrúi 1994-2005
og formaður borgarráðs og borgar-
stjóri 1994-2003. Hún var alþingis-
maður fyrir Samtök um kvennalista í
Reykjavík 1991-94, varaþingmaður
fyrir Samfylkinguna í Reykjavík
2003, 2004 og 2005, alþingismaður
Reykjavíkur norður fyrir Samfylk-
inguna 2005-2007 og í Reykjavík suð-
ur 2007-2009 og utanríkisráðherra
2007-2009. Hún var varaformaður
Samfylkingarinnar 2003-2005 og for-
maður 2005-2009.
Ingibjörg Sólrún var formaður
Stúdentaráðs HÍ 1977-78, sat í skipu-
lagsnefnd og félagsmálaráði Reykja-
víkurborgar, var formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykja-
víkur, sat í stjórn Landsvirkjunar,
var formaður miðborgarstjórnar,
formaður stjórnar Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins, í stjórn Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
formaður dómnefndar um skipulags-
samkeppni vegna Tónlistar- og ráð-
stefnuhúss 2001, formaður Aflvaka
frá 2002 og formaður hverfisráðs
miðborgar frá 2002. Hún sat á Alls-
herjarþingi Sþ. 1987, sat í þing-
mannanefnd EFTA/EES, sat í
stjórnarskrárnefnd, í utanríkis-
málanefnd Alþingis, félagsmála-
nefnd, heilbrigðis- og trygginga-
nefnd, efnahags- og viðskiptanefnd
og í Íslandsdeild þingmannanefndar
EFTA og sat í bankaráði Seðlabanka
Íslands um skeið frá 2003.
Ingibjörg Sólrún skrifaði bókina
Þegar sálin fer á kreik, minningar
Sigurveigar Guðmundsdóttur kenn-
ara, útg. 1991.
Sviptingar og nýr vettvangur
Það urðu óneitanlega mikil þátta-
skil á þínum starfsferli í kjölfar
hrunsins veturinn 2008-2009. Urðu
þau þáttaskil til góðs eða ills?
„Þegar á allt er litið urðu þau til
góðs fyrir mig þó að það hafi sann-
arlega ekki litið þannig út um tíma.
Bankahrunið var vissulega mikill
rússíbani fyrir okkur sem sátum í
ríkisstjórn á þeim tíma og í ofanálag
veiktist ég alvarlega. Allt leiddi þetta
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir svæðisstjóri UN WOMEN – 60 ára
Í afar mikilvægum verk-
efnum á framandi slóðum
Náttúrufegurð í stríðshrjáðu landi Ingibjörg Sólrún og Hjörleifur við Kargavatn í Kabul, höfuðborg Afganistan.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Desembertilboð
– á völdum postulínsborðbúnaði,
glösum og hnífapörum
Komdu
í verslu
n RV
og sjáð
u glæsil
egt
úrval af
borðbún
aði
RV
2014/11
Verslun RV er opin virka daga kl 8-18 og laugardaga kl 10 -16