Morgunblaðið - 31.12.2014, Page 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Villidýr á verði
tiger.is · facebook.com/tigericeland
Taktu mynd 1500,-
Sendum í póstkröfu.
S: 528 8200
Áramótaskaupið hefur verið sýnt í
Ríkissjónvarpinu frá því sjónvarps-
útsendingar hófust þar árið 1966.
Þátturinn tók við af áramótaþætti
Ríkisútvarpsins sem hafði verið
sendur út árlega á gamlársdag frá
árinu 1948. Í Áramótaskaupinu er
iðulega gert grín að því sem stóð
hvað helst upp úr á liðnu ári og fá
stjórnmálamenn, listamenn og aðr-
ir þjóðþekktir einstaklingar oft að
kenna á því.
Áhorf þáttarins er eitt það mesta
sem gerist í íslensku sjónvarpi.
Kannanir sýndu meðal annars fram
á að árið 2006 hefðu 93,3% þjóðar-
innar sest fyrir framan sjónvarpið á
gamlárskvöld og fylgst með þætt-
inum. Metið var þó sett árið 2002 en
þá horfðu 95,5% þjóðarinnar á þátt-
inn.
Auglýsingatími í kringum Ára-
mótaskaupið er jafnframt með dýr-
ustu auglýsingatímum ársins en
fyrirtæki borga þá oft fúlgu fjár til
að fanga athygli áhorfenda.
Grínhópur Umsjónarmenn Áramótaskaupsins 1985. Í aftari röð f.v. Örn
Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og Egill Eðvarðsson og í fremri röð Randver
Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson og Þórhallur Sigurðsson/Laddi.
Sjónvarpað frá 1966
Bandaríski
djassklarinettu-
leikarinn Buddy
DeFranco er lát-
inn, 91 árs að
aldri. DeFranco
lést á aðfanga-
dag á heimili
sínu í Flórída.
Hann var með
þekktustu
djasstónlistar-
mönnum Bandaríkjanna og lék á
ferli sínum m.a. með Frank Sin-
atra og Billie Holiday og var
sæmdur heiðurstitlinum Jazz
Master af National Endowment
for the Arts.
DeFranco stýrði Glenn Miller
Orchestra á árunum 1966-1974 og
lék með helstu djasstónlistar-
mönnum Bandaríkjanna, m.a. Art
Tatum, Dizzy Gillespie og Charlie
Parker.
Ferill hans spannaði 75 ár og
gaf hann út fjölda hljómplatna á
árunum 1952 til 2006.
DeFranco
látinn
Buddy
DeFranco
Stjörnukokkur-
inn Jamie Oliver
hefur upplýst að
hann hafi af-
þakkað hlutverk
sem hobbiti í
Hringadróttins-
sögu Peters
Jackson. BBC
greinir frá mál-
inu, en þar kem-
ur fram að Oliver hafi sagt frá
þessu í upptökum á nýrri sjónvarps-
þáttaseríu sem hefur göngu sína 2.
janúar nk. á Channel 4 í Bretlandi.
„Mig langaði til að vera með og
hefði smellpassað, en ég var fastur í
vinnu og gat ekki fengið mig laus-
an,“ segir Oliver. Haft er eftir hon-
um að leikstjóri myndarinnar, Pet-
er Jackson, hafi boðið honum
hlutverkið gegn því að hann
skryppi til Nýja-Sjálands árið 2001
og eldaði afmælismáltíð Jacksons
þegar hann fagnaði 50 ára afmæli
sínu.
Hefði getað
orðið hobbiti
Jamie Oliver
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við reynum bara að vera jafnvondar
við alla,“ segir Silja Hauksdóttir,
handritshöfundur og leikstjóri, en
hún stýrir áramótaskaupi RÚV þetta
árið en slíkt hið sama gerði hún árið
2008. Þetta er því í annað sinn sem
hún tekur verkefnið að sér en hún
hefur auk þess leikstýrt þáttaröðum
á borð við Ástríði, Stelpurnar og Rík-
ið.
„Þetta verður með áþekku sniði og
oft áður. Við reynum að tæpa á
mörgu og höfum það hugfast að hafa
efnið fyrir ólíka aldurshópa. Í heild-
ina er þetta bara hressleiki auk þess
sem það verður brostið í söng. Svo
verður einhver kjaftur,“ segir hún
sposk en hún þakkaði á dögunum
stjórnmálamönnum og velunnurum
þeirra fyrir að hafa verið iðnir við að
veita handritshöfundum áramóta-
skaupsins innblástur.
Kvenkyns handritshöfundar
„Við tökum það fyrir sem okkur
þykir hafa borið hæst úr pólitíkinni,
þar hefur verið talsvert drama á
árinu sem mér þykir mjög fyndið. Ég
veit þó ekki hvort það sé einhver sér-
stakur sem fær að kenna á því í ár
umfram aðra,“ segir Silja. Þess má
geta að allir handritshöfundar
skaupsins í ár eru kvenkyns og er það
aðeins í annað sinn sem það gerist en
það gerðist fyrst árið 1984.
„Hugmyndin kemur upphaflega
frá RÚV að hafa þennan fókus. Á
endanum er það þó bara þannig að
maður hefur maður í höndum bestu
grínhandritshöfunda sem völ er á hér
á landi að okkur finnst. Það vill bara
svo skemmtilega til að það eru kon-
ur,“ segir hún en þær sem koma að
því að skrifa verkið í ár eru Edda
Björgvinsdóttir, Anna Svava Knúts-
dóttir, Gagga Jónsdóttir, Katla Mar-
grét Þorgeirsdóttir, Signý Hauks-
dóttir og María Reyndal. Silja segir
þær búa yfir mikilli grínreynslu.
„Maður er að vinna með atburði
liðins árs þannig að þetta er skálduð
útgáfa af einhverskonar raunveru-
leika. Þetta er náttúrlega unnið fyrir
líðandi stund og er gert augnabliks-
ins vegna,“ segir hún um galdurinn á
bak við vinnuna en hún segir jafn-
framt að tíminn einn verði að leiða
það í ljós hvort grínið þetta árið muni
standast tímans tönn.
Náðu ekki að taka á öllu
„Það voru ótal hlutir sem við kom-
umst ekki yfir að þessu sinni. Við
settumst niður í upphafi skrifferlisins
í haust með um tvö hundruð atriði á
lista. Eftir því sem á árið hefur liðið
þá hefur sá listi breyst svolítið. Það
hefur komið inn aukið drama á ýms-
um sviðum sem við nýtum okkur.
Maður er pínu leiður yfir því að hafa
ekki náð þessu eða hinu,“ segir hún
en bætir við að vissulega sé skaupið
ekki annáll. Silja kveðst ekki tilbúin
til að segja frá því hver sér um tón-
listaratriðið í ár né leik en kveður þó
skaupsformúluna vera stutta sketsa í
bland við tónlist.
„Maður setur sig í öðruvísi gír þeg-
ar maður nálgast þetta,“ segir hún,
spurð að því hvort vinnuferlið sé ólíkt
því að leikstýra öðrum þáttum.
„Maður leiðir hugann meira að því
að markhópurinn er stærri og maður
þarf að skemmta ólíkum aðilum.
Markhópurinn er náttúrlega bara
eiginlega allir þeir sem eru vakandi,“
segir hún kímin.
Leikstjóri Silja er reynd en hún hefur til að mynda leikstýrt þáttaröðum á borð við Ástríði, Stelpurnar og Ríkið.
„Jafnvondar við alla“
Silja Hauksdóttir, leikstjóri áramótaskaups RÚV 2014, segir úr mörgu að velja
Hún segir jafnframt að dramað í pólítikinni á liðnu ári hafi verið mjög fyndið
Hundur? Stefnt er að því að hafa skaupið fyrir sem stærstan markhóp.