Morgunblaðið - 31.12.2014, Page 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
» Dúkkuheimili Henriks Ibsen, jóla-sýning Borgarleikhússins í þýðingu
Hrafnhildar Hagalín, var frumsýnt í
gærkvöldi. Unnur Ösp Stefánsdóttir
fer með hlutverk Nóru sem býr á
venjulegu heimili með eiginmanni sín-
um Þorvaldi og þremur börnum. Nóra
á sér leyndarmál sem enginn má kom-
ast að, allra síst Þorvaldur sem Hilmir
Snær Guðnason leikur.
Jólaleikrit Borgarleikhússins, Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen, var frumsýnt í gær við fögnuð gesta
Vinir Gísli Örn Garðarsson og Ingvar E. Sigurðarson hafa brallað margt saman í Vesturporti.
Bros María Ellingsen og Christopher Lund á frumsýningunni.
Gleði Rúnar Guðbrandsson og Birna Hafstein voru kampakát. Kát Ari Matthíasson, Katrín Oddsdóttir og Kristín Eysteins.
Leikhúsfeðgar Arnar Jónsson og Þorleifur Arnar Arnarsson.
Morgunblaðið/Golli
Leikarar Edda Björg Eyjólfsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson og Nína Dögg Filippusdóttir.
Sparibúin Kristján Hafliðason og Matthildur Hafliðadóttir.
Tenórarnir Kristján Jóhannsson,
Garðar Thór Cortes og Gissur Páll
Gissurarson fagna nýju ári með því
að blása til tónlistarveislu í Hörpu á
morgun, nýársdag, kl. 17, og 2. jan-
úar kl. 17 og 20 sem og í Menningar-
húsinu Hofi á Akureyri 3. janúar kl.
17 og 20. „Stórsöngvararnir þrír
kalla sig Óperudraugana og munu
flytja klassískar söngperlur frá ýms-
um tímum og óperuaríur við allra
hæfi,“ segir m.a. í tilkynningu frá
tónleikahöldurum.
Að sögn Gissurar Páls inniheldur
söngdagskráin margar af uppá-
haldsaríum tenóranna þriggja auk
klassískra sönglaga. Einnig megi
búast við að nokkur laga Kaldalóns
fái að hljóma sem og einhver söng-
leikjalög.
Morgunblaðið/Golli
Óperudraugarnir Tenórarnir Gissur Páll Gissurarson, Garðar Thór Cortes
og Kristján Jóhannsson syngja bæði sunnan og norðan heiða um áramótin.
Margföld tenórveisla
í Hörpu og Hofi
Boðið er upp á
hátíðartónlist
fyrir þrjá tromp-
eta, orgel og pák-
ur í dag, gamlárs-
dag, í Hallgríms-
kirkju kl. 17.
Trompetleikar-
arnir Ásgeir H.
Steingrímsson,
Eiríkur Örn Páls-
son og Einar St.
Jónsson, Eggert Pálsson pákuleik-
ari og Hörður Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju, flytja hátíðarverk
m.a. eftir Vivaldi, Purcell, Bach, Ze-
lenka og Albinoni.
„Þetta er í 22. sinn sem Listvina-
félag Hallgrímskirkju býður upp á
tónleika undir yfirskriftinni Hátíðar-
hljómar við áramót. Áramóta-
stemningin byrjar með hátíðar-
hljómum þeirra félaga, enda njóta
þessir tónleikar gríðarlegra vin-
sælda og hafa þeir leikið fyrir fullu
húsi á gamlárskvöld allt frá vígslu
Klais-orgelsins 1992. Lúðraþytur og
trumbusláttur hafa um aldir tengst
hátíðum. Fyrirmyndir þess má finna
í elstu sálmabók kirkjunnar, Saltar-
anum, þar sem Drottinn er lofaður
með bumbum og málmgjöllum.
Lúðraköll – fanfarar tengjast bæði
konunglegum lífvörðum og her-
kvaðningum af ýmsum toga og í
kirkjunni hafa þessi hljóðfæri m.a.
verið notuð þegar upprisu Krists er
fagnað á páskum og með dýrðarsöng
englanna á Betlehemsvöllum,“ segir
m.a. í tilkynningu.
Hörður
Áskelsson
Hátíðarhljóm-
ar við áramót Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 3/1 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Sun 4/1 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00
Lau 10/1 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00
Sun 11/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Fös 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 7/1 kl. 20:00 5.k. Fim 15/1 kl. 20:00 8.k.
Lau 3/1 kl. 20:00 3.k. Fim 8/1 kl. 20:00 6.k. Sun 18/1 kl. 20:00
Sun 4/1 kl. 20:00 4.k. Sun 11/1 kl. 20:00 7.k.
Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
Hundur í óskilum snúa aftur með nýja sýningu
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Mið 21/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi