Morgunblaðið - 31.12.2014, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Hinn andfélagslegi utan-garðsmaður Louis Blo-om (Jake Gyllenhaal)fellur fyrir starfi kvik-
myndatökumanna sem elta uppi
slys, morð, rán og annan óskapnað
í von um að geta selt upptökurnar
til sjónvarpsstöðva. Með siðleysið
og kvikmyndatökuvélina að vopni
klífur Bloom metorðastiga slíkra
næturmaðka.
Fyrirlitleg aðalpersóna
Sagan sjálf er auðmelt og fram-
vinda sögunnar línuleg. Handritið
heldur áhorfandanum einnig við
efnið þrátt fyrir að kvikmyndin sé
ekkert rosalega spennandi. Sam-
ræður kvikmyndarinnar eru misvel
skrifaðar og á stöku stað eru ein-
ræður ósannfærandi og illa fluttar,
til að mynda þegar Bloom ræðir
við Ninu Romina (Rene Russo) um
það hví hann vilji verða einn þess-
arra svokölluðu næturmaðka. Per-
sóna Gyllenhaal er ekki sér-
staklega sannfærandi þrátt fyrir
að honum takist vel að vekja and-
úð áhorfenda á henni, nokkuð sem
Dan Gilroy leggur greinilega upp
með, og á hann hrós skilið fyrir
það. Það er einnig gaman að sjá
aðalpersónu sem ekki er hetja
heldur brigðul og fyrirlitlegt grey.
Það er ágætis tilbreyting.
Lítið fer fyrir öðrum persónum
kvikmyndarinnar, að und-
anskildum Rick (Riz Ahmed) en
þess má til gamans geta að leik-
arinn breski hefur einnig gert
garðinn frægan sem rappari undir
yfirheitinu Riz MC. Kappinn er
sannfærandi í hlutverki sínu og
stendur öðrum aukaleikurum
framar. Hann er í það minnsta
færari leikari en rappari. Innkoma
Bill Paxton er ekkert sérstök en
hlutverk hans sem einhverskonar
óvinur Blooms fremur útvatnað.
Ágætis frumraun
Kvikmyndin setur stórt spurn-
igarmerki við siðleysi æsifrétta-
mennskunnar sem svífst einskis í
leit sinni að voveiflegum atburð-
um. Gagnrýnin er ágæt og er það
gefið í skyn að hugsunarháttur al-
múgans þurfi að breytast svo að
sambærileg störf þrífist ekki; það
sem eftirspurn er eftir mun selj-
ast.
Um er að ræða fyrstu kvikmynd
Dans Gilroy sem leikstjóra en
hann hefur áður skrifað handrit að
nokkrum kvikmyndum. Kvikmynd-
in er ágætis frumraun en margt er
þó frekar vont. Til að mynda eru
samklippur sem leikstjórinn beitir
fremur hallærislegar. Tónlistin er
að sama skapi leiðinleg og gerir
lítið til þess að ýta undir það and-
rúmsloft sem atriðin skapa. Sagan
er fremur endaslepp og nokkrar
flækjur sem virðast þurfa að leys-
ast til að lokaatriði hennar gangi
upp fá ekki næga athygli. Myndin
situr ekkert sérstaklega eftir að
áhorfi loknu en er þó ágætis hug-
vekja varðandi siðferði æsifrétta-
mennskunnar.
Með siðleysi og tökuvél að vopni
Tæpur Bloom svífst einskis í leit sinni að hörmungum en sjónvarpsstöðvar borga oft fúlgu fjár fyrir slík myndskeið.
Laugarásbíó
Nightcrawler bbmnn
Leikstjórn: Dan Gilroy. Handrit: Dan
Gilroy. Aðalhlutverk: Jake Gyllenhaal,
Rene Russo, Riz Ahmed og Bill Paxton.
117 mínútur. Bandaríkin, 2014.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
Leikkonan Angela Lansbury vílar
ekki fyrir sér að leika á sviði þó hún
sé orðin 89 ára. Hún mun á næst-
unni fara með hlutverk Madame
Arcati í gamanleiknum Blithe Spi-
rit eftir Noël Coward, fyrst í Los
Angeles, síðan í San Francisco, To-
ronto og loks Washington DC.
Lansbury lék sama hlutverk á West
End í London í mars sl. og á Broad-
way í New York árið 2009.
„Mér finnst afskaplega gaman að
leika þetta hlutverk,“ segir Lans-
bury um Arcati. Flestir tengja leik-
konuna við Jessicu Fletcher í sjón-
varpsþáttunum Murder She Wrote,
en Lansbury lék Fletcher á árunum
1984 til 1996. „Það var yndislegt að
leika þá konu, en hlutverkið krafð-
ist ekki neins leiklega séð af minni
hálfu. Hlutverk Arcati krefst á hinn
bóginn mjög mikillar hugmynda-
auðgi.“
Kraftmikil Angela Lansbury.
Fer senn á túr í
Bandaríkjunum
Gamanmyndin The Interview,
framleidd af fyrirtækinu Sony, er
orðin söluhæsta mynd fyrirtækisins
á netinu frá upphafi. Í myndinni
segir af tveimur sjónvarpsmönnum
sem boðið er að taka viðtal við leið-
toga Norður-Kóreu og er falið af
bandarísku leyniþjónustunni að
ráða hann af dögum. Tölvuþrjótar
brutust inn í tölvukerfi Sony 22.
nóvember sl. vegna myndarinnar
og hótuðu að fremja hryðjuverk í
Bandaríkjunum ef myndin yrði tek-
in til sýninga í kvikmyndahúsum
þar í landi. Myndin var engu að síð-
ur frumsýnd á jóladag í Bandaríkj-
unum í 330 kvikmyndahúsum og
sett í sölu á netinu. Þar hefur hún
rokselst og slegið met Sony hvað
varðar sölu á kvikmynd til niður-
hals á netinu. 27. desember var nið-
urhalið komið yfir tveggja milljóna
markið og sölutekjur um 15 millj-
ónir dollara sem er rúmur þriðj-
ungur framleiðslukostnaðar mynd-
arinnar.
Umdeild Kvikmyndin The Interview segir af sjónvarpsmönnum sem fá það
verkefni að myrða leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-un.
The Interview slær netsölumet hjá Sony
12
16
48
RAMMA
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
LOKAÐ GAMLÁRSDAG - OPIÐ NÝÁRSDAG
L
THE HOBBIT 3 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11
NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 2 - 5 - 8
BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 1:50
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
7
GLEÐILEG JÓL
SÝNINGARTÍMAR OG TILBOÐ GILDA FYRIR 1. JANÚAR