Morgunblaðið - 31.12.2014, Síða 68
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Aron varð fyrir líkamsárás
2. Lík í sjónum og brak úr vélinni
3. Taldi að landið væri öruggt
4.Fékk skjáskot af framhjáhaldinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Stjórn Tónlistarsjóðs Rótarý hefur
ákveðið að veita þeim Baldvin Odds-
syni og Sólveigu Steinþórsdóttur
Tónlistarverðlaun Rótarý 2015. Verð-
launin verða afhent á Stórtónleikum
Rótarý sem haldnir verða á sunnu-
daginn kemur, 4. janúar, í Hörpu.
Baldvin og Sólveig
hljóta verðlaunin
Á fimmtudag (nýársdagur) Norðaustan 8-13 m/s og snjókoma
nyrst, en annars hæg breytileg átt og stöku él. Frost 0 til 10 stig.
Á föstudag Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða él, en
hvessir og snjóar suðvestanlands um kvöldið. Frostlaust syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 8-13 og dálítil slydda eða rigning
sunnan- og vestanlands, en annars úrkomulítið. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
Jón Arnór Stefánsson og
samherjar hans í Unicaja
Malaga ljúka árinu 2014 í
toppsæti spænsku úrvals-
deildarinnar í körfuknatt-
leik. Malaga vann stórlið
Real Madrid 99:92 í fram-
lengdum spennuleik í
Malaga í gærkvöldi. Malaga
jók þar með forskot sitt á
toppnum en fjögur lið eru
fjórum stigum á eftir. Þar
á meðal eru Real og
Barcelona. »3
Sigur gegn stór-
liði Real Madrid
Guðmundur Árni Ólafsson er nýliði í
landsliðshópi Íslands í handknattleik
sem kom saman til æfinga í gær fyrir
heimsmeistaramótið í Katar. Hann
hefur spilað í dönsku úrvalsdeildinni í
hálft fjórða ár og er því kominn með
talsverða reynslu. „Ég ætla að sýna
hvað ég hef fram að bjóða í
þessum hóp. Það verður
síðan ákvörðun Arons
að velja þá leikmenn
sem hann telur að geti
best axlað þá ábyrgð
að leika undir hans
stjórn á HM,“ segir Guð-
mundur Árni. »4
Ætla að sýna hvað ég
hef fram að bjóða
„Aðstaðan sem við búum við núna er
mjög þröng, svo þetta verður svakaleg
breyting,“ sagði Halla Kari Hjaltested,
talsmaður fimleikadeildar Fjölnis, en fé-
lagið sér fram á að geta hafið æfingar í
nýju og glæsilegu fimleikahúsi frá og
með næsta hausti. Fjölnir hefur þurft að
vísa fjölda fólks frá undanfarin ár og
ætlar að tvöfalda iðkendafjölda sinn á
næstu árum eftir opnun hússins. »2-3
Gjörbreytt aðstaða
Fjölnis í fimleikum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Morgunblaðið kemur næst út
föstudaginn 2. janúar 2015.
Fréttavakt verður á fréttavef
Morgunblaðsins mbl.is yfir
áramótin, frá morgni til kvölds.
Lesendur eru hvattir til að
senda ábendingar um fréttir á
netfangið:
netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifenda
verður opið á gamlársdag frá
kl. 8-12. Það verður opnað á ný
föstudaginn 2. janúar kl. 7.
Sími þjónustuvers er 569-1122
og netfang askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónustan verður
opin á gamlársdag kl. 6-12.
Hún verður opnuð aftur 2. jan-
úar kl. 5. Netfang blaðbera-
þjónustu er bladberi@mbl.is
og símanúmerið er 569-1440.
Hægt er að bóka dánartilkynn-
ingar á mbl.is. Símanúmer
Morgunblaðsins er 569-1100 og
aðalnetfang blaðsins er
ritstjorn@mbl.is.
Fréttaþjón-
usta mbl.is
um áramótin
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Hreiðar Karlsson og Elín
Gestsdóttir hafa átt og rekið
Hundahótelið Leirum í Reykjavík
síðan 1994. „Það er alltaf yfirbókað
hjá okkur um jól og áramót,“ segir
Hreiðar um aðsóknina, en þau eru
með leyfi fyrir 48 hunda.
Hreiðar segir ljóst að fólk hafi
mikið að gera um jól og áramót.
Margir fari til útlanda á þessum
tíma og aðrir heimsæki vini og ætt-
ingja úti á landi. Hundaeign hafi
aukist mikið hérlendis undanfarin
ár og þegar fólk bregði sér af bæ sé
öruggast og þægilegast fyrir alla að
koma dýrunum fyrir á hundahóteli.
„Fólk hefur eðlilega áhyggjur af
hundunum sínum, því þetta eru
litlu börnin þess,“ segir Hreiðar og
bætir við að það skapi oft vandamál
að ferðast með hund. „Þegar hund-
urinn er hjá okkur þarf fólk ekki að
hafa áhyggjur af honum, því hérna
er hann í góðum höndum, leikur sér
og hefur það ágætt.“
Fólk sækir í öryggið
Eitthvað er um að hundaeig-
endur komi dýrum sínum fyrir á
hóteli til að verja þau fyrir áreitinu
sem fylgir flugeldum um áramót.
Hreiðar segir að fólk komi aftur og
aftur með hunda sína að fenginni
reynslu og þegar það fái sér nýjan
hund haldi það uppteknum hætti.
„Við erum með marga fastagesti,
því fólk sækir í öryggið,“
segir hann og leggur
áherslu á að fólk gefi
dýrum sínum ekki ró-
andi lyf um áramót.
Hreiðar segir að að-
sóknin hafi aukist jafnt
og þétt samfara fjölgun
hunda á höfuðborgarsvæð-
inu. Þau leggi enda mikið upp
úr að aðstaðan sé eins góð og
mögulegt sé og bendir á í því
sambandi að hann sé nánast að
breyta hótelinu frá grunni til að
fullnægja öllum kröfum nýlegrar
reglugerðar Matvælastofnunar.
„Ég er að byggja við og breyta
nánast öllu, stækka búr og fleira,
og það kemur til með að kosta mig
um sex milljónir króna að uppfylla
öll skilyrði,“ segir hann.
Á hundahótelinu eru nær allar
stærðir og tegundir hunda. Hreiðar
segir mjög mismunandi hvað hund-
arnir séu lengi hverju sinni. Sumir
séu í marga mánuði, jafnvel ár,
fyrst og fremst vegna þess að eig-
endurnir standi í byggingum eða
flutningum eða séu erlendis um
lengri tíma. „Ég hætti í vel launaðri
vinnu til þess að fara í hundana, er
afi allra hundanna hérna og það er
betra að þeir séu hjá afa sínum en í
einhverri óvissu.“
Hreiðar afi allra hundanna
Fullt á Hunda-
hótelinu Leirum
um áramótin
Morgunblaðið/RAX
Hundahótelið Leirum Hundarnir eru ýmist í eins eða tveggja hunda rýmum með sér garði og taka vel á móti gestum.
Dýr eru almennt hrædd við blossana af flugeldunum og sprenging-
arnar. Þess vegna mæla dýralæknar með því að halda dýrum inni um
áramót, vera hjá þeim og veita þeim stuðning.
Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir segir mikilvægt að hafa
dýrin í taumi, sé farið með þau út. Verði dýrin yfirspennt vegna
álagsins þurfi í sumum tilfellum að gefa þeim kvíðastillandi lyf.
Ekki hafi gefist vel að gefa þeim róandi lyf, því þau hafi
slævt dýrin, sem hafi áfram skynjað allt áreitið. Með-
ferðin sé einstaklingsbundin en aðalatriðið sé að hafa
dýrin hjá sér en ekki fela þau. „Númer eitt, tvö og þrjú
er að veita dýrunum stuðning,“ segir hún. Bætir við að
kettir fari oft afsíðis en hundar sæki í stuðning hjá
manninum. Best sé að halda hestum inni og gott að
hafa ljós hjá þeim til þess að minnka áhrif glampa frá
flugeldum.
Styðja dýrin og vera með þeim
MIKILVÆGT AÐ HALDA DÝRUM INNI Í SKJÓLI FRÁ FLUGELDUM
Hreiðar
Karlsson