Fréttablaðið - 15.06.2015, Blaðsíða 12
15. júní 2015 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 12
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
www.renault.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
8
2
8
1
*M
ið
að
v
ið
u
p
p
g
ef
na
r
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
d
a
um
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
b
lö
nd
uð
um
a
ks
tr
i
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð: 2.491.935 kr. án vsk.
3.090.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 4,2 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL
Verð frá: 3.379.387 kr. án vsk.
4.190.000 kr. m. vsk.
Eyðsla frá 5,9 l/100 km*
RENAULT MASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá: 4.104.839 kr. án vsk.
5.090.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
ÞÚ TANKAR SJALDNAR
Á RENAULT SENDIBÍL
Nú hafa verið sett lög á
verkföll BHM og hjúkr-
unarfræðinga. Það gæti
í fljótu bragði virst vera
lausn á bráðum vanda
sem skapast hefur á
sjúkrahúsum landsins, en
til lengri tíma litið er ekki
um lausn að ræða. Hvers
vegna ekki? Lykilorðin
eru jafnrétti, jafnræði og
virðing fyrir menntun.
Stjórnvöldum ber að
minnka kynbundinn
launamun. Krafa hjúkrunar-
fræðinga er að fá sambærileg
laun og sambærilegar karlastétt-
ir. Hjúkrunarfræðingar meta
að fjögurra ára háskóla-
nám þeirra skili aðeins
um 80 prósentum af þeim
launum sem hefðbundin
karlastétt með hliðstæða
menntun aflar. Á 100 ára
afmæli kosningaréttar
kvenna og 40 ára afmæli
kvennafrídagsins ætlar
ríkisstjórnin því að festa
enn frekar í sessi kyn-
bundinn launamun.
Á stjórnvöldum hvíl-
ir sú skylda að semja við
opinbera starfsmenn og stuðla
að ábyrgum kjarasamningum á
almennum vinnumarkaði sem
stuðla að stöðugleika. Á rúmu ári
hefur ríkisstjórnin hins vegar
klúðrað samningum við eigin við-
semjendur og beitt lögum á verk-
föll fimm sinnum.
Þegar ríkisstjórnin veitti lækn-
um einum bætur fyrir gengisfell-
ingu krónunnar hófst hruna dans
sem aldrei gat annað en farið illa.
Við getum ekki veitt fámennum
hópi forréttindastöðu en látið
fjöldann bera tjónið af krónunni.
Ef krónan er svona frábær eiga
allir að geta búið við afleiðing-
ar gengisfellingar hennar – líka
læknar. Ef launastefna ríkis-
stjórnarinnar er svo handahófs-
kennd að þjóðfélagið þolir ekki
að samið sé með sama hætti við
hjúkrunarfræðinga og BHM er
rétt að ríkis stjórnin segi það bara
hreint út. Almenningur situr uppi
með afleiðingarnar sem eru fólks-
flótti úr opinberum störfum og
veikara heilbrigðiskerfi.
Stjórnvöld eiga að virða mennt-
un til launa. Við viljum vera skap-
andi og nútímalegt samfélag og
við leggjum áherslu á menntun.
Því fylgir að skapa þarf störf
við hæfi og greiða laun sem gera
menntun þess virði að sækja.
Forgangsverkefni stjórnvalda
á að vera uppbygging á öflugri
opinberri þjónustu sem býður
starfsfólki sambærileg kjör og í
nágrannalöndunum og almenn-
ingi sömu gæði. Við viljum fjöl-
breytni í atvinnulífinu og fá hlut
í arði af auðlindum landsins til að
létta skattbyrði venjulegs fólks.
Það var loforð Samfylkingar-
innar fyrir síðustu kosningar og
það verða verkefni nýrrar ríkis-
stjórnar.
Þess vegna er betra að semja
Afnám hafta er farið af
stað. Ítarleg útfærsla á
aðgerðunum var kynnt
þann 8. júní síðastliðinn
og óhætt að segja að við-
brögðin við þeirri kynn-
ingu hafi verið mikil og
góð. Allt frá árinu 2009
hefur Framsóknarflokk-
urinn barist fyrir hags-
munum almennings og
þjóðarinnar í heild. Þar
hefur réttlæti og sann-
girni spilað stórt hlutverk
hjá flokknum. Eftir að síð-
asta ríkisstjórn tilkynnti að meira
ætti ekki að gera fyrir heimilin í
landinu var nóg komið. Sigmundur
Davíð talaði alltaf um að svigrúm
myndi skapast við afnám hafta
og að leita þyrfti allra leiða til að
hámarka það svigrúm, almenningi
og þjóðinni til heilla.
Framsóknarfólk fékk
svo sannar lega að heyra
það í aðdraganda síðustu
kosninga, bæði þegar
talað var um leiðréttingu
á skuldum heimilanna og
glímuna við kröfuhafa
föllnu bankanna. Ýmis
orð voru notuð, sem ekki
verða höfð hér eftir, til að
lýsa því hversu fráleitur
málflutningur flokksins
var. Nú hefur það heldur
betur komið í ljós að full
innistæða var fyrir lof-
orðum Framsóknarflokksins. Það
hefur flokkurinn einfaldlega sýnt
í framkvæmd það sem af er kjör-
tímabilinu.
Málflutningurinn skýr frá upphafi
Sigmundur Davíð, formaður Fram-
sóknarflokksins, mætti í þáttinn
Forystusætið á RÚV fyrir kosn-
ingarnar 2013. Þar spurðu frétta-
menn hann ítrekað hvernig Fram-
sóknarflokkurinn gæti leyft sér
að tala með allt öðrum hætti en
aðrir flokkar sem í framboði voru
til þings, með öðrum hætti en fjöl-
margir sérfræðingar, fræðimenn
og aðrir og lofa einhverju sem ekki
væri fast í hendi. Þar svaraði for-
maðurinn því til að málið væri í
raun og veru mjög einfalt og skýrt.
Ríkið hefði öll þau tæki sem þyrfti
til að ná fram þeirri niðurstöðu sem
væri ásættanleg fyrir Ísland.
Næst sagði annar fréttamaður
þáttarins formanninn vera að lofa
því að á næstu fjórum árum myndi
þetta svigrúm skapast, upp á 300
milljarða króna. Fréttamennirnir
sögðu aðra flokka ekki hafa talað
með þetta afdráttarlausum hætti
eins og Framsóknarflokkurinn
gerði á þessum tíma. Sigmundur
Davíð sagði að ef menn hefðu vilj-
ann og væru fastir fyrir, hefði ríkið
öll þau tæki sem þyrfti til þess að
þrýsta enn frekar á samninga.
Þessi málflutningur Framsóknar-
flokksins fyrir kosningar 2013 er
nákvæmlega í takt við þá leið sem
nú hefur verið boðuð af ríkisstjórn-
inni við afnám hafta, orð hans fyrir
tveimur árum lýsa einmitt því sem
er að eiga sér stað með áætlun
ríkis stjórnarinnar í dag.
Höldum áfram veginn
Gjaldþrot bankanna þriggja á
Íslandi var eitt það stærsta í heim-
inum. Ríkissjóður hefur verið
gríðar lega skuldsettur frá efna-
hagshruni og hefur sú staða haml-
að ýmsum mikilvægum fram-
kvæmdum. Nauðsynlegt er að
nota fjármunina til að greiða niður
skuldir við Seðlabanka Íslands
og ríkið. Slík niðurgreiðsla gæti
lækkað skuldir ríkisins um tugi
prósenta og jafnframt sparað rík-
inu vaxtagreiðslur um tugi millj-
arða á ári. Það sjá allir að þeim
fjármunum er betur varið í aðra
hluti. Með þessum aðgerðum er
verið að tryggja hagsmuni almenn-
ings á Íslandi til framtíðar. Til
hamingju með áfangann!
Vilji og staðfesta
FJÁRMÁL
Sigurður Ingi
Jóhannsson
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra
KJARAMÁL
Árni Páll
Árnason
formaður
Samfylkingarinnar
➜ Ýmis orð voru notuð, sem
ekki verða höfð hér eftir, til
að lýsa því hversu fráleitur
málfl utningur fl okksins
var. Nú hefur það heldur
betur komið í ljós að full
innistæða var fyrir loforðum
Framsóknarfl okksins.
➜ Á stjórnvöldum hvílir
sú skylda að semja við
opinbera starfsmenn og
stuðla að ábyrgum kjara-
samningum á almennum
vinnumarkaði sem stuðla að
stöðugleika.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-B
8
0
C
1
6
2
B
-B
6
D
0
1
6
2
B
-B
5
9
4
1
6
2
B
-B
4
5
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K