Fréttablaðið - 15.06.2015, Síða 10

Fréttablaðið - 15.06.2015, Síða 10
15. júní 2015 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Fróðlegt er að fylgjast með endurskoðun á viðhorfum hagfræðinga seinustu misserin. Þar hefur hæst borið metsölubók franska hagfræðingsins Thomas Piketty sem grein- ir m.a. forsendur þess að ójöfnuður hefur aukist í heiminum öllum og bendir á að hag- fræðin geti ekki verið í tómarúmi, innan hagfræðinnar þurfi að taka tillit til sam- félagsins, félagsfræðilegra þátta og ytri aðstæðna. Nýlega voru birtar niðurstöður rann- sóknar fræðimanna við Cambridge-háskóla um efnahagslegar afleiðingar stjórnar- stefnu Margrétar Thatcher sem gegndi embætti forsætisráðherra í Bretlandi á níunda áratug 20. aldar. Thatcher var eins og kunnugt er merkisberi nýfrjálshyggj- unnar; réðst í stórfellda einkavæðingu ríkisstofnana, dró úr regluverki í kringum fjármálamarkaðinn og lækkaði skatta, ekki síst á hina efnameiri. Allt var þetta gert að sögn til að auka hagvöxt og verðmætasköp- un en samkvæmt þessari nýju rannsókn skilaði stjórnarstefna Thatcher ekki þeim árangri sem henni var ætlað. Í stuttu máli jókst ójöfnuður á Bretlands- eyjum, atvinnuleysi jókst en vöxtur og framleiðni jukust mun hægar en þau höfðu gert áratugina á undan. Frjálshyggju- aðferðir á borð við lækkun á tollum og sköttum, frjálst flæði verkafólks, skerðingu á stöðu verkalýðsfélaga, einkavæðingu og rýmra regluverk fyrir viðskiptalífið skil- uðu ekki árangri í aukinni landsframleiðslu miðað við áratugina á undan. Fræðimenn- irnir sem standa að rannsókninni benda á að talsmenn nýfrjálshyggjunnar verði að geta sýnt fram á að stefnan hafi í raun skil- að meiri velsæld og vexti en raunin hefði orðið með annars konar stefnu. Þessi rann- sókn bendir til þess að árangur nýfrjáls- hyggjunnar sé í raun aukinn ójöfnuður, meira atvinnuleysi og minni vöxtur og vel- sæld. Margir íslenskir stjórnmálamenn og jafnvel heilu ungliðahreyfingarnar sitja samt enn fastar í blindri trú á þessar sömu aðfarir en er ekki kominn tími til að endur- skoða þær meðal annars með tilliti til breyttra sjónarmiða í hagfræði? Ef ríkis- stjórnin vill hafa almannahag að leiðar ljósi þarf að styðjast við gögn og staðreyndir – ekki aðeins hugmyndafræðilega kenni- setningu. Því miður virðist núverandi ríkis- stjórn föst í kviksyndinu; boðar einkavæð- ingu, skattalækkanir og beitir lagasetningu á verkföll í stað þess að byggja upp heil- brigt samband við verkalýðshreyfinguna sem byggist á gagnkvæmri virðingu. Þetta lofar ekki góðu. Skilar ekki árangri ef keypt eru 10 stk. – annars 50 kr. stk. 40 Veldu einhverja 10 ávexti á ávaxtamarkaði Krónunnar og þú borgar... STJÓRNMÁL Katrín Jakobs- dóttir formaður VG Þ að fer lítið fyrir sáttinni í samfélaginu þessa dagana. Konur brjóta af sér hlekki feðraveldis, ofbeldis og for- dóma. Heilu stéttirnar berjast fyrir réttlátum launum fyrir menntun sína, sérþekkingu og erfiði. Sjúklingar bíða í óvissu um viðeigandi heilbrigðisúrræði. Fimmtíu þúsund Íslendingar mótmæla fiskveiðifrumvarpi sjávarútvegsráðherra. Afkoma og hagsmunir aldraðra og öryrkja virðast eiga að liggja óbætt hjá garði og svo mætti lengi telja. Við slíkar aðstæður hafa baráttukonur og -menn víða góðan málstað að verja og margur fer mikinn. Því miður er þó oft svo að í almennri umræðu fer oft mest fyrir þeim sem hafa hæst og eru glaðastir til yfirlýsinga, fullyrð- inga og aðdróttana um það sem þeim finnst standa þeirra ágæta málstað einna helst fyrir þrifum. Þetta blessaða og kappsfulla baráttufólk virðist aldrei hafa hug- leitt þau ágætu varnaðarorð að kapp er best með forsjá, heldur fer fram með fullyrðingum og aðdróttunum um stéttir, manneskjur og málefni. Allt í nafni þess að það hafi svo góðan málstað að verja. Engu að síður tekst þessu ágæta fólki oft að vinna málstað sínum meira tjón en gagn. Það virðist ítrekað rugla saman fullyrðingum og staðreyndum, ályktunum og sannindum og svo mætti áfram til telja. Kappið hefur völdin en lítið fer fyrir almennri forsjá og tillitssemi við þær manneskjur sem mögulega verða fyrir aurskriðunni án þess að hafa til þess unnið. Það er nefnilega svo að hjúkrunarfræðingar, þingmenn, ráðherrar, sjómenn, háskólamenntaðir, aldraðir og öryrkjar eiga það öll sameiginlegt að vera manneskjur og af því skyldu orðin miðast. Án undantekninga. En þegar svo er ekki og kappið er haft að leiðarljósi láta við- brögðin sjaldnast á sér standa og umræðan er komin út í skítkast og skæting um menn og málefni, engum til gagns en kannski einhverj- um til gamans. Verði þeim að góðu. Reyndar gefst kappsfullu baráttátufólki sem og reiðum ráða- mönnum, sem hafa látið falla einhverjar kjánalegar fullyrðingar í hita leiksins, oft tækifæri til þess að koma umræðunni aftur til betri vegar. En til þess þarf að gera það sem virðist vera óhugsandi í íslenskri umræðu: Að biðjast afsökunar. Fátt eitt getur nefnilega aukið á virðingu manneskju jafn mikið og það að biðjast afsökunar. Því öllum verður okkur á og öll höfum við rangt fyrir okkur af og til. Að viðurkenna vitleysuna í okkur er eitt það besta sem við getum gert fyrir okkur sjálf sem og þann mál- stað sem við viljum koma á framfæri. Flest erum við meira að segja alin upp við að læra að biðja aðra afsökunar. Segja fyrirgefðu við þá sem við komum illa fram við eða af frekju og yfirgangi. Takast í hendur, horfast í augu og biðjast fyrirgefningar og halda svo áfram með lífið. Engu að síður virðist mörgum slík afsökunarbeiðni vera hin versta ófærð og kjósa frekar að kenna öðrum um eða draga fram hinar ólíklegustu afsakanir og réttlætingar. Fyrir vikið herða margir á skítkastinu og ósættið er algert. Það er því óskandi að allt það ágæta fólk sem tjáir sig mikið um menn og málefni reyni nú að finna hjá sér léttinn yfir því að gangast við eigin vitleysu og frelsunina sem er fólgin í fyrirgefningunni. Því sanngirnin er sátta móðir eins og stendur einhvers staðar og það er nú ekki nema sanngjarnt að maður fái að hafa rangt fyrir sér af og til og á þessum orðum er því hér með beðist afsökunar. Lítið fer fyrir sátt í íslensku samfélagi: Afsökunarbeiðni Forvirkar aðgerðir Alþingi samþykkti á laugardag frum- varp ríkisstjórnarinnar um lög á verkfall nokkurra aðildarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Að setja lög á verkfall er neyðarúrræði og nægir í því samhengi að vísa til orða Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráð- herra frá því áður en lögin komu fram um að á meðan líf væri í viðræðum yrðu ekki sett lög á verkfall. Þess vegna er athyglisvert að ásamt því að setja lög á þau aðildarfélög BHM sem sannarlega eru í verkfalli ákvað ríkisstjórnin og meirihluti Alþingis að skella líka lögum á félög sem eru alls ekkert í verkfalli. Það er erfitt að láta ívitnuð orð ráðherranna ríma við það, nema þeir séu forvitrar svo spakir að þeir viti að ekkert líf muni verða í þeim viðræðum þegar þar að kemur og þetta séu forvirkar aðgerðir. Ein örlítil mistök lagfærð Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti á laugardag álit meirihluta allsherjar- og mennta- málanefndar, en þar gegnir hún for- mennsku. Hún tilkynnti að ein breyting yrði gerð á frumvarpinu– og héldu þá margir að þá ætti kannski að hætta við að taka verkfallsrétt af félögum sem ekki eru í verkfalli. Óekki. Orðunum „Félagsráðgjafafélag Íslands“ var bætt við á eftir orðinu „Fræðagarður“. Gott mál, en það félag er reyndar ekki í verkfalli en er nú fórnarlamb forvirku aðgerðanna. Fjarvera rifjuð upp Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gerði því skóna, í umræðum um lögin, að ríkisvaldið hefði stefnt að þessu marki. Slíka ásökun þarf alltaf að skoða í pólitísku ljósi, en Össur rifjaði upp athyglis- verða hluti: „Við skulum bara rifja það upp að þegar deilan hófst við BHM þá var hæstvirtur fjármálaráðherra ekki einu sinni staddur á landinu. Formaður samninganefndar, hann var staddur í Mjanmar. Sjálfur ríkissáttasemjari lýsti því yfir opinberlega í fyrsta skipti á sínum ferli að það þýddi ekkert að kalla saman fundi vegna þess að ríkisvaldið hefði ekkert fram að færa.“ kolbeinn@frettabladid.is 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 C -6 9 C C 1 6 2 C -6 8 9 0 1 6 2 C -6 7 5 4 1 6 2 C -6 6 1 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.