Fréttablaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 12
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
loKsins aftuR sumAr...íS
ÍSinn Sem færiR þéR sumaRið er kOminn aftur. ekTa rjóMaís
Með kókOs, áStaraLdini, mangó og súKkulaðIdropUm.
BANDARÍKIN Donald Trump nýtur
mests fylgis meðal spænskumæl-
andi kjósenda af þeim sem sækj-
ast eftir útnefningu Repúblik-
anaflokksins í Bandaríkjunum
til forsetaframboðs að því er ný
könnun Public Policy Polling leið-
ir í ljós.
Forskot Trumps er ekki mikið.
Alls sögðust 34 prósent spænsku-
mælandi kjósenda geta hugsað sér
að kjósa hann en 31 prósent sagðist
hugsa sér að kjósa Jeb Bush, einn
keppinauta Trumps.
Þá kemst Trump ekki nærri
tölum Hillary Clinton, eins fram-
bjóðenda demókrata, en 61 pró-
sent spænskumælandi kjósenda
sagðist geta hugsað sér að kjósa
hana.
„Það særði mig að heyra ein-
hvern tala á svona grófan máta,“
sagði Jeb Bush á þriðjudagskvöld
í viðtali hjá sjónvarpsstöðinni
MSNBC og vísaði þar til ummæla
Trumps, sem sagði mexíkósk
yfirvöld senda nauðgara og aðra
glæpamenn til Bandaríkjanna.
Donald Trump hefur haldið því
fram frá því ummælin féllu að
hann myndi njóta mikils fylgis
spænskumælandi Bandaríkja-
manna.
Athygli vakti að viðtalið
við Bush fór eingöngu fram á
spænsku en Bush talar málið
reiprennandi eftir að hafa flust
sautján ára að aldri til Mexíkó þar
sem hann kenndi börnum ensku. Í
landinu kynntist hann svo eigin-
konu sinni, hinni mexíkósku Col-
umba Bush. - þea
Auðjöfurinn er vinsælli en aðrir repúblikanar hjá rómönskum en kemst hvergi nærri Hillary Clinton:
Bush sár út í Trump sem nýtur mests fylgis
NEPAL Hindúar í Nepal munu ekki
lengur fórna dýrum í tonnavís til
heiðurs gyðjunni Gadhimai á hátíð
sem hefur farið fram á fimm ára
fresti undanfarin 300 ár. Að þess-
ari ákvörðun komst stjórn muster-
is Gadhimai í Nepal í gær.
„Stundin til að skipta út drápum
og ofbeldi fyrir friðsamlega til-
beiðslu og fögnuð er runnin upp,“
sagði talsmaður musterisins í gær.
Musterið stendur í borginni Bariy-
arpur, 160 kílómetrum sunnan við
höfuðborgina Katmandú.
Uxum, geitum, kjúklingum og
fleiri dýrum hefur verið slátrað á
undanförnum hátíðum. Á síðustu
hátíð, árið 2014, var um 250.000
dýrum slátrað. Árið 2009 slátruðu
hátíðargestir um 500.000 dýrum
til heiðurs Gadhimai. Flest dýrin
voru afhöfðuð. - þea
Nepalar munu ekki lengur fórna til heiðurs gyðju:
Hlífa 500.000 dýrum
HÁTÍÐ Hingað til hafa hindúar sem tilbiðja gyðjuna Gadhimai slátrað hundruðum
þúsunda dýra á fimm ára fresti í Nepal. NORDICPHOTOS/AFP
UMDEILDUR Donald Trump mælist
með mest fylgi spænskumælandi kjós-
enda meðal repúblikana. NORDICPHOTOS/AFP
GRIKKLAND Alexis Tsipras, for-
sætisráðherra Grikklands, hefur
varað þingmenn Syriza, sem
hann gegnir formennsku í, við
því að mögulega muni hann boða
til annarra kosninga til að losna
við uppreisnarseggi úr flokknum.
Nokkrir flokksmenn kusu gegn
frumvörpum hans sem sett voru
fram til að greiða fyrir viðræð-
um um nýja neyðaraðstoð fyrir
Grikkland.
Tsipras sagðist neyddur til
að boða til kosninga nyti hann
ekki meirihluta á þinginu í gær.
Hann sagðist enn fremur vilja sjá
neyðar aðstoðarsamning kláraðan
á meðan hann gegndi embætti. - þea
Forsætisráðherra í viðtali:
Alexis Tsipras
hótar kosningum
HÓTUN Nokkrir flokksmanna Alexis
Tsipras styðja hann ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
FRAKKLAND Rannsakað er hvort
flugvélarbrak sem fannst á
frönsku eyjunni Réunion í Ind-
landshafi í gær sé hluti vélar
Malaysia Airlines, MH370, sem
hvarf yfir Indlandshafi í mars
í fyrra. Brakið er hluti af væng
sams konar vélar og MH370.
Flugöryggisstofnun Frakk-
lands segir unnið að því að finna
rannsóknarstofu við hæfi. Búist
er við því að nokkrar vikur taki
að skera úr um hvort brakið sé úr
fyrrnefndri flugvél. - þea
Týnd flugvél kannski fundin:
Fundu brak á
franskri eyju
TYRKLAND „Áætlunin um örugga
svæðið er ætluð til að stöðva Kúrda
en ekki Íslamska ríkið (ISIS). Tyrk-
ir ættu að vinna með Kúrdum til að
bola Íslamska ríkinu burt,“ sagði
Selahattin Demirtas, formaður
flokks Kúrda á tyrkneska þinginu,
við BBC í gær.
„Aukið samstarf verður nú á
landamærasvæðinu og aukinni
orku verður varið í samstarfið,“
sagði John Kirby, talsmaður utan-
ríkisráðuneytis Bandaríkjanna,
en Bandaríkjastjórn og ríkisstjórn
Tyrklands vinna nú að áætlun sem
sögð er miða að því að bola Íslamska
ríkinu burt frá landamærum Tyrk-
lands og Sýrlands.
Íslamska ríkið fer nú með völdin á
90 kílómetra landræmu á svæðinu.
Á öðrum hlutum landamæranna
fara YPG, hersveitir verkamanna-
flokks Kúrda (PYD) í Sýrlandi, með
völdin. YPG hafa nýverið sakað
Tyrki, sem vinna með þeim í bar-
áttunni gegn Íslamska ríkinu, um
að skjóta sig í bakið. Tyrkir blönd-
uðu sér nýverið í baráttuna við
Íslamska ríkið eftir árásir þess á
Tyrkland, meðal annars á bæinn
Suruc, nálægt landamærunum.
YPG og PYD eru nátengd Verka-
mannaflokki Kúrda í Tyrklandi,
PKK, sem Tyrkir gerðu ólöglegan á
sínum tíma. Tyrkir varpa um þess-
ar mundir sprengjum á bæði PKK
og Íslamska ríkið úr lofti en PKK
berjast einnig við Íslamska ríkið.
Tyrkneska ríkisstjórnin lýsti
því yfir í vikunni að árásir PKK á
Tyrki gerðu friðarviðræður milli
aðila ómögulegar, en deilur PKK
og Tyrkja hafa stigmagnast undan-
farnar vikur. Tyrkir líta bæði á Ísl-
amska ríkið og PKK sem hryðju-
verkasamtök.
„Það er ómögulegt að ræða um
frið við þá sem ógna þjóðaröryggi
okkar og bræðralagi,“ sagði Recep
Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands,
um PKK.
„Tyrkneska ríkisstjórnin óttast
stofnun sjálfstæðs ríkis Kúrda á
svæði sem nú tilheyrir Sýrlandi,“
sagði Demirtas. Hann bætti því
við að Erdogan, forseti Tyrklands,
myndi aldrei leyfa því að gerast og
myndi reyna að koma í veg fyrir
stofnun ríkisins. Sama hvað nauð-
synlegar aðgerðir kostuðu.
thorgnyr@frettabladid.is
Formaður segir Tyrki ætla
að ráðast á Kúrda í Sýrlandi
Formaður flokks Kúrda á Tyrkjaþingi gagnrýnir áform um að bola ISIS burt frá landamærunum við Sýrland.
Tyrkir sagðir nota stríðið gegn ISIS til að fela árásir á Kúrda. Kúrdar stýra núna stórum hluta landamæranna.
Tyrk-
neska ríkis-
stjórnin
óttast stofnun
sjálfstæðs
ríkis Kúrda á
svæði sem nú
tilheyrir Sýrlandi.
Selahattin Demirtas, formaður flokks
Kúrda á tyrkneska þinginu.
STRÍÐSÁSTAND Þessir liðsmenn hernaðararms Verkamannaflokks Kúrda berjast
gegn óeirðalögreglu í Tyrklandi. NORDICPHOTOS/AFP
2
9
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
8
-C
5
3
C
1
5
9
8
-C
4
0
0
1
5
9
8
-C
2
C
4
1
5
9
8
-C
1
8
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K