Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 30

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 30
Maraþon FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 20152 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, jonatan@365.is, s. 512-5446 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson. „Þegar við vorum plataðir í þetta verkefni í fyrra var það í fyrsta skipti sem sumir félagar mínir í hljómsveitinni létu sér detta í hug að hlaupa tíu kílómetra. Ég hafði hlaupið fjórum sinnum áður og vissi að ég gæti þetta en það var gaman að sjá hvernig hinir svitn- uðu og héldu að þeir gætu þetta aldrei. Nema náttúrlega Björgvin söngvari sem var knattspyrnu- maður í Danmörku í mörg ár og það tók hann enga stund að koma sér í góðan gír. Hann ætlar heilt maraþon núna,“ segir Þráinn, sem lagði stund á körfubolta á unglingsárum en hafði aldrei æft sig neitt að ráði fyrir Reykjavíkur- maraþon áður. „Ég bara mætti og hljóp. Nema einu sinni þegar ég undirbjó mig eitthvað aðeins og þá náði ég mínum versta tíma.“ Skálmöld var með einkaþjálfara, Stefán Magnússon, framkvæmda- stjóra Eistnaflugs, og sá hann um að þeir slægju ekki slöku við. „Við hlupum meðal annars mikið á og í kringum Eistnaflugshelgina með honum og við vorum með prógramm sem hann útbjó. Það hentaði mér mjög vel að einhver segði mér hvað ég ætti að gera. Ég mæli með því.“ Eitt af því mikilvægasta í hlaupaundirbúningi að mati Þrá- ins er að setja saman tónlista til að hlusta á í hlaupinu. „Ég kort- lagði hlaupið alveg þannig að þegar ég var alveg að deyja, sem ég vissi að myndi gerast á ákveðn- um tímapunkti, var ég með mjög kraftmikið þungarokk til að koma mér yfir þann hjalla. Svo var plan- ið að ég væri að hlaupa þetta á undir klukkustund og að lagið I know how to die með Motor- head myndi f leyta mér síðustu metrana yfir marklínuna og það stóðst.“ Þráinn segist hafa séð þegar nokkuð var liðið á hlaupið að hann myndi hafa það af og það hafi hleypt kappi í kinn. „Þegar það voru tveir kílómetrar eftir sá ég að ég myndi ná þessu og þá gaf ég í og setti persónulegt met. En ég var líka alveg dauður utan í næsta ljósastaur á eftir. Þetta var minn langbesti tími og ég var gríðarlega stoltur. Og náttúr- lega rústaði öllum hinum í band- inu. Það var mjög gott að vinna fé- laga mína í Skálmöld, alla nema Björgvin, sem ég get ekkert verið að böggast í.“ Þráinn tekur ekki þátt í Reykja- víkurmaraþoninu í ár þótt hann hafi hlaupið heilmikið það sem af er sumri. „Ég hef tekið þátt í hinum ýmsu hlaupum undanfar- in ár en ekki í sumar þó að ég sé í fínasta hlaupaformi núna. Það hefur verið mikil spilamennska og svo vil ég eiga tíma með fjöl- skyldunni líka. Ég fylgist með Maraþonmæðgunum í sumar og hef gríðarlega gaman af því. Ég hleyp um það bil þrjá kílómetra annan hvern dag og það geri ég bara af því mér líður miklu betur af því. Þetta er ofboðslega hress- andi og þegar maður er að fara til dæmis á tónleikaferðalög skiptir miklu máli að vera í betra formi en maður er í venjulega. Það sem kom mér mest á óvart var að ég þarf ekkert endilega að fara rosa- lega langt til að fá eitthvað út úr því. Það skiptir meira máli að fá góða þjálfun en að pína líkam- ann þangað til hann getur ekki meira. Að því leyti hefur þessi geðveiki síðasta sumar margborg- að sig.“ Talandi um tónleikaferða- lög þá segir Þráinn mikilvægt að hafa hlaupaskóna meðferðis. „Við vorum á tveggja mánaða ferðalagi síðasta haust og bílstjórinn okkar er mikill íþróttajaxl sem ferðast um með lóð og sippubönd og útbýr líkamsræktarstöð þar sem rútan stoppar. Hann fór með mig út að hlaupa nokkrum sinnum á ferða- laginu og það bjargaði lífi mínu.“ Það og hlaupaskórnir, náttúrlega. „Ég keypti mér mjög góða hlaupa- skó fyrir mörgum árum. Og það er það gáfulegasta sem ég hef gert. Góðir skór eru eins og góður gítar, skipta öllu máli.“ Góðir skór eru eins og góður gítar Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari var, ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Skálmöld, fulltrúi Íslandsbanka í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra. Hann hleypur reglulega enda nauðsynlegt að vera í góðu formi á löngum tónleikaferðalögum. Spennan magnast rétt fyrir hlaupið enda eins gott að standa sig eftir mikla auglýsinga- herferð vikurnar á undan. Þráinn fylgist með Reykjavíkurmaraþoninu 2014 taka af stað ásamt Flex, hljóðmeistara Skálmaldar. BETRI NÆRING HREIN GÆÐI EINSTÖK VIRKNI Vítamín og bætiefni sem næringarþerapistar mæla með. Fæst í öllum helstu apótekum og heilsuvörubúðum Solaray Ísland á Facebook REIKNAÐU DÆMIÐ á 365.is 365.is Sími 1817 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 8 -B B 5 C 1 5 9 8 -B A 2 0 1 5 9 8 -B 8 E 4 1 5 9 8 -B 7 A 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.