Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 58

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 58
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 38 Hvað ef ég hefði dæmt víti upp úr þurru sem enginn hefði skilið neitt í? Hvernig ætla menn að snúa sér í því? Þorvaldur Árnason dómari FÓTBOLTI „Ég man ekkert eftir þessum leik. Ég man ekki einu sinni eftir því að hafa verið á KR- vellinum,“ segir dómarinn Þor- valdur Árnason en hann fékk heilahristing í leik KR og Breiða- bliks á mánudag. „Það síðasta sem ég man fyrir leik var að hafa stoppað á bens- ínstöð á leið minni á leikinn. Þar fékk ég mér orkudrykk. Næst man ég eftir mér um miðnæturleytið á sjúkrahúsinu. Þegar ég kom upp á spítala gat ég sagt nafnið mitt en meira var það ekki. Ég mundi ekki einu sinni hvaða ár var.“ Óskiljanlegt að ég hafi dæmt Atvikið átti sér stað á 32. mín- útu leiksins en þrátt fyrir heila- hristinginn kláraði hann að dæma fyrri hálfleikinn og fórst það vel úr hendi. „Það er óskiljanlegt svona eftir á að hyggja að ég hafi getað dæmt síðasta korterið. Mér skilst að ég hafi gefið gult spjald sem ég man ekkert eftir. Mér finnst það ótrú- legt að ég hafi getað dæmt þessar mínútur,“ segir Þorvaldur en það á sér víst eðlilegar skýringar. „Sjúkraflutningamennirnir sögðu að þegar púlsinn er svona hátt uppi nái maður að halda söns- um. Um leið og hann dettur niður þá koma afleiðingarnar í ljós eins og gerðist þegar ég blés til hálf- leiks.“ Kastaði upp inni í klefa Þorvaldi var orðið óglatt áður en hann blés fyrri hálfleikinn af og hann var ekki fjarri því að kasta upp á leið sinni til búningsher- bergja. „Ég var kominn með æluna upp í kok en ég náði inn á salerni áður en ég ældi. Svo datt ég í ruglið inni í klefanum. Ég spurði strák- ana hvaða kæruleysi þetta væri að við værum ekki farnir í sturtu. Ég hélt að leikurinn væri búinn í hálf- leik. Ég spurði svo hvernig leikur- inn hefði farið. Þó svo ég sé skrít- inn að eðlisfari þá var ég orðinn enn undarlegri þarna,“ segir Þor- valdur og hlær við en hann er afar léttur yfir þessu öllu. „Það er oft talað um að menn sem eru í dómgæslu séu ruglað- ir en þetta var kannski aðeins of mikið. Það er kostur á KR-vellin- um að þar er bráðatæknir. Hann skoðaði mig og hringdi í kjölfarið á sjúkrabíl.“ Dómarinn á að taka því rólega næstu tvær vikurnar. Má helst ekkert hreyfa sig. Eftir þessar tvær vikur verður hann svo skoð- aður aftur. „Ég verð nú að hryggja ykkur með því að það eru allar líkur á því að ég dæmi meira í sumar,“ segir Þorvaldur og hlær sem fyrr. Þó svo hann taki óhappinu vel er þetta nokkuð alvarlegt mál. Hann meiddist og engum datt í hug að grípa inn í og athuga hvort það væri í lagi með hann. „Það eru mjög sterkar verklags- reglur í fótboltanum um hvernig við eigum að snúa okkur ef leik- maður verður fyrir höfuðmeiðslum. Það gleymdist að hugsa fyrir slíku hjá dómurum,“ segir Þorvaldur og bendir á að það sé í raun lukka að leikurinn hafi ekki farið í tómt rugl með hann í þessu ástandi. Þarf að skoða verklagsreglurnar „Hvað ef gula spjaldið sem ég gaf hefði verið algjörlega út úr korti? Hvað á að gera í því? Hvað ef ég hefði dæmt víti upp úr þurru sem enginn hefði skilið neitt í? Hvernig ætla menn að snúa sér í því? Þetta hlýtur að vera eitthvað sem menn verða að skoða núna.“ Ekki er vitað til þess að annar dómari í heiminum hafi dæmt leik með heilahristing eins og Þorvald- ur. „Þetta vekur mann til umhugs- unar um hvað skuli gera í þessum málum. Hver á að taka ákvörðun um að stöðva leikinn þegar dóm- arinn er ekki í neinu ástandi til þess að stöðva hann sjálfur? Hver á að meta þetta og taka í taumana? Þetta þarf að skoða úti um allan heim.“ henry@frettabladid.is Ég hélt að leikurinn væri búinn í hálfl eik Þorvaldur Árnason man ekki eft ir því að hafa komið á KR-völlinn á mánudag. Hann dæmdi fyrri hálfl eikinn og fékk heilahristing. Hann ætlaði að fara í sturtu í hálfl eik. Ekkert verklag er til um hvað skal gera ef dómari fær höfuðhögg. GULA SPJALDIÐ Þorvaldur lyftir hér gulu spjaldi skömmu eftir að hann meidd ist. Sjá má að honum líður ekki vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MEÐ ÆLUNA UPP Í KOK Þorvaldi varð mjög bumbult á leið til búningsherbergja eins og sjá má. Mátti litlu muna að hann kastaði upp inni á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI KR tekur á móti ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Róðurinn verður þungur fyrir Eyjamenn sem litu ekki vel út gegn Stjörnunni í Pepsi-deildinni um helgina. Verður þetta fjórða árið í röð sem þessi lið mætast á einhverjum tímapunkti í bikarnum og í fimmta sinn á síðustu sex árum. Í þessum fjórum tilraunum hefur ÍBV ekki tekist að sigra KR en allir leikirnir hafa farið fram á Hásteinsvelli þar sem Eyjamenn eru hvað sterkastir. Eyjamenn verða því að hysja upp um sig buxurnar ætli þeir sér að stríða KR-ingunum sem eru á góðum skriði. Hefur KR ekki tapað leik gegn íslenskum andstæðingi frá 3-0 tapinu á Vodafone-vellinum í upphafi júní. Virðist bikarkeppnin henta KR-ingum sérstaklega vel en KR hefur komist í bikarúrslitaleikinn fjórum sinnum á síðustu fimm árum og orðið bikar- meistari í þrjú skipti af fjórum. Þá hefur KR ekki tapað á heima- velli í bikarnum frá árinu 2007 en sá sigur Vals kom í Frostaskjólinu eftir vítaspyrnukeppni. Síðasta liðið til að slá út KR í venjulegum leiktíma í Frostaskjólinu í bikarnum var einnig Valur í 2-1 sigri Vals árið 2005. - kpt Fellur ÍBV út gegn KR fj órða árið í röð? ALLT ER ÞEGAR FERNT ER? Tekst ÍBV loksins að vinna KR? FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FIMMTUDAG KL. 18:00 365.is Sími 1817 KR–ÍBV UNDANÚRSLIT! Strákarnir hans Bjarna Guðjóns í KR fá ÍBV í heimsókn í undan- úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Það getur allt gerst í bikarnum og bæði lið ætla að fara alla leið. FÓTBOLTI Valsmenn tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik Borgunarbikars karla eftir sigur á 1. deildar liði KA eftir vítaspyrnukeppni á Akureyrarvelli. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2005 sem Valur kemst í bikarúrslit. KA-menn, sem höfðu slegið út Pepsi-deildarlið Breiðabliks og Fjölnis á leið sinni í undanúrslitin, komust yfir strax á 6. mínútu þegar Elfar Árni Aðalsteins- son skoraði úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Valur jafnaði metin á 23. mínútu með marki Orra Sigurðar Ómarssonar. Fleiri urðu mörkin ekki og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar nýttu Valsmenn allar sínar fimm spyrnur en Ingvar Þór Kale varði spyrnu Josips Serdarusic, leikmanns KA. Það var varamaðurinn Emil Atl- ason sem tryggði Valsmönnum sigurinn þegar hann skoraði úr síðustu spyrnu þeirra. - iþs Valur í bikarúrslit í fyrsta sinn í 10 ár SPORT 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 8 -D 8 F C 1 5 9 8 -D 7 C 0 1 5 9 8 -D 6 8 4 1 5 9 8 -D 5 4 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.