Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 36

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGMaraþon FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 20158 Vörurnar frá Sólgæti eru fyrir sælkera á öllum aldri sem vilja gera vel við sig,“ segir Signý S. Skúladóttir, mark- aðsstjóri Heilsu. Hún segir gæði og hreinleika einkenna Sólgæti en yfirskrift þess er „heilnæmt og náttúrulegt, ljómandi gott“. Miðinn á umbúðunum minnir jafnframt á náttúruna og upp- runann. Heilsa ehf. hefur að sögn Sig- nýjar lengi verið í fararbroddi í innflutningi á lífrænni matvöru og f lutt inn fjölbreytt úrval af kornvöru, hrísgrjónum, hnetum, fræjum, baunum, þurrkuðum ávöxtum og ýmiss konar berj- um. „Við val á hráefni er lögð rík áhersla á gæði og hefur stærsti hluti varanna fengið lífræna vottun. Þær vörur sem eru með vottun eru merktar sem slíkar. Þær vörur sem ekki eru lífræn- ar eru 100% náttúrulegar,“ upp- lýsir Signý. Allar vörur í matvörulínu Sólgætis eru merktar með upp- runalandi. „Neytendur geta því séð hvaðan varan kemur en mikil áhersla er lögð á rekjan- leika og öryggi. Vörunum er pak kað hjá samstarfsaðila Heilsu í Bretlandi sem sérhæf- ir sig í pökkun á þurrvöru og er starfsemin vottuð af Soil Associ- ation, einum virtasta vottunar- aðila á lífrænum matvælum,“ segir Signý. Hún bendir jafn- framt á að hjá Heilsu sé Sólgæti ávallt geymt í kæli til þess að vörurnar haldist sem ferskastar. Sólgæti stuðlar að heilsusamlegu lífi Þurrvörulína Heilsu ehf. hefur fengið nýtt nafn og heitir nú Sólgæti. Sem fyrr er markmið Heilsu að bjóða hágæðahráefni sem stuðlar að heilbrigði og heilsusamlegu lífi ásamt því að gera matargerðina enn skemmtilegri. Allar vörur í matvörulínu Sólgætis eru merktar með upprunalandi. Neytendur geta því séð hvaðan varan kemur og er mikil áhersla lögð á rekjanleika og öryggi. MYNDIR/ANDRI MARÍNÓ Rík áhersla er lögð á gæði hráefna og hefur stærsti hluti varanna fengið lífræna vottun. Vörunum er pakkað hjá samstarfsaðila Heilsu í Bretlandi sem sérhæfir sig í pökkun á þurrvöru og er starfsemin vottuð af Soil Associ- ation, einum virtasta vottunaraðila á lífrænum matvælum. Vörurnar frá Sólgæti eru hollar og góðar fyrir sælkera á öllum aldri sem vilja gera vel við sig. Líttu í kringum þig í næstu verslun. Þú kemur eflaust auga á eitthvað ljómandi gott. H E I L N Æ M T O G N Á T T Ú R U L E G T LJÓMANDI GOTT solgaeti.isheilsa.is 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 8 -C 0 4 C 1 5 9 8 -B F 1 0 1 5 9 8 -B D D 4 1 5 9 8 -B C 9 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.