Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 48

Fréttablaðið - 30.07.2015, Side 48
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28 FIMMTUDAGUR Viltu vita hvað eignin þín hefur hækkað í verði ? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Frítt verðmat og framúrskarandi þjónusta í þína þágu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 30. JÚLÍ 2015 Tónleikar 12.00 Eyþór Franzson Wechner leikur verk eftir César Franck og Gustav Adolf Merkel á Klais-Orgel á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju. Miðaverð er 2.000 krónur. 17.00 Tónleikarnir Perlur íslenskra sönglaga í Kaldalónssal Hörpu. Listrænn stjórnandi tónleikanna er óperusöngv- arinn Bjarni Thor Kristinsson. Miðaverð er 4.200 krónur. 20.00 Kammerhópurinn Nordic Affect flytur barokktónlist á Sumartónleikum í Skálholtskirkju undir yfirskriftinni HÚN/SHE: Louise, Denise og kompaní. Flutt verða verk eftir nokkra af fremstu nótnariturum Frakklands á fyrri hluta 18. aldar og á efnisskránni eru verk eftir Madame Leclair, Mademoiselle Noel og Mademoiselle Bertin. Aðgangur ókeypis en tekið við frjálsum fram- lögum. 20.00 Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble kemur fram í Leikfimihús- inu á Hvanneyri í kvöld. Flutt verður klassísk tónlist í bland við dægurlög. Miðaverð er 2.500 krónur. 21.00 Sturla Atlas hitar upp fyrir Inni- púkann á Hlemmur Square í kvöld. 21.00 Hljómsveitin Johnny and the Rest spilar á Dillon í kvöld. Hljómsveitin Baby It’s Only You hitar upp. Miðaverð er 500 krónur. 21.00 Hljómsveitin Útidúr heldur tónleika í Mengi í kvöld. Hún er í þann mund að klára sína þriðju plötu og hefur verið starfandi í sex ár. Miðaverð er 2.000 krónur. 21.00 Hljómsveitin Fjólurnar hitar upp fyrir Magnús R. Einarsson og félaga á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir spilar á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Miðaverð er 3.500 krónur. 22.00 Hljómsveitirnar Krupskaya, Mannvirki og 0 spila á Gauknum í kvöld og hita upp fyrir Norðanpaunk. Miða- verð er 500 krónur og húsið verður opnað klukkan 21.00. 22.00 Magnús R. Einarsson og félagar halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. Sýningar 11.00 Expo-skálinn í Hörpu verður opinn í dag en þar er sýnd 15 mínútna löng íslensk mynd þar sem íslenskri náttúru er varpað á fjórar hliðar og loft skálans og myndar tening utan um gesti. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og er myndin sýnd á hálftíma fresti en síðasta sýning er klukkan 17.30. Uppákomur 15.00 Viðburðurinn Hálf ertu heilagur andi, hálf ertu mold– mótsögnin í ljóðum Davíðs fer fram í Davíðshúsi á Akureyri. Fjallað verður um heildina og mótsögnina í ljóðum og lífi skáldsins. Umsjón með dagskránni hefur Valgerð- ur H. Bjarnadóttir, húsfreyja í Davíðs- húsi. Aðgangsgjald 1.200 krónur. 17.00 Sirkus Íslands sýnir á Siglufirði í kvöld. Í kvöld verður fjölskyldusýningin Heima er best sýnd en hún hentar öllum krökkum frá fimm ára aldri. Notast er við íslenska tónlist. Miðaverð er 3.500 krónur. 20.00 Spilakvöld í Spilavinum á Suður- landsbraut í kvöld. Ekkert kostar að taka þátt og spila en spilað verður á margs konar borðum og ýmis spil dreg- in fram en einnig er frjálst að koma með eigin spil. Börn 12. ára og eldri eru velkomin í fylgd með foreldrum. Tónlist 20.00 Trúbadorinn Matti verður á American Bar í kvöld. 20.00 Dj Gay Lation Man þeytir skífum á Prikinu í kvöld. 20.00 Trúbadorarnir Hjálmar og Dagur verða á English Pub í kvöld. 20.00 Dj Óli Dóri þeytir skífum á Bravó í kvöld. 21.00 Dj Ragga þeytir skífum á Frederiksen Ale House í kvöld. 21.00 Dj Vala þeytir skífum á Lebowski Bar í kvöld. 21.00 Dj Styrmir Dansson þeytir skífum á BarAnanas í kvöld. 23.00 Páll Óskar treður upp á Húkk- araballinu í Vestmanna- eyjum. Miðaverð er 1.500 krónur. Útivist 20.00 Kvöldganga Borgar- sögusafns Reykjavíkur fer frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 í kvöld. Revíur og rómantík verða í aðalhlutverki og Sveinn Enok Jóhannsson söngvari leiðir gönguna ásamt Gunnari Ó. Kvaran harmonikkuleikara og mun sagnfræðingurinn Helga Maureen Gylfadóttir krydda með sögulegum fróleik. Gert er ráð fyrir að gangan taki um 90 mínútur, aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Opnanir 17.00 Sýningin Væntanlegt / Coming soon verður opnuð í Núllinu í dag. Rýmið er staðsett í gamla almennings- salerninu í Bankastræti, kvennamegin og hefur Nýlistasafnið ásamt Reykja- víkurborg umbreytt því í sýningarrými. Listamennirnir sem sýna í Núllinu eru þau Brynjar Helgason, Ívar Glói Gunn- arsson, Logi Leó Gunnarsson og Una Björg Magnúsdóttir og stendur sýningin til 30. ágúst. 17.00 Margeir Dire opnar sýninguna Milljón sögur í Gallery Orange, Ármúla 6, í kvöld. Margeir spreyjar glugga gall- erísins með kalki og útbýr gluggalist en Margeir skapar oft listaverk með skamman líftíma. Rafdúettinn Vaginaboys spilar og boðið verður upp á léttar veitingar. 18.00 Sýningin Man in the Antropocene með verkum eftir listamanninn Rustan Söderling verður opnuð í Harbinger, Freyjugötu 1, í kvöld. My Brother Is Pale var stofnuð árið 2009 af hollenska lagasmiðn- um Matthijs van Issum. „Ég er mjög spenntur, ég hóf þetta sólóverkefni árið 2008 þegar ég bjó enn í Hollandi. Þegar ég kom til Íslands byrjaði ég að semja tónlist og planið var að gefa út plötu árið 2009 en það plan gekk ekki alveg upp,“ segir Matthijs og hlær. Sveitin gekk í gegnum tals- verðar mannabreytingar til árs- ins 2013 og í kjölfar þeirra þró- aðist og breyttist hljómur hennar en sveitin hóf upptökur á sinni fyrstu plötu, sem kemur út í byrj- un september og ber nafnið Batt- ery Low, árið 2013 og gaf í kjölfar- ið út smáskífu en í upptökuferlinu umbreyttist lagalisti plötunnar og sveitin samdi nýtt efni. „Það er platan sem kemur út í september og ég get ekki beðið eftir að hún komi út,“ segir hann glaður í bragði. Í dag kemur út smáskífan Fields / I Forgot, endurhljóðblönd- un af upprunalega laginu eftir tónlistarmanninn Tonik og einn- ig myndband við lagið en það er fyrsta smáskífan af þessari fyrstu breiðskífu sveitarinnar sem kemur einungis út á stafrænu formi á öllum helstu tónlistarveitum en sveitin er þegar farin að huga að efni á aðra plötu sína. Meðlimir My Brother Is Pale eru þeir Atli Valur Jóhannsson, Ást- valdur Axel Þórisson, Emil Svav- arsson, Valbjörn Snær Lilliendahl og Matthijs van Issum. - gló Gefa út glænýja smáskífu Hljómsveitin My Brother Is Pale gefur í dag út lagið Fields / I Forgot af væntan- legri plötu sinni, Battery Low, sem jafnframt er fyrsta breiðskífa sveitarinnar. MY BROTHER IS PALE Sveitin gefur út sína fyrstu breiðskífu í september. MYND/HILDURERNASIGURJÓNSDÓTTIR Hljómsveitin Útidúr spilar á tón- leikum í Mengi í kvöld. „Við ætlum að gefa út LP-plötu núna í haust svo við erum með nýtt stöff og erum að fara að spila allt sem kemur á næstu plötu,“ segir Sólveig Anna Aradóttir, söngkona hljómsveitarinnar. Útidúr er nú að klára sína þriðju plötu og eru þetta einu tónleikar sveitarinnar í sumar og því um fágætt tækifæri að ræða, en sveit- in hefur ekki spilað mikið á síð- ustu misserum þar sem fiðluleik- ari hennar er búsettur erlendis. Sveitin spilaði talsvert erlendis á síðasta ári og fór í tónleikaferð til Þýskalands fyrir rúmu ári. „Næsta sumar stefnum við á að kynna plötuna betur og koma meira fram,“ segir Sólveig Anna. Hljómsveitin hefur verið starf- andi frá árinu 2009 og gefið út tvær plötur og leikur kammerpopp. Tónleikarnir hefjast klukk- an 21.00 í kvöld í Mengi sem er á Óðinsgötu 2 og kostar 2.000 krónur inn. - gló Útidúr leikur efni af nýrri plötu í Mengi Hljómsveitin er að klára sína þriðju plötu sem gefi n verður út í haust og spilar á tónleikum í kvöld. ÚTIDÚR Sveitin hefur þegar gefið út tvær plötur. MYND/BÁRA BJARNADÓTTIR Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@fretta- bladid.is og einnig er hægt að skrá þá á visir.is. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 9 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 8 -A 7 9 C 1 5 9 8 -A 6 6 0 1 5 9 8 -A 5 2 4 1 5 9 8 -A 3 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.