Fréttablaðið - 30.07.2015, Page 16
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
„Er þetta meistari Maggi Kjart-
ans?“ – „Já, er það blaðamaðurinn?
Sæll.“ – „Margblessaður. Heyrðu,
ég var að hringja í Helga Björns,
hann er í Singapúr þannig að þú
ert næstur á lista. Ég er að skrifa
greinaflokk um alls kyns útivist
og áhugamál landsmanna og það
er komið að hestunum, og …“ – „Já,
neinei.“ – „Ha?“ – „Ég get aldrei
orðið nein varaskeifa fyrir Helga
Björns.“ – „Ehhh, já. Sko, nei, ég
hérna … Þið Helgi eruð náttúrlega
félagar í hestunum, og ég þorði ekki
að hringja í þig beint. Og ætlaði að
koma Krísuvíkurleiðina að þér.“ –
„Núnú, jæja, þú náðir að krafla þig
út úr þessu á einhvern undirfurðu-
legan hátt. Jújú, ég get svo sem
alveg leyft þér að skreppa á bak.“
Fréttablaðið heldur sínu striki og
þreifar á þeim áhugamálum sem
snúa að útivist og landsmenn stunda
af kappi.
Vel yfir 20 þúsund manns
í hestamennskunni
Hestamennskan er líklega sú sem
á sér dýpstar rætur, þeir sem
eru í hestamennsku eru þar ekki
nema af lífi og sál. Þetta er lífs-
stíll. Landssamband hestamanna
er þriðja stærsta sérsambandið
innan ÍSÍ, á eftir knattspyrnu
og golfi. Þá er miðað við þá sem
skráðir eru í hestamannafélög, um
17 þúsund manns, en miklu fleiri
stunda hestamennsku án þess að
vera félagsbundnir þannig að full-
yrða má að miklu fleiri stundi þetta
sport.
En, hestamennskan er sérkenni-
leg að því leytinu til að þeir sem
halda hesta fara í svokallaða sleppi-
túra snemma að vori; og senda
hross sín í haga. Einmitt þegar
maður hefði haldið að veðrið væri
þannig að vert sé að ríða út. „Jájá,
þetta er svolítið sérstakt. Á sumrin
eru hrossin mikið til í haga, safna
forða og verða feit og löt,“ segir
Magnús Kjartansson, „þetta er að
verulegu leyti vetraríþrótt.“
En, það þýðir ekki að hesta-
mennska sé ekki stunduð að sumri
til. Síður en svo. Maggi, goðsögn
í lifanda lífi sem einn helsti tón-
listarmaður þjóðarinnar í áratugi,
hefur fengist við hestamennsku allt
frá því hann var strákur. Og hann
hefur tekið að sér verkefni fyrir
Íshesta, sem er stærsta fyrirtæki
á sviði hestaferða sem um getur,
og hefur verið lengi. Maggi hefur
verið fararstjóri í slíkum ferð-
um, farið með hópa ferðamanna á
hestum um hálendi Íslands. Sjálf-
ur heldur hann hesta, á átta hross
og er með þau í hólfi við Sogið,
steinsnar frá óðali sem hann hefur
verið að reisa undanfarin fjögur
ár í Grímsnesinu. Maggi hafði góð-
fúslega fallist á að gefa blaðamanni
nasasjón; hvað það er sem er svona
heillandi við hestamennskuna. Við
vorum að ræða það hvort ekki væri
rétt að fá einhverja góða til að slást
í för með okkur í stuttan reiðtúr. „Á
ég ekki bara að fá Bó og Geirmund
með?“ spurði Maggi. Jú, það væri
náttúrlega alveg algjört afbragð.
„Já, nei, það eru nú þeir tveir
Íslendingar sem ég myndi síst færa
lappirnar mikið frá jörðu,“ segir
Maggi. „Neinei, ég held að það
sé rétt að fá næstu köntrístjörnu
Íslands með í för. Ómar Axelsson.“
Það steinliggur og ber vel í veiði.
Köntríið *1) og hestamennska fer
saman eins og flís við rass. Og
þegar Maggi byrjar að þylja upp
feril Ómars í hestamennskunni,
framkvæmdastjóri síðasta Lands-
móts, tamningamaður hjá Sigur-
birni Bárðarsyni hestamanni með
meiru … þá var það slegið.
Magnús hefur „svikið“ Hafnar-
fjörðinn, hvar hann hefur verið
búsettur undanfarna áratugi og er
fluttur upp í Grímsnesið, í námunda
við Kerið, þar sem hann býr ásamt
konu sinni Sirrí, Sigríði Kolbrúnu
Oddsdóttur flugfreyju, eins og blóm
í eggi. Við Ómar fórum í samfloti
á vit Magga í sveitina. Ómar hefur
verið á bólakafi í hestamennsku frá
því hann var drengur í sveit. Og
látið til sín taka á vettvangi hesta-
mennskunnar. Hann útskýrir fyrir
blaðamanni í löngu og ítarlegu máli
ýmis blæbrigði hestamennskunnar,
að hún hafi þróast mjög frá því að
bændur notuðu hestana til að fara
yfir, með fætur út í loftið og kaup-
staðalyktin lá í loftinu. Jafnframt
kom á daginn að þeir tveir, hann og
Maggi, eru búnir að stofna köntrí-
hljómsveit: Axel Ó og co. Þar er
valinn maður í hverju rúmi; Sig-
fús Óttarsson á trommur, Jóhann
Ásmundsson á bassa, Sigurgeir Sig-
mundsson á gítar og svo þeir tveir.
Sannkallað stórskotalið. Axel ólst
að verulegu leyti upp í Bandaríkj-
unum, í Texas, og þar fékk hann
köntríið beint í æð.
Trúbrot var í hestamennskunni
Magnús var að smíða pall við hús
sitt, við annan mann, þegar okkur
Axel bar að garði og fengum við
höfðinglegar móttökur, Sirrí reiddi
fram fyllta sveppi og skyrköku
með berjum. Þarna ætlar hljóm-
sveitin að troða upp eftir hálfan
mánuð, bjóða vinum og velunn-
urum í lautar ferð og kynna þeim
nýja íslenska köntrítónlist. Maggi,
sem er með skemmtilegri mönnum,
sögumaður af guðs náð og meðan
hann er að taka til hnakka og beisli
segir hann svo frá að hann, ásamt
öðrum þeim í hinni goðsagna-
kenndu hljómsveit Trúbrot, hafi
verið heilmikið í hestamennskunni,
þá með Flosa Ólafssyni. Þetta er
kafli sem ekki hefur verið færður
til bókar í tónlistarsögunni. „Ég lít
nú á Flosa sem minn mentor í hesta-
mennskunni.“
Við fórum við svo búið í reit þar
sem Magnús er með hross sín og
króuðum þau af með bandi. Reitur-
inn er við Sogið og þrisvar á sumri
er mýflugutímabil. Það er núna og
mökkur af flugu, sem sótti í hross-
in. Þau voru óróleg vegna flugunnar
en vel gekk þó að ná þeim og beisla.
Svo var stigið á bak.
Á hestbaki er hver maður konungur
Blaðamaður er stirðbusi, nýgræð-
ingur í hestamennskunni og hefur
sárasjaldan komið á hestbak, og það
fer ekkert á milli mála þegar hann
er að reyna að færa þessa reynslu
til bókar – innanverð læri, rass og
bak eru úr lagi gengin þannig að
nú er erfitt um gang. Hann fékk þó
þægan og þýðan hest undir sig en
söngvarinn og köntrístjarnan Axel
fékk að sjálfsögðu hvítan gæðing.
Svo var farið um sveitir þarna
milli Grímsness og Þingvalla, við
Álftavatn þar sem til dæmis Ólafur
Laufdal veitingamaður er búinn að
koma upp, af miklum myndarbrag,
hóteli og sumarhúsabyggð. Í kvöld-
sólinni og stórkostlegu veðri. Þarna
var fagurt um að litast og Magnús
kunni skil á hverri þúfu, og er vel
að sér um innviði samfélagsins
eftir að hafa kennt tónfræði þar í
sveitinni í vetur sem leið. Og hesta-
mennskan er kjörin til að kynnast
bændum.
Flótta- og hjarðdýr
Og málin rædd. Blaðamaður er orð-
inn óhemju ánægður með sig. Þetta
gekk betur en hann hafði þorað að
vona, en frómt frá sagt var hann
hálf skelkaður þegar hann brölti á
bak hesti sínum. Ómar var búinn
að segja honum að aldrei mætti
gleyma því að hestar séu lifandi
skepnur, með sjálfstæðan vilja,
þroska á við tveggja ára barn og
sumir séu meira að segja fól og
geri allt til að koma þeim sem vill
á bak illa. „Hesturinn er flóttadýr
og sá hestur sem kann það ekki er
ekki hestur,“ sagði Magnús spek-
ingslega. Flóttadýr? Hmmm … „En,
þeir eru fyrst og fremst hjarðdýr
þannig að hann er nú ekkert að
fara með þig neitt.“ Og, það fór vel
á með hrossinu og nýgræðingnum,
sem þóttist fljótlega býsna góður á
baki og sljákkaði ekki einu sinni í
sjálfsánægjunni þegar Maggi sagði
að það væri farið tíu sinnum hraðar
yfir á hálendisferðum.
Kvennasport
Þeir fallast fúslega á það, Maggi
og Axel, að það sé partur af því að
vilja vera í hestum að það er töff
að vera á hesti. „Á hestbaki er hver
maður konungur,“ segir Axel. Þó er
það svo að þeir hópar sem Magnús
hefur verið að fara með um hálend-
ið eru svo til alfarið konur. Erlend-
ar konur. Svo virðist að víðast hvar
erlendis sé hestamennska algjört
kvennasport, ríkra kvenna sport.
Magnús segir vel ganga að fara
með þessa hópa, enda mæti fólk
yfirleitt vel undirbúið og upplýst til
leiks. Öfugt við Íslendingana sem
halda að hestamennskan sé þeim í
blóð borin. Eins og með svo margt
annað, en þetta sé hins vegar mikill
misskilningur.
En, til að gera langa sögu stutta
þá var þessi reiðtúr, nú í vikunni, í
þessum fína félagsskap á þessum
líka fínu hestum Magnúsar, slík
upplifun að það má vel skilja hvers
vegna fólk sækir í að kynnast landi
sínu af hestbaki.
*1) Orðaskýringar. Helsti köntrí-
bolti Íslands, Bo Halldorsson, hefur
skammað blaðamann fyrir íslenska
útfærslu á orðinu country, eða
country and western tónlist. „Fyrir
norðan segja menn kántrí, en í
Memphis Hfj segja menn köntrí,“
segir Bo, og þá er það þannig.
Köntrí og hestar sem flís við rass
Tónlistar- og hestamaðurinn Magnús Kjartansson skaut hesti undir blaðamann Fréttablaðsins sem ótrauður heldur áfram að kynna sér hin
margvíslegu áhugamál landsmanna er snúa að útivist. Með í för var næsta köntrístjarna Íslands, Ómar Axelsson – þaulvanur hestamaður.
Mun ítarlegar er greint frá þessu
hestaævintýri á Vísi.
visir.is
Jakob Bjarnar
Grétarsson
jakob@365.is
HESTARNIR KRÓAÐIR AF Það vafðist ekki fyrir Magnúsi og co. að ná hrossunum og beisla. Þarna heldur söngvarinn um annan enda bands sem notað var til að ná hross-
unum en Magnús á mjög góða hesta. FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB BJARNAR
NÆSTA KÖNTRÍSTJARNA ÍSLANDS Forsöngvari hljómsveitar-
innar Axel Ó og co. á hvítum gæðingi í Grímsnesinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
MAGNÚS LEGGUR Á HEST SINN Þrisvar á ári gýs mýflugan
upp og það var akkúrat núna.
FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
MAGNÚS KJARTANSSON ER HESTAMAÐUR AF GUÐS NÁÐ
Hann hefur fengist við það, fyrir Íshesta, að vera fararstjóri
í hestaferðum yfir hálendið og eru það einkum og sér í lagi
erlendar konur sem sækja í slíkar ferðir. FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
HESTAMENN OG HLJÓMSVEITARTÖFFARAR Maggi og Axel
eru nú að vinna að plötu sem vonandi verður tilbúin næsta
vetur; en tónlistin er ætluð fyrir hinn gríðarstóra köntrímark-
að úti í hinum stóra heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB
2
9
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
8
-9
D
B
C
1
5
9
8
-9
C
8
0
1
5
9
8
-9
B
4
4
1
5
9
8
-9
A
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K