Fréttablaðið - 30.07.2015, Page 50
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 30
AFMÆLISBARN DAGSINS BÍÓFRÉTTIR FRUMSÝNINGAR
41 árs Josh Radnor
Þekktur fyrir: How I Met Your
Mother, Not Another Teen Movie
Sögur segja að leikarinn Chris Pine
muni fara með hlutverk Steves Trevor
í myndinni Wonder Woman sem
byggð er á samnefndri teiknimynda-
sögu. Gal Gadot fer með hlutverk
Wonder Woman en hún er einna
þekktust fyrir hlutverk sín
í Fast & the Furious-
myndunum. Patty
Jenkins leikstýrir en
hún leikstýrði til dæmis
myndinni Monster með
Charlize Theron í aðal-
hlutverki. Áætlað
er að Wonder
Woman komi út
árið 2017.
Pine leikur Trevor
Leikarinn og Íslandsvinurinn Chann-
ing Tatum sem átti að fara með aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni Gambit er
sagður hafa ákveðið að leika ekki í
myndinni. Það er 20th Century Fox
sem framleiðir myndina og er um
að ræða ofurhetjumynd byggða á
teiknimyndasögu og yrði
þetta fyrsta hlutverk
Tatum af þeim toga.
Myndinni er leikstýrt
af Rupert Wyatt sem
meðal annars leikstýrði
Rise of the Planet
of the Apes.
Hættur við?
Fantastic Four
Spennu-, ævintýra- og Sci-Fi
mynd
Aðalhlutverk: Kate Mara, Miles Teller,
Michael B. Jordan og Jamie Bell.
Frumsýnd: 5. ágúst
The Gift
Hryllingsmynd
Aðalhlutverk: Busy Philipps, Rebecca
Hall, Joel Edgerton og Jason
Bateman.
Frumsýnd: 12. ágúst
Á þessu ári fagnar stórmyndin
The Breakfast Club þrítugsaf-
mæli sínu. Myndin kom út árið
1985 og var leikstýrt af John
Hughes sem leikstýrði meðal
annars Pretty in Pink og Home
Alone. Gagnrýnendur telja mynd-
ina vera eina af bestu mennta-
skólamyndum sem hafa verið
gerðar. Myndin var gefin aftur
út í ár í Bandaríkjunum í tilefni
stórafmælisins.
Myndin fjallar um fimm ung-
linga sem þurfa að koma í skól-
ann á laugardegi í eftirsetu. Þau
eru hvert úr sínum hópnum innan
skólans. Eftir heilan dag saman
í eftirsetunni komast þau að því
að þau hafa öll mun meira upp á
að bjóða heldur en steríótýpurnar
sem þau hafa álitið sjálf sig vera.
Með aðalhlutverk í myndinni
fara Emilio Estevez, Judd Nelson,
Molly Ringwald, Anthony Hall og
Ally Sheedy. Öll þeirra eru talin
hafa náð hápunkti á ferlinum í
myndinni en ekkert þeirra hefur
leikið stórt hlutverk í þekktri
mynd síðan nema Anthony Hall,
en hann var með sína eigin sjón-
varpsseríu og lék í Batman og
Edward Scissorhands. Kennar-
inn sem sat yfir þeim í myndinni,
leikarinn Paul Gleason, er hins
vegar þekktari, en frammistaða
hans í myndinni er talin einstak-
lega góð.
The Breakfast Club hefur verið
vinsæl hjá öllum kynslóðum enda
er myndin talin tímamótaverk.
Fólk af öllum kynslóðum hefur
séð myndina og flestir mörgum
sinnum. Lokalagið í myndinni er
með hljómsveitinni Simple Minds
og heitir Don‘t You en það gerir
gæfumuninn í að ljúka mynd-
inni. Lagið er enn í dag tengt The
Breakfast Club. Myndin hefur
slegið svo í gegn að í dag eru veit-
ingastaðir í London sem bera heit-
ið Breakfast Club ásamt því að
einn vinsælasti útvarpsþátturinn
í Bandaríkjunum ber sama nafn.
John Hughes, leikstjóra mynd-
arinnar, bregður aðeins fyrir í
henni. Hann leikur föður íþrótta-
mannsins Brians og sækir hann
í skólann. Öll útiskotin af skól-
anum í myndinni eru af mennta-
skólanum sem John Hughes gekk
í, Blenbrook North High School.
Nafn myndarinnar kom frá syni
vinar leikstjórans en hann og
vinir hans kölluðu það að sitja
eftir í skólanum Breakfast club.
Breakfast Club fagnar þrítugsafmæli
Myndin kom út árið 1985 og sló í gegn. Gagnrýnendur telja hana vera eina bestu unglingamynd sem hefur verið gefi n út.
ÓLÍKUR HÓPUR Unglingarnir í mynd-
inni eru hver úr sínum hópnum innan
skólans. MYND/GETTY
LÖNG EFTIRSETA Krakkarnir kynnast hvert öðru og sjálfum sér betur í eftirsetunni.
2
9
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
8
-A
2
A
C
1
5
9
8
-A
1
7
0
1
5
9
8
-A
0
3
4
1
5
9
8
-9
E
F
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K