Fréttablaðið - 30.07.2015, Qupperneq 52
30. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 32
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Mesta ferðahelgi ársins er að ganga í garð og margir verða á faraldsfæti enda er mikið af útihátíðum víða um land. Fréttablaðið ákvað að skoða
nokkrar af helstu útihátíðum landsins. Einnig var athugað hvar veðrið verður best en þeir sem eru sunnan til á landinu eiga von á besta veðrinu.
EDRÚHÁTÍÐIN GAMAN
SAMAN Á HLÖÐUM Í
HVALFIRÐI
Gaman saman er vímulaus fjölskylduhátíð
sem fram fer að Hlöðum um verslunar-
mannahelgi.
Um að vera Hláturjóga í Hernámssetrinu,
blöðruslag, hugleiðslukennslu, ratleik og
svo kemur Lína Langsokkur í heimsókn svo
fátt eitt sé nefnt.
Verð Helgarpassi á hátíðina kostar 5.000
krónur og þá kostar dagpassi 2.000 krónur.
EIN MEÐ ÖLLU Á
AKUREYRI
Alls kyns afþreying og skemmtun. Barna-
dagskrá yfir daginn og tónleikaveisla um
kvöldið. Frítt er á alla dagskrá sem er á
vegum Einnar með öllu. Helsti kostnaður-
inn er tjaldstæðin eða gisting. Einnig
kostar sér á viðburði á til dæmis á Græna
hattinum og næturdagskrá eins og ball í
Sjallanum. Nánari dagskrá er hægt að sjá á
vefsíðunni Einmedollu.is.
Fram koma Dúndurfréttir, Eyþór Ingi,
María Ólafsdóttir, Páll Óskar, Úlfur Úlfur,
Steindi Jr og Bent, Amabadama auk fjölda
annarra.
Veðurspá eins og staðan er í dag Á
Akureyri er útlit fyrir hæga norðanátt á
föstudag með skýjuðu og þurru veðri og
hita rétt undir 10 stigum. Á laugardag eru
líkur á rigningu, en enn er óvissa í spánum
hvort hún verði teljandi. Þegar kemur
fram á sunnudaginn ætti sólin að brjótast
gegnum skýin á Akureyri og áfram verður
bjart á mánudeginum.
MIKIL GLEÐI Á
FLÚÐUM
Um verslunarmannahelgina verður fjöl-
margt áhugavert og skemmtilegt í boði
fyrir alla fjölskylduna. Ferðaþjónustuaðilar
og listafólk verða með opið alla helgina
auk spennandi viðburða á degi hverjum.
Einnig eru dansleikir og aðrar uppákomur
öll kvöld. Nánari dagskrá má sjá á vefsíð-
unni Fludir.is.
Fram koma Laddi, Leikhópurinn Lotta
kemur fram í Lystigarðinum, Sniglabandið,
Á móti sól auk ýmissa annarra skemmti- og
tónlistaratriða.
INNIPÚKINN Í
REYKJAVÍK
Hátíðin í ár fer fram á sömu stöðum og í
fyrra, eða samtímis á tónleikastöðunum
Húrra og Gauknum sem eru báðir við
Naustin í Kvosinni. Nánari dagskrá má sjá á
Facebook síðu Innipúkans.
Fram koma Jakob Frímann Magnússon og
Amabadam, Vaginaboys, Ylja, Gísli Pálmi,
Steed Lord, Sturla Atlas, Mammút, Teitur
Magnússon og fjöldi annarra.
Armband á alla hátíðina kostar 6.990
krónur og gildir það alla helgina bæði á
Húrra og Gaukinn. Hægt er að fá dagpassa
á 3.990 krónur.
Veðurspá eins og staðan er í dag
Á höfuðborgarsvæðinu frá föstudegi til
mánudags munu skiptast á austlægar og
norðlægar áttir. Það verður væntanlega
alveg þurrt og sólríkt með köflum. Hiti 10
til 15 stig.
KOTMÓT Í KIRKJULÆKJ-
ARKOTI Í FLJÓTSHLÍÐ
Kristilegt fjölskyldumót sem haldið er
af Hvítasunnukirkjunni á Íslandi. Ásamt
dagskrá Kotmóts er samhliða Barnamót
sem býður upp á dagskrá fyrir þau yngstu.
Unglingarnir eru svo með sína dagskrá og
ýmsir fjölskylduviðburðir í boði, líkt og
varðeldur, karnival og tónleikar. Kotmót er
haldið í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð og þar
er allt til staðar.
Um að vera Stefan Christiansen, lof-
gjörðar- og vitnisburðarkvöld, varðeldur og
tónleikaveisla.
Verð Nóttin á tjaldsvæðinu kostar 1.200
fyrir fullorðinn en 500 fyrir unglinga. Frítt
er svo fyrir 13 ára og yngri. Veitingasala á
svæðinu.
MÝRARBOLTINN
Á ÍSAFIRÐI
Mýrarboltamótið verður haldið í tólfta sinn
um helgina í Tunguskógi í Skutulsfirði.
Mótið hefst á föstudagskvöld og á
laugardagsmorgun hefst spilamennskan.
Á fyrri leikdegi verður leikið í riðlum en á
sunnudag hefst útslátturinn. Nánari dag-
skrá má sjá á Myrarbolti.com.
Fram koma Blaz Roca, Skítamórall, Retro
Stefson, Rythmatic og Húsið á sléttunni.
Skráningargjald Þátttökuarmband 10.000
krónur og ballarmband 6.000 krónur. Auk
tjaldsvæða.
Veðurspá eins og staðan er í dag Á Ísafirði
á föstudaginn verður norðangola, skýjað
og þurrt. Hiti tæp 10 stig. Á laugardaginn
bætir í vindinn og fer að rigna. Þegar
kemur fram á sunnudaginn lægir vindinn
aftur, það styttir upp og rofar til, þannig
að seinnipart sunnudags og á mánudaginn
verður hið ljúfasta veður á Ísafirði.
NEISTAFLUG Í
NESKAUPSTAÐ
Afþreying og dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Á barnadagskrá yfir daginn verða meðal
annars Gunni og Felix, dorgveiðikeppni við
bæjarbryggjuna og Leikhópurinn Lotta svo
fátt eitt sé nefnt.
Tónleikar fara fram á kvöldin í Egilsbúð.
Nánari dagskrá má sjá á vefsíðunni Neista-
flug.is.
Fram koma Valdimar, Vintage Caravan,
Eyþór Ingi, Todmobile, Í svörtum fötum auk
fjölda annarra skemmti- og tónlistaratriða.
Verð Frítt inn á hátíðarsvæði og barnadag-
skrá. Helgararmband kostar 10.000 krónur
og þá kostar Ballarmband 7.500 krónur. Ef
armbönd eru ekki keypt kostar inn á staka
viðburði.
Veðurspá eins og staðan er í dag
Á Austfjörðum er útlit fyrir hæglætis-
veður um helgina og ekki er spáð úrkomu.
Óvissan í spánni fyrir Austfirði er varðandi
skýjahuluna. Eitthvað ætti að sjást til sólar
flesta daga og þegar það gerist nær hitinn
að þokast upp fyrir 10 stigin, en meðan
skýjað verður verður nær hitinn ekki 10
stigum.
SÆLUDAGAR Í
VATNASKÓGI
Skógarmenn KFUM ásamt KFUM og KFUK
á Íslandi standa fyrir vímulausri fjöl-
skylduhátíð um verslunarmannahelgina
Dagskrá hátíðarinnar höfðar til flestra
aldurshópa. Bátar verða lánaðir út,
leikin verður knattspyrna, kassabílarallý
á íþróttavelli, söng- og hæfileikasýning
barnanna í íþróttahúsi og ýmislegt fleiri og
á laugardagskvöldið fara fram tónleikar og
að þeim loknum hefst dansleikur.
Fram koma Pétur Ben, Regína Ósk og
Friðrik Ómar.
Verð á Sæludaga eru 4.800 krónur fyrir
13 ára og eldri, 2.800 krónur fyrir börn á
aldrinum 7 til 12 ára, 2.800 fyrir dagsheim-
sókn og þá er ókeypis fyrir sex ára og yngri.
Tjaldstæði eru á staðnum og innifalin í
verði.
SÍLDARÆVINTÝRIÐ
Á SIGLUFIRÐI
Mikið er um að vera bæði á daginn og
á kvöldin. Á Siglufirði eru tjaldstæði í
hjarta bæjarins og við Stóra-Bola, gistingu
er einnig hægt að fá innan dyra á gisti-
heimilinu Hvanneyri, Hótel Siglunesi og á
gistiheimilinu Herring House. Sundlaug-
arnar verða opnar daglega bæði á Siglufirði
og í Ólafsfirði, og verslanir hafa rúman
opnunartíma. Golfvöllur er til staðar og
skemmtilegar gönguleiðir við allra hæfi í
næsta nágrenni. Dagskrá er hægt að skoða
nánar á Sildaraevintyri.fjallabyggd.is.
Fram koma Ljótu hálfvitarnir, Ylja, Matti
Matt ásamt hljómsveit, Sirkus Íslands
verður á svæðinu auk fjölda annarra
skemmti- og tónlistaratriða.
UNGLINGA LANDSMÓTIÐ
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Akur-
eyri um verslunarmannahelgina 2015.
Þetta verður í fyrsta skipti sem Unglinga-
landsmót UMFÍ verður haldið þar. Mótið
hefst fimmtudaginn 30. júlí með keppni í
golfi en aðrar keppnisgreinar hefjast síðar.
Mótsslit eru um miðnætti á sunnudags-
kvöldi.
Samhliða Unglingalandsmótinu verður há-
tíðin „Ein með öllu“ haldin á Akureyri.
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í
VESTMANNAEYJUM
Hátíðarhöldin fara fram í Herjólfsdal.
Hápunktar í dagskrá Þjóðhátíðar eru
brenna á Fjósakletti á föstudagskvöldi,
vegleg flugeldasýning á laugardagskvöldi,
brekkusöngur og blys á sunnudagskvöldi.
Ýmis dagskrá fyrir börnin og mikið um að
vera á eyjunni. Hægt að nálgast frekari dag-
skrá á Dalurinn.is.
Fram koma Sálin hans Jóns míns, Bubbi
og Dimma, Maus, Páll Óskar, FM96BLÖ,
FM-Belfast, Jón Jónsson, Amabadama auk
fjölda annarra.
Verð Miði á hátíðina alla helgina kostar
22.900 krónur. Hægt er að kaupa dagpassa
fyrir laugardag og sunnudag og kosta þeir
hvor um sig 13.900 krónur.
Veðurspá Í Vestmannaeyjum á morgun
verður allhvass vindur af austri og það
mun rigna af og til allan daginn. Strax á
föstudaginn batnar veðrið því þá lægir
vindinn og það styttir upp. Á laugardag
og sunnudag er spáð hægum vind, þurrt
verður að mestu og sólin lætur eitthvað
sjá sig. Á mánudaginn er útlit fyrir vaxandi
austanátt, en enn er óvissa í spánni með
hversu mikið hvessir og hvenær dagsins.
Hitinn verður lengst af á bilinu 10 til 15
stig um helgina.
LÍFIÐ
2
9
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
8
-B
6
6
C
1
5
9
8
-B
5
3
0
1
5
9
8
-B
3
F
4
1
5
9
8
-B
2
B
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K