Fréttablaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 64
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Vertu eins
og heima hjá þér
Full búð af nýjum vörum.
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hefur verið í miklum
ham undanfarið. Það er greini-
legt að hann leyfir sér nú, á sein-
ustu metrum síðara kjörtíma-
bilsins, ýmislegt sem hann hefði
átt erfiðara með í upphafi þess
fyrra. Í heimsókn hans til Afríku
í þessari viku hélt hann áfram að
koma á óvart. Þar var talað yfir
hausamótunum á karlrembum og
hommafóbum. Obama sló ræki-
lega á fingur þeirra og sagði þeim
að svona gerum við ekki. Flott hjá
honum. Eða hvað?
EF til vill kann einhverjum að
þykja þetta hreinn og klár yfir-
gangur. Er velmegunarbumba
Vesturlandabúans kannski að
byrgja honum sýn í álitlegum sið-
ferðismálum þegar hann ætl-
ast til þess að aðrir menningar-
heimar komi fram við konur eins
og venjulegar manneskjur? Er
hommahatur ekki réttmæt skoðun
þeirra sem alist hafa upp í þeirri
trú? Eru ekki langflestir múslim-
ar friðelskandi, vinalegt fólk sem
vill bara fá að kúga konur sínar í
friði? Sumir eru þeirrar skoðunar.
ÞAÐ varð líka uppi fótur og fit á
meðal vestrænna félagsfræðinga
þegar Sameinuðu þjóðirnar lögðu
til alþjóðlegan mannréttindasátt-
mála eftir seinni heimsstyrjöld.
Þegar reykinn lagði enn upp úr
skorsteinum líkbræðslunnar í
Auschwitz. Þá urðu þeir brjál-
aðir og sögðu mannréttindi vera
afstæð. Þessu væri ekki hægt
að troða ofan í kokið á þeim sem
væru minnimáttar í samfélagi
þjóðanna.
ÞEIR eru eflaust enn til félags-
vísindamennirnir og pólitísku
rétttrúnaðarriddararnir, sem
halda því fram að gildi og sið-
ferðisviðmið verði aldrei hægt að
kortleggja á rétt og rangt skal-
anum. Hvert samfélag fyrir sig
verði því bara að fá að hafa þetta
eftir sínu höfði, byggt á venj-
um og siðum fyrri alda. Ég segi
kjaftæði. Gott og rétt siðferði er
það sem hámarkar hamingju og
vellíðan allra lifandi vera. Slæmt
siðferði er meðal annars að koma
fram við konur eins og annars
flokks borgara.
Annars fl okks
borgarar
Veðurspáin skiptir ekki máli
www.66north.is
BAKÞANKAR
Frosta
Logasonar
2
9
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
8
-9
D
B
C
1
5
9
8
-9
C
8
0
1
5
9
8
-9
B
4
4
1
5
9
8
-9
A
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K