Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 2

Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 2
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 FRÉTTIR FIMM Í FRÉTTUM KYNJAKVÓTAR OG FERÐAMENNGLEÐIFRÉTTIN SJÁ SÍÐU 32 VEÐUR Smári Sigurðsson, formaður Slysavarna- félagsins Landsbjargar, vill að ferðamenn sem þarf að bjarga borgi í auknum mæli fyrir björgunina. Halldóra Dröfn Gunnars dóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykja- víkur, furðar sig á því að leikskólastarfsmenn tilkynni síður vanrækslu og ofbeldi til barna verndarnefnda. Baltasar Kormákur leikstjóri segist vilja koma á kynjakvóta í úthlutunum Kvik- myndasjóðs Íslands með það að markmiði að fjölga konum í stéttinni. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra er bjartsýn á að Ísland geti tekið á móti fimmtíu flóttamönnum að lágmarki á næstu tveimur árum. ➜ Annþór Karlsson, fangi á Litla-Hrauni, gagnrýnir harðlega að það hafi tekið þrjú ár að rannsaka hvort hann hafi orðið sam- fanga sínum að bana árið 2012. Mat erlendra sérfræðinga er að mað- urinn hafi ekki látist af þeim áverkum sem Annþór er sakaður um að hafa veitt honum. Tilboðsverð frá 109.900 kr. Innifalið: flug og gisting á Melia Benidorm **** með hálfu fæði 14.-21.ágúst. Alicante Síðustu sætin í sólina í ágúst VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444 Hæg breytileg átt eða hafgola á morgun og er líklegt að víða sjáist til sólar. Skýjafarið verður þó eitthvað köflótt og eru líkur á síðdegisskúrum, einkum sunnanlands. Hitatölurnar verða áfram á bilinu 8 til 13 stig. „Það er ljóst að það gengur ekki að helmingur þjóðarinnar, sem eru konur, eigi sér ekki sína rödd í kvikmyndum, öflugasta miðli nútímans. Það er ekkert bara vandamál kvikmyndagerðar- manna, heldur samfélagsins alls,“ segir Illugi Gunnarsson mennta- málaráðherra. Baltasar Kormákur lagði fram hugmynd í föstudagsviðtali Frétta- blaðsins um hvernig ætti að auka hlut kvenna í kvikmyndagerð. Framlög til kvikmyndasjóðs yrðu aukin, potturinn stækkaður og allt umfram það sem þegar er færi til kvenna í kvikmyndagerð. „Baltasar er að leggja til tíma- bundinn kynjakvóta og horfa til þeirrar aukningar sem væri mögu- leg á sjóðinn. Þetta er hugmynd sem ég er tilbúinn að skoða alvar- lega,“ heldur Illugi áfram. Hann segir þurfa að huga að útfærslum. Almennt sé hann ekki hrifinn af kynjakvótum. „Það eitt og sér að bæta við fjármagni er ekki nóg. Það skipt- ir máli að fyrirtækin sem starfa í greininni nýti sér þá fjármuni og ýti áfram konum, opni fyrir þær tækifærin. Það er ekki bara ríkið sem getur gert það, en við getum sannarlega hvatt til þess.“ Illugi segir tillögu Baltasars skynsamlega og rökin sann- færandi. „Við erum að missa af hæfileikaríkum konum. Ef við látum þetta standa óáreitt þá breytist ekkert. Þetta er óæski- leg staða, eins og hún er í dag.“ Hann segir það vissulega skipta máli að maður með bakgrunn eins og Baltasar stígi fram með slíka hugmynd. „Það hefur auðvitað mikið að segja, þegar menn hafa náð árangri eins og Balti þá hefur hann tækifæri til að hafa mótandi og jákvæð áhrif á þessu sviði. Ég er sannarlega ánægður með að heyra þennan tón. Þetta skiptir máli.“ En þarf þá karlmenn til þess að hvetja konur til þess að búa til kvikmyndir? „Nei. Það á ekki að skipta máli hvort það er karl eða kona því þetta varðar okkur öll. Þetta er jafn mikið hagsmuna- mál karla og kvenna, jafnrétti. Hvort sem er í menningu, listum eða efnahagslífinu. Við þurfum á öllum að halda, öllum sjónarmið- unum og ólíku þáttunum. Ef við nýtum það ekki erum við öll að tapa. Ég tek jákvætt í þetta, ég tek undir. Ég er algjörlega, heils hugar sammála forsendunum sem þarna eru gefnar. Ég held að þetta séu orð í tíma töluð.“ - ósk/vh Ráðherra segir rök Balta sannfærandi Menntamálaráðherra segir hugmyndir Baltasars um tímabundinn kynjakvóta í úthlutunum frá kvikmyndasjóði skynsamlegar. Hann skoðar tillöguna alvarlega. MISSUM AF HÆFILEIKARÍKUM KONUM Illugi Gunnarsson segir hug- myndir Baltasars Kormáks orð í tíma töluð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VILL SETJA Á KYNJAKVÓTA Baltasar segir engin rök halda í því að konur séu síðri leikstjórar en karlmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Feðgarnir Hlynur Gestsson, ellefu ára, og Gestur Hreinsson ætla að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmara- þoninu með Sindra Pálsson, sex ára frænda sinn, sem bund- inn er hjólastól vegna afar sjaldgæfs heil- kennis. Hlaupa með frænda sinn TAÍLAND Taílenskir hermenn og verkamenn unnu þrekvirki þegar þeir fluttu gríðarstóra styttu af Narai Taílandskonungi frá verksmiðjunni sem annaðist smíðina yfir í Ratchapakdi-almenningsgarðinn í Hua Hin í gær. Taílenski herinn er um þessar mundir að byggja almenningsgarðinn sem er tileinkaður taílensku konungsfjölskyldunni. Narai var konungur í Ayutthaya-konungsveldinu árin 1656 til 1688 og er almennt talinn farsælasti konungur veldisins. Ayutthaya-veldið teygði sig yfir stóran hluta Suðaustur-Asíu og stóð frá 1351 til 1767. - srs Byggja almenningsgarð til heiðurs konungsfjölskyldunni: Nairu konungur settur á stall FLUTNINGAR Verkamenn og hermenn flytja styttu af Nairu konungi í Ratchapakdi- almenningsgarðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP LÖGREGLUMÁL Lögregla hafði afskipti af fólki í Reykjanesbæ sem safnaði undirskriftum fyrir íbúakosningu vegna fyrirhugaðs kísilvers í Helguvík. Fólkið var að safna undirskrift- um fyrir utan Nettó í Reykja- nesbæ þegar verslunarstjórinn hafði afskipti af því og bað það um að færa sig af lóð verslunar- innar. Fólkið varð ekki við beiðn- inni og kallaði verslunarstjórinn því til lögreglu. Einstaklingarnir neituðu að færa sig um set en lögregla tók niður kennitölur þeirra og fór svo af vettvangi. - srs Lögregla kölluð að Nettó: Neituðu að fara af lóð Nettó LÖGREGLUMÁL Fjórir karlar og ein kona voru dæmd í Héraðsdómi Norðurlands eystra á fimmtudag fyrir margvísleg brot, þar á meðal að kveikja í bíl með bensínsprengju. Tveir mannanna og konan eru meðal annars dæmd fyrir að hafa hótað öldruðum manni ofbeldi og að saka hann um kynferðisofbeldi á heimili hans í apríl 2014. Við rannsókn málsins kom í ljós að maðurinn hafði árið 1997 verið dæmdur fyrir að nauðga konunni, sem þá var þriggja ára gömul. Mark- mið árásarinnar á manninn var að fá fébætur frá honum fyrir verknaðinn. Í dómnum er upptaka af heimsókn þremenn- inganna til mannsins rakin. Þar ítrekar konan að atvikið árið 1997 hafi haft alvarlegar sálrænar afleiðingar fyrir hana. Hún var gráti næst. Aðrir í dómnum eru meðal annars dæmdir fyrir að kveikja í bifreið lögreglumanns með bensín- sprengju. Málin eru alveg óskyld nema að því leyti að um sömu gerendur er að ræða. - snæ Fimm dæmd fyrir handrukkun, eignaspjöll og að kveikja í bifreið: Reyndu að kúga fé af nauðgara VALDSTJÓRNIN Mennirnir voru meðal annars dæmdir fyrir að ráðast á lögreglumann á heimili hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EFNAHAGSMÁL Alþjóðlega mats- fyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfismat ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbind- ingar í erlendri mynt í BBB+ frá BBB. Fitch er þriðja matsfyrirtækið til að hækka lánshæfi ríkissjóðs á skömmum tíma en áður höfðu Standard & Poor´s og Moody´s hækkað lánshæfiseinkunn Íslands. Sömu forsendur eru tilgreindar og hjá hinum matsfyrirtækjun- um; trúverðug áætlun um afnám fjármagnshafta og von um batn- andi skuldastöðu ríkissjóðs. -ih Þriðja matið sem hækkar: Fitch hækkar lánshæfi Íslands 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 F -6 9 5 0 1 5 8 F -6 8 1 4 1 5 8 F -6 6 D 8 1 5 8 F -6 5 9 C 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.