Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 27

Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 27
Hjóla 100 kílómetra Íslenskar hjólreiðakonur taka þátt í heimsviðburði á morgun og hjóla 100 kílómetra. Björk Kristjánsdóttir er í for- svari fyrir íslenska hópinn. Síða 4 Landsmenn muna eftir Grétu eftir að hún tók þátt í Eurovision-keppn-inni í Bakú árið 2012. Síðan hefur margt ævintýralegt gerst í lífi hennar. Sýning Grétu um borð í Disney Magic er glæsileg að allri umgjörð og hún hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Gréta segir að sér líki mjög vel um borð. „Skipið er svakalega stórt og hafnirnar fjölbreyttar svo það er ekki hægt að láta sér leiðast,“ segir hún. Gréta var stödd í Kaupmannahöfn á leið til Rússlands þegar við náðum tali af henni. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og ekki síður lærdóms- ríkt. Ég hef starfað með frábæru, hæfi- leikaríku fólki og hef lært helling af því. Disney er stærsta fyrirtæki í heimi á sviði skemmtikrafta og það er stór- kostlegt tækifæri fyrir mig að starfa fyrir það,“ segir hún. Skipið er núna á siglingu um N-Evrópu en yfirleitt fer fólk í sjö daga ferð. DAGUR Í REYKJAVÍK Gréta segir að ferðamenn um borð séu á öllum aldri. „Það hefur komið mér á óvart hversu fjölbreytt mannflóran er, allt frá ungum pörum og fjölskyldufólki upp í elstu kynslóðina. Það er margt gert fyrir börn sem þá eldri um borð, enda stórt skip með margvíslegri af- þreyingu.“ Gréta er alltaf með sömu sýninguna þar sem hún flytur eigin lög í bland við Disney-lög og síðan nokkur lög sem hún samdi sérstaklega fyrir þetta verkefni. Fiðlan leikur að sjálfsögðu stórt hlut- verk. Þegar Gréta er spurð hvað hafi komið henni mest á óvart, svarar hún. „Eigin- lega hvað þetta ferðalag hefur farið fram úr mínum bjartsýnustu vænting- um. Að auki hef ég fengið að sjá marga eftirminnilega staði, eins og til dæmis St. Pétursborg sem er mögnuð. Þá var sömuleiðis mögnuð tilfinning að koma til Reykjavíkur í einn dag, eiginlega lang- best. Það var ótrúlega skemmtilegt að sigla inn í Reykjavíkurhöfn. Mér finnst EINS OG AÐ BÚA Á 5 STJÖRNU HÓTELI ÆVINTÝRALÍF Gréta Salóme Stefánsdóttir, söngkona, tónskáld og fiðluleik- ari, hefur starfað sem skemmtikraftur um borð í Disney Magic-skemmtiferða- skipinu í eitt ár. Gréta hefur siglt um heimsins höf í tæpt ár en hún kemur heim eftir tvær vikur og þá kemur út nýtt lag með henni. MIKIL LÍFSREYNSLA Gréta Salóme hefur nú siglt um heimsins höf í tæpt ár og upplifað margt skemmtilegt og nýtt. MYND/ANTON Perspi Guard Bakteríusápa og svitastoppari Dreifing: Ýmus ehf Fæst í apótekum Til meðhöndlunar á vandamálum vegna ofsvitnunar 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 F -B D 4 0 1 5 8 F -B C 0 4 1 5 8 F -B A C 8 1 5 8 F -B 9 8 C 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.