Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 40
| ATVINNA |
EFTIRLITSMAÐUR
Í LOFTHÆFI- OG
SKRÁSETNINGAR-
DEILD
Samgöngustofa óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lofthæfi-
og skrásetningardeild. Starfið felst í skrásetningu loftfara,
lofthæfi þeirra og flugtæknilegra framleiðsluvara, vottun og
eftirliti með fyrirtækjum sem annast viðhald og viðhaldsstýringu
sem og þeim er annast kennslu flugvéltækna. Í starfinu
getur einnig falist mat á umsóknum og afgreiðsla skírteina
og tegundaáritana til flugvéltækna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Krafist er menntunar flugvéltæknis með Part 66 skírteini eða
tæknilegs náms á háskólastigi sem tengist lofthæfi loftfara.
• A.m.k. fimm ára reynsla af viðhaldi eða viðhaldsstjórnun
loftfara hjá fyrirtæki skv. kröfum EASA, þekking á hönnun
loftfara og á EASA reglugerðum.
• Umsækjandi þarf að tileinka sér mjög öguð vinnubrögð, þ.m.t.
alþjóðlegar kröfur sem gilda í flugi.
• Mjög góð tök á íslensku og ensku er skilyrði sem og gott vald
á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
Leitað er að einstaklingi með góða samskiptahæfileika,
örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flug-
starfsemi. Viðkomandi þarf að sýna frumkvæði, sjálfstæði
og fagmennsku í starfi, vera skipulagður og agaður í verkum
sínum og geta unnið undir miklu álagi. Í boði er áhugavert
og fjölbreytt starf í krefjandi umhverfi sem reynir á faglega
hæfni og frumkvæði einstaklings.
Umsóknarfrestur er til 3. ágúst 2015
Hægt er að sækja um starfið rafrænt
á www.samgongustofa.is/storf
Samgöngustofa hvetur jafnt konur sem karla til að sækja
um þessa stöðu.
Nánari upplýsingar veitir Ómar Þór Edvardsson, deildarstjóri
lofthæfi- og skrásetningardeildar, í síma 480 6000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Samgöngustofa áskilur sér rétt til þess að
hafna öllum umsóknum. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði
ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjara-
samning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun
samgöngumála með um 140 starfsmenn.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að öruggum,
sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum
samgöngum. Samgöngustofa annast eftirlit
er varðar flug, siglingar, umferð og öryggis-
eftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu.
Upplýsingar um Samgöngustofu má finna
á www.samgongustofa.is.
Samgöngustofa
Ármúli 2
108 Reykjavík
Sími: 480 6000
App fyrir leigubíla
taxiserviceiceland.com
+354 5885500
Leyfishafar óskast
Vegna mikilla vaxandi verkefna og samninga óskar leigubílastöðin
Taxi Service ehf eftir leyfishöfum til samstarfs í leigubíla- og
akstursþjónustu á vegum fyrirtækisins. Fyrirtækið leitar leyfishafa
sem áhuga hafa á að starfa með metnaðarfullu fyrirtæki í upp-
byggingu akstursþjónustu í hvívetna og að tileinka sér nýjustu
tækni í leigubílaakstri, þjónustu og siðareglum sem fyrirtækið
hefur sett sér. Taxi Service ehf hefur hafið samstarf með danska
hugbúnaðarfyrirtækinu drivr í þróun og uppsetningu hugbúnaðar
og stýrikerfis fyrir Taxa Service ehf til að tryggja hámarks þjón-
ustuhraða, einföldun og hagkvæmni fyrir notendur leigubílaþjón-
ustu í formi app þjónustu, hugbúnaðar og bókunarkerfis fyrir
smáa sem og stóra notendur akstursþjónustu.
Áhugasamir sendi fyrirspurn á taxiservice@taxiservice.is eða á
Daða Hreinsson framkvæmdastjóra fyrirtækisins í síma 660-4566
frá mánudeginum 27. júlí næstkomandi.
Hækkun stöðubrotsgjalda
Þann 1. ágúst tekur gildi hækkun stöðubrotsgjalda
Stöðvunarbrotagjald vegna j-liðar 1. mgr. 28. gr. , sbr.
b-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, lagningar
bifreiðar í stæði fyrir hreyfihamlaða án heimildar, verður
20.000 kr.
Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðubrota, sbr.
a-e-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að
undanskildum j-lið 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108.
gr. verður 10.000 kr. Þetta eru stöðubrotsgjöld t.d. vegna
lagningar bifreiðar á gangstétt, gangbraut, vegamótum,
í stæði fyrir hópbifreiðar eða þar sem umferðarmerki
gefur til kynna bann við lagningu/stöðvun bifreiðar.
Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun
eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu
gjaldsins.
Gjald sem er ógreitt 14 dögum frá álagningu gjaldsins
tekur 50% hækkunum og sé það ógreitt 28 dögum eftir
álagningu tekur það 100% hækkun.
Breytingin tók gildi með auglýsingu nr. 568/2015 um
breytingu á auglýsingu um gjaldskrá vegna stöðvunar-
brota í Reykjavíkurborg, nr. 798/2012.
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Vonarstræti 4
101 Reykjavík
ÚTBOÐ
Útboð nr. 20136 VÍ Kælikerfi tölvubúnaðar
Ríkiskaup fyrir hönd Veðurstofu Íslands (VÍ) óskar eftir áhu-
gasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði. VÍ óskar eftir
að kaupa kælikerfi tölvubúnaðar í samræmi við útboðsgögn.
Afhending miðast við 20.10.2015. Nánari upplýsingar má finna
í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa
(www.rikiskaup.is), laugardaginn 25. júlí nk. Tilboðum skal
skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau
verða opnuð 11. ágúst 2015, kl. 13:00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
GOTT TÆKIFÆRI
Til sölu er framleiðsla á frábærum
síldarvörum og steiktum fiskibollum.
Þekkt vörumerki síðan árið 1988 og er í
vöruvali í flestum verslunum landsins.
Áhugasamir sendi nafn og símanúmer á netfangið
budeitt@gmail.com og verður þá haft samband
Innkaupadeild
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Opin svæði - Framkvæmd. Gullengi,
Krosshamrar, Smárarimi , Útboð nr. 13514.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Innkaupadeild
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Rammasamningur um hópbifreiða-
þjónustu, EES útboð nr. 13565.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
- með þér alla leið -
569 7000
Nánari upplýsingar
veitir:
Jórunn
Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Sími: 845 8958
jorunn@miklaborg.is
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR10
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
F
-9
A
B
0
1
5
8
F
-9
9
7
4
1
5
8
F
-9
8
3
8
1
5
8
F
-9
6
F
C
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K