Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 47

Fréttablaðið - 25.07.2015, Side 47
KYNNING − AUGLÝSING Matur í ferðina25. JÚLÍ 2015 LAUGARDAGUR 5 AFSLÖPPUN Í ÚTILEGU Þó að farsímasamband sé nokkuð gott á flestum stöðum eru enn til „dauðir punktar“. Ef fólk vill fara í virkilega afslappandi tjaldútilegu ætti það að velja sér slíkan stað. Farsíminn getur aukið á streitu og jafnvel skapað heilsufarsleg vandamál. Þess vegna er það mjög slakandi að vera laus við hann í smá tíma. Það verður þó að vera meðvituð ákvörðun ella getur stressið orðið enn verra en ella. Sumir eru mjög háðir snjallsíma- num og samskiptamiðlum. Próf- aðu að fara í útilegu án símans. Rannsóknir hafa sýnt að fólk sefur vel í tjaldi. Ef þú ákveður að fara í slökunarferð og sofa í tjaldi ætti líkaminn að vakna úthvíldur. Þar fyrir utan hefur útiveran mjög góð áhrif á andlega líðan. Skapið batnar til muna þegar fólk kemur út í kyrrðina í sveitinni. Þá má nefna að andrúmsloftið í náttúrunni hefur góð áhrif á skilningarvitin því hljóðin eru tærari sem heyrast og þú ert næmari fyrir þeim, til dæmis lækjar- eða fossniði, fuglakvaki og dýrahljóðum. MÚFFUR Í NESTI Múffur er bæði hægt að búa til sem sætabrauð en einnig sem morgunverðarsprengju. Hægt er að búa til múffur og taka með sér í ferðalag en þær eru fínasta nesti, sérstaklega þessi uppskrift sem er með fetaosti og sólþurrk- uðum tómötum. Það má nota glútenlaust hveiti og haframjöl í þessa uppskrift. Uppskriftin gefur 20 múffur. Það sem þarf: 5 dl hveiti 2 dl hafragrjón 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 1 tsk. pipar Örlítill cayenne-pipar 1 dl ólífuolía 3 dl mjólk 2 egg 100 g fetaostur 200 g sólþurrkaðir tómatar 200 g steinlausar ólífur 1 búnt basilíka Byrjið á að blanda öllum þurr- efnum í skál. Léttþeytið egg, mjólk og ólífuolíu í annarri skál. Hrærið síðan þurrefnum og eggjablöndunni saman. Loks er fetaosti, sólþurrkuðum tómötum í litlum bitum, ólífum og smátt skorinni basilíku bætt við. Setjið deigið í múffuform og síðan í 240°C heitan ofn. Bakið í 15-20 mínútur. Má geyma í frysti. Það er upplagt að taka með sér míní-pitsur í ferðalagið. Þær má vel borða kaldar. Það sem þarf: 3 dl vatn 25 g ger 2 msk. olía ½ tsk. salt 8 dl hveiti 350 g salamí 1,5 dl pitsusósa 2 msk. óreganó 3 dl rifinn ostur ½ tsk. pipar Hrærið gerið út í volgt vatn. Hnoðið olíu, salti og hveiti saman við þar til deigið verður jafnt og fínt. Breiðið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast þar til það hefur stækkað um helming. Það má bæði búa til litlar pitsur og svo rúlla þeim upp í snúða. Þá fletur maður deigið út, smyr sós- unni yfir og raðar salamí á deigið og kryddar. Loks er osturinn settur ofan á. Rúllið deigið upp í pylsu sem skorin er í 1,5 cm sneiðar. Leggið snúðana á bökunarplötu sem klædd hefur verið með bökun- arpappír. Dreifið meira af osti yfir. Látið hefast í 10 mínútur aftur áður en sett er í 225°C heitan ofn. Bakið í 10-15 mínútur. Ef gerð er venjuleg pitsa er deiginu skipt niður í litlar pitsur og áleggið sett á. MÍNÍPITSUR Í FERÐALAGIÐ 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 F -A E 7 0 1 5 8 F -A D 3 4 1 5 8 F -A B F 8 1 5 8 F -A A B C 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.