Fréttablaðið - 25.07.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.07.2015, Blaðsíða 12
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12 ORKA NÁTTÚRUNNAR · Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is Nú liggur straumurinn í rafbílana og þess vegna hefur Orka náttúrunnar opnað 10 hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla á rúmu ári. Þannig leggjum við hinni hljóðlátu samgöngubyltingu lið og stuðlum að vistvænum samgöngum. Kynntu þér staðsetningu hraðhleðslustöðvanna og kosti rafbíla á heimasíðu okkar on.is Fylltu á rafbílinn með Orku náttúrunnar Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn um allt land og sér höfuðborgarbúum fyrir heitu vatni. Við nýtum auðlindir af ábyrgð til að bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð. Rafmagnið er komið í umferð E N N E M M / S ÍA / N M 6 9 4 0 2 VIÐSKIPTI Íslenska tölvuleikja- fyrir tækið Klang Games er metið á tæpan milljarð króna eftir hlutafjárkaup breska fjárfest- ingarfélagsins London Venture Capital í fyrirtækinu. Fjárfest- arnir keyptu hlut í félaginu fyrir 630 þúsund Bandaríkjadali, eða um 85 milljónir íslenskra króna. Klang Games var stofnað árið 2013 af Ívari Emilssyni, Oddi Snæ Magnússyni og Guðmundi Hallgrímssyni listamanni, sem jafnan er kallaður Mundi Vondi. Ívar og Oddur eru fyrrverandi starfsmenn CCP og hafa tals- verða reynslu af hönnun tölvu- leikja. Stofnendurnir eiga fyrir- tækið enn að mestu. Ívar segir að við fjárfestingu London Venture Capital hækki virði fyrirtækisins enn frekar þar sem það sé afar virt innan tölvuleikjaheimsins. Þá muni sambönd breska fyrirtækisins og reynsla þess hjálpa frekari vexti Klang Games. David Lau-Kee, meðeigandi hjá London Venture Capital, tekur sæti í stjórn fyrirtækisins. Lau- Kee var áður varaforseti tölvu- leikjarisans Electronic Arts. Klang Games er við það að gefa út sinn fyrsta tölvuleik, ReRunners, sem kemur út á snjallsíma. Til að byrja með verður leikurinn prufukeyrður á Filipps eyjum, Nýja-Sjálandi og í Ástralíu. Í kjölfarið er stefnt að því að leikurinn komi út um allan heim í október. Leikurinn kemur út á ensku, frönsku, ítölsku, þýsku og spænsku en nú stendur yfir vinna við að þýða leikinn. Ívar lýsir ReRunners sem risa- stórum heimi þar sem hægt er að ferðast um og keppa við aðra spil- ara. Framtíðarsýn Klang Games er skýr að mati Ívars. „Okkar mark- mið er að slá í gegn. Við erum að búa til alveg frábæran leik og við ætlum að halda áfram að reyna að búa til frábæra fjölspilunar- leiki,“ segir hann. Klang Games er staðsett í Berlín. Ívar segir einkum tvær ástæður fyrir því að fyrirtækið hafi valið að starfa þar. „Það er rosalega erfitt að fá erlenda fjár- festa til Íslands því peningurinn er fastur. Það er samt ekki aðal- ástæðan. Aðalástæðan er betri aðgangur að starfsfólki. Eins og ástandið er í dag er auðveldara að fá fólk til að flytja til Berlínar en Íslands,“ segir Ívar. - ih Virði Klang Games tæpur milljarður eftir fjárfestingu Breskir fjárfestar hafa keypt hlut í hinu íslenska Klang Games. Eftir kaupin er fyrirtækið metið á tæpan milljarð. Unnið er að útgáfu fyrsta leiks fyrirtækisins, ReRunners. Auðveldara þykir að starfa í Berlín en á Íslandi. FRUMKVÖÐLAR Ívar, Oddur og Guð- mundur stofnuðu Klang Games árið 2013 og eiga enn stærstan hlut í fyrir- tækinu. MYND/KLANG GAMES RERUNNERS Í leiknum verður hægt að keppa við aðra spilara í hinum ýmsu leikjum. MYND/KLANG GAMES Eins og ástandið er í dag er auðveldara að fá fólk til að flytja til Berlínar en Íslands. Ívar Emilsson, framkvæmdastjóri Klang Games. NEYTANDAMÁL Ísland er á meðal fimmtíu ríkja innan Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar sem hafa komist að samkomulagi um niður- fellingu tolla á upplýsingatækni- vörum. Stefnt er á að samningurinn taki gildi 1. júlí 2016 og munu toll- ar falla niður í fjórum áföngum til ársins 2019. Um er að ræða ýmsar vörur á borð við rafeindavogir, röntgentæki og ýmis fjarskipta- tæki. - srs Útvíkka tollasamning: Fimmtíu ríki fella niður tolla BRUNI „Við fengum boð frá Neyð- arlínunni um 12.20 og við hlupum í raun yfir götuna,“ segir Ámundi Gunnarsson, slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar, um eld sem kom upp í hinu nýopnaða Sigló Hóteli á Siglufirði um hádegisbilið í gær. Greiðlega gekk að slökkva eld- inn. Einn skar sig á hendi og fékk vott af reykeitrun í brunanum og var fluttur á Sjúkrahúsið á Akur- eyri. Eldhúsið er mjög illa farið, að sögn Ámunda. - jóe Betur fór en á horfðist: Eldur í eldhúsi Sigló Hótels SIGLÓ HÓTEL Einn slasaðist í brun- anum. MYND/ JÓN BJÖRGVIN ÓLAFSSON 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 F -B 3 6 0 1 5 8 F -B 2 2 4 1 5 8 F -B 0 E 8 1 5 8 F -A F A C 2 8 0 X 4 0 0 9 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.