Fréttablaðið - 25.07.2015, Síða 22
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
„Það er búið að bæta ofátsröskun
inn í greiningarskilmerki DSM-V
sem fjallar um geðraskanir og
þar með viðurkenna hana sem
sjúkdóm í læknavísindunum
ásamt öðrum átröskunum,“ segir
Teitur Guðmundsson, læknir hjá
Heilsuvernd.
Byggir á sömu rökum
og áfengisfíkn
Hann segir marga þeirrar skoðunar
að matarfíkn sé vandi sem byggi
á sömu grundvallarrökum fíknar
og eigi við um áfengi, vímuefni og
þess háttar. „Rannsóknir staðfesta
að sömu svæði heilans virðast
virkjast við slíka fíkn og er því
haldið fram að ákveðin efni séu
verri en önnur. Sérstaklega er þá
verið að horfa til einfaldra kolvetna
en einnig fitu, þetta samhengi
er þó enn á rannsóknarstigi í
raun og umdeilt. Ljóst er að
við skiljum þessa ferla ekki
enn til hlítar.“
Hann segir hópa sem halda
því fram að þessi fíkn sé til
hafa verið til um margra ára
skeið. „Þeir hinir sömu hafa
talið að meðferðin eigi að
byggja á sama grunni og
við áfengisfíkn svo dæmi
sé tekið, með AA-nálgun
og 12 spora kerfi sem
hefur vafalítið hjálpað
mörgum, en eins og
við aðra fíkn er hættan
á því að falla alltaf til
staðar.“
Matarfíklar ekki
endilega of feitir
„Það er ákveðinn
misskilningur að
þeir sem þjáist af
ofátsröskunum,
matarfíkn eða hvaða
nafni við viljum kalla
það séu endilega of
feitir. Margir ná að
halda sér í kjörþyngd með þjálfun á
móti eða eru erfðafræðilega betur í
stakk búnir til að takast á við slíkan
vanda og fitna síður,“ útskýrir Teitur
og bætir við að samspil erfða, um-
hverfis og annarra slíkra þátta hafi
áhrif á þróun offitu sem sértæks
vanda.
Pössum okkur
á fitufordómum
„Þeir sem glíma við offitu eru lík-
legri til að þróa með sér svokallaða
lífsstílssjúkdóma en aðrir með tím-
anum, það er þó ekki neitt línulegt
samhengi á milli heilbrigðis og
líkamsþyngdar í raun, mun fleiri
þættir spila þar inn í og er vert
að passa sig á fitufordómum sem
grundvallast á útliti einu saman.“
Teitur segir þá nálgun á vanda
sem felst í fíkn, ofáti, offitu
og andlegum eða líkam-
legum birtingarmyndum
felast alltaf í þverfaglegri
nálgun. „Einfaldar lausnir
við flóknum vanda duga
sjaldnast og þessi eina
pilla eða eina meðferð sem
virkar er ekki til í dag, því
miður. Það gildir jafnt
um megrunarkúra,
skurðaðgerðir
eða annað
viðlíka þó að
hvert um sig
geti vissulega
haft einhver
áhrif. Í dag
er talið að
það að hafa
innsæi í
vanda sinn,
að bregðast
við honum, leita
sér aðstoðar og
iðulega breyting á
lífsstíl sé líklegust
til árangurs þegar
til lengri tíma er
litið.“
Ofátsröskun er viðurkenndur sjúkdómur
„Okkar nálgun er sú að við lítum
ekki á þetta sem matarfíkn, heldur
óheilbrigt samband við mat. Slíkt
getur orðið af ýmsum ástæðum,“
segir María Þóra Þorgeirsdóttir,
sálfræðingur í átröskunarteymi
Landspítalans. Hún segir stærsta
áhættuþáttinn í því að þróa með sér
átröskun vera megrun.
„Það sem gerist í megrun er oft
það að fólk fer að búa til ósveigj-
anlegar og strangar reglur. Að
annað hvort sé eitthvað í lagi eða
alls ekki. Þegar maður býr sér til
slíkar reglur, þá oft eykst þráhyggj-
an um það sem má ekki. Maður fer
meira að hugsa um súkkulaðið sem
má alls ekki borða.“
Brjóta reglur og leita í öfga
Hún segir átraskanir vera margs
konar, en þegar fólk sé að glíma
við átköst hafi það yfirleitt sett sér
strangar reglur um það sem má og
má ekki borða, sé með langan bann-
lista.
„Þegar fólk svo brýtur þessar
reglur fer það yfir í öfgarnar, þar
sem það hefur hvort sem er brotið
þessar reglur og getur því allt eins
misst sig í stjórnleysi.“
Reglurnar eru vandamálið
Þegar fólk kemur inn til ykkar og
lýsir því yfir að það sé matarfíklar,
hvað gerið þið þá?
„Við byrjum á því að skoða
mynstrið. Þá koma þessar reglur
oft í ljós. Stjórnleysið gagnvart mat
hefur svo oft áhrif á sjálfsmatið,
fólki finnst það ömurlegt og ekki
geta neitt. Þessi vanlíðan eykur oft
á stjórnleysið. Það eru þessar regl-
ur sem eru vandamálið. Við viljum
að fólk hafi heilbrigð viðmið. Það
er að segja, við borðum ekki súkk-
ulaði í öll mál en ef okkur langar
virkilega í það er það allt í lagi.“
Fólk má borða eitthvað gott
María segir reglurnar geti leitt til
þess að fólk svelti sig en missi sig
svo og borði of mikið. „Svo getur
það tekið ákvörðun um að borða
ekkert daginn eftir. En líkaminn og
hugurinn kallar á næringu, og lík-
aminn kallar ekki á brokkólí þegar
hann er sveltur heldur fljóta orku
og þess vegna missir fólk sig í sykri
og kolvetnaríkum mat. Við erum
mikið í því að reyna að útrýma
þessum reglum, eða milda þær til
muna. Fólk má borða eitthvað gott.“
Áföll oft að baki
María segir aðra hluti oft liggja að
baki átröskunum. „Það er þá til-
finningatengt át og vanlíðan. Af
hverju er það að leita í mat? Það
geta verið ýmsar ástæður fyrir
fíkn, til dæmis alkóhólisma. Oft
er það undirliggjandi vandi sem
fólk er að medíkera með áfengi
eða mat. Oft eru áföll þarna á bak
við eða brotin sjálfsmynd. Það
þarf að vinna í því að uppræta
það og finna hjálplegri leiðir til
þess að komast út úr vanlíðan.
Þú getur ekki tekið út óheilbrigð
bjargráð án þess að hafa önnur í
staðinn.“
Ekki nóg að fjarlægja matinn
Hvað með 12 spora samtök, líkt
og Grey Sheet Anonymous (GSA)
og Overeaters Anonymous (OA)?
„Það er alltaf gott að fólk finni
eitthvað sem hjálpar. Ég held
að fyrir manneskju sem upp-
lifir stjórnleysi gagnvart mat sé
oft ekki nóg að fjarlægja bara
ákveðinn mat. Ég held að það sé
ekki endilega hjálplegasta leiðin
til að takast á við vandann. Það
þarf að skoða af hverju maturinn
er vandamál. Ég held að margir
sem taka út fæðutegundir, sykur
eða hveiti eða hvað sem er, séu
svolítið á hnefanum. Ég þekki það
úr minni vinnu að fólk sem fellur
eftir að hafa lengi neitað sér um
ákveðnar fæðutegundir upplifir
sig enn stjórnlausari eftir fallið
og með enn brotnari sjálfsmynd
en áður.“
María segir fólk sem á í óheil-
brigðu sambandi við mat geta
verið af öllum stærðum og gerð-
um. „Stór hluti þeirra sem eru í
ofþyngd eru með það sem heit-
ir lotuofát, taka átköst. Það eru
samt alls ekki allir í yfirþyngd
sem glíma við það. Svo halda
margir að til þess að vera með
átröskun þurfi maður að vera
mjög horaður, það er heldur ekki
rétt.“
Þurfum ekki að hætta að borða
Okkar mottó er að það er allt
leyfilegt í hófi. Þessi allt eða
ekkert hugsun, hún er mjög
slæm og leiðir til óhófs í hvora
áttina sem er. Það að kljást
við átröskun er mikil vinna og
getur tekið tíma. Það þarf að
meðhöndla þetta og þá ættirðu
ekki að þurfa að hætta að borða
ákveðinn mat. Matur er ekki
vandamálið heldur viðhorfið,
tilfinningarnar og hugsanirn-
ar. Við viljum byggja upp mann-
eskjuna, byggja upp sjálfsmynd
hennar. Svo er ekki neitt til sem
heitir fullkomin stjórn. Þá erum
við aftur komin í þessar öfgar.“
Reglurnar eru vandamálið
Sálfræðingur í átröskunarteymi LSH segir stærsta áhættuþáttinn í því að þróa
með sér átröskun vera megrun. Hún segir ekkert til sem heitir fullkomin stjórn.
1. Notar þú stundum mat, skyndibita, sælgæti til að „fylla upp í tómarúm“
þegar þér leiðist eða þú ert einmana?
2. Borðar þú stundum meira en þú ætlaðir þér?
3. Hefur neysla þín á mat, skyndibita eða sælgæti aukist á einhvern hátt
frá því fyrir einhverjum mánuðum eða árum?
4. Eyðir þú
stundum meiri
fjármunum í
mat, skyndibita
eða sælgæti
en þú ættir að
gera?
5. Hafa fjöl-
skylda, vinir eða
atvinnurekandi
verið áhyggjufull
vegna áthegð-
unar þinnar eða
útlits?
6. Gerir þú lítið úr áti þínu með því að segja öðrum að þú sért annaðhvort
í átaki eða á leiðinni í það?
7. Hefur þú beitt þig hörðu og fastað eða fara í stranga megrun til að sýna
að þú hafir stjórn á vandanum?
8. Hefur þú byrjað í eða ætlað að byrja í átaki þrisvar eða oftar á síðast-
liðnum 6 mánuðum?
9. Heldur þú áfram að borða ákveðna fæðuflokka vegna þeirrar fróunar
sem þeir veita þér, jafnvel þótt þú vitir að þeir séu skaðlegir fyrir þig?
10. Hefur þú tilhneigingu til að borða áberandi meira þegar þú ert undir
miklu álagi?
11. Finnst þér að ástæðurnar fyrir ofáti þínu séu vegna þeirra vandamála
sem þú átt við að etja í lífi þínu?
*Spurningalistinn er tekinn af heimasíðu MFM– Meðferðar- og
fræðslumiðstöðvar vegna matarfíknar og átraskana
Er ég matarfíkill?
Matarfíklar missa sig í stjórnleysi
Matarfíkn eða ofátsröskun hefur nýlega verið viðurkennd sem sjúkdómur. Stór hluti þeirra sem eru í ofþyngd eru með svokallað lotuofát
og taka átköst. Það á þó ekki við um alla feita. Margir segja matarfíkn vanda sem byggist á sömu rökum fíknar og áfengi og vímuefni.
PÖSSUM FITUFORDÓMANA Það er margt sem spilar inn í ofþyngd. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Oft er
það undir-
liggjandi
vandi sem
fólk er að
medíkera
með áfengi
eða mat. Oft eru áföll
þarna á bak við eða brotin
sjálfsmynd.
María Þóra Þorgeirsdóttir, sálfræðingur
í átröskunarteymi Landspítalans.
Heimild: Landlæknisembættið
18-44 ára 45-66 ára 67-79 ára
■ Karlar ■ Konur
➜ Hversu sátt/ur eða
ósátt/ur ert þú við
eigin líkamsþyngd?
Hlutfallsleg skipting svara árið 2012
60%
40&
20%
0%
47
,8
%
35
,3
%
47
,9
%
39
,8
%
55
,8
%
45
,9
%
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
F
-8
6
F
0
1
5
8
F
-8
5
B
4
1
5
8
F
-8
4
7
8
1
5
8
F
-8
3
3
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K