Fréttablaðið - 25.07.2015, Síða 50
KYNNING − AUGLÝSINGMatur í ferðina LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 20158
Gott skipulag auðveldar úti-
legulífið svo um munar og
getur skipt miklu hvernig hlut-
unum er pakkað og raðað. Það
er til dæmis óráðlegt að troða
sem mestu í eina stóra tösku.
Betra er að vera með fleiri minni
svo ekki þurfi að róta til botns
í leit að því sem vantar hverju
sinni. Gott er að hver um sig
hafi eina tösku fyrir föt og aðra
fyrir sundföt og handklæði svo
dæmi séu nefnd. Þá er gott að
vera með eina tösku fyrir snyrti-
og hreinlætisvörur og eina
tóma fyrir óhreint tau.
Gott er að hafa það í huga að
velja töskur sem eru svipaðar í
laginu svo auðvelt
sé að stafla
þeim upp.
Þá er gott
að setja eld-
húsáhöld,
matvöru,
leikföng og
annan búnað
í glæra plast-
kassa. Bæði vegna
þess að það er auðvelt að stafla
þeim upp og eins er gott að
geta séð hvað er í hverjum
fyrir sig. Minni plastbox eru líka
ómissandi utan um matinn og
er sniðugt að hafa þau öll eins
í laginu til að sem auðveldast
sé að raða þeim hverju ofan á
annað og koma þeim fyrir. Víða
er hægt að fá misstór ferköntuð
eða hringlaga box með loki
sem hægt er að setja hvert ofan
í annað eftir notkun. Það sparar
mikið pláss.
KÚNSTIN AÐ PAKKA
Þeir sem lásu Ævintýrabækurnar
eftir Enid Blyton muna eflaust
eftir nestiskörfunum sem börnin
í bókunum voru send með þegar
þau fóru í svaðilfarir að leysa
dularfull mál. Í þeim mátti finna
kúrennukökur, kalt nautakjöt, sam-
lokur með aldinmauki og mjólk á
flöskum ásamt gæludýrafæði þegar
við átti. Enda ekki hægt að ástunda
glæpalausnir á fastandi maga, ekk-
ert frekar en ferðalög, gönguferðir
og útilegur ganga upp án þess að
næringin sé góð og í réttu magni.
Það er mikilvægt að huga vel að því
hvaða matur fer með í útileguna en
það er hins vegar alveg óþarfi að
gera nesti eitthvað flókið. Dæmi-
gert íslenskt nesti frá síðari hluta
tuttugustu aldar stendur enn þá
fyrir sínu:
Flatkökur með hangikjöti, sem
eru lagðar saman á hangikjötinu
og staflað í nestisbox, harð-
soðin egg og tómatar í eggjabakka,
samlokur með smjöri, osti og
tómötum eða rækjusalati og upp-
rúllaðar pönnukökur með sykri að
ógleymdri hjónabandssælu eða
súkkulaðiskúffuköku sem var skorin
í ferninga og raðað í makkintoss-
dósir og boðið upp á í eftirrétt.
Kaffi á brúsa, djús í fernum, mjólk í
flösku og útilegan getur hafist.
GAMALDAGS GOTT NESTI
HEIMAGERÐIR BITAR
Þó að snakk, sykurpúðar, hraun-
bitar og grillkjöt séu ómissandi
í útileguna er eitthvað notalegt
við að geta stungið upp í sig
heimagerðum bitum inni á milli.
Það er til dæmis sniðugt að baka
skinkuhorn, frysta og grípa þau
með rétt áður en lagt er í hann.
Sömuleiðis að gera hið sívinsæla
döðlugott sem skorið er í litla
munnbita og fer vel í boxi. Þá má
skera hjónabandssælu í kubba og
raða í box með bökunarpappír á
milli. Rice Crispies-kökur geymast
líka vel og eru því tilvaldar í ferða-
lagið. Þeir sem nenna að leggja
það á sig að útbúa litlar kjötbollur
sjá yfirleitt ekki eftir því en þær
eru afbragð, kaldar eða upp-
hitaðar, með góðri ídýfu. Þá er
sniðugt að skera niður gulrætur,
rófur og annað grænmeti sem
geymist vel.
Tímalaus máltíð
ORA Heimilismatur lætur tímann og hjartað ráða för því réttirnir eru tilbúnir
á aðeins örfáum mínútum. Ljúffengir, hollir og fjölbreyttir réttir fyrir alla fjölskylduna.
Ding og maturinn er tilbúinn.
V
E
R
T
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
F
-9
5
C
0
1
5
8
F
-9
4
8
4
1
5
8
F
-9
3
4
8
1
5
8
F
-9
2
0
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K