Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 61

Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 61
LAUGARDAGUR 25. júlí 2015 | MENNING | 33 SUNNUDAGUR Átak á vegum druslugöngunnar sem ber nafnið „drusluákall“ fór af stað fyrir aðeins tveimur dögum og nú þegar hafa hundruð kvenna og karla sagt sögu sína og tekið afstöðu með málstaðnum. Viðbrögðin við drusluákallinu hafa ekki látið á sér standa en þetta er það sem skipuleggjendur druslu- göngunnar voru að vonast eftir. „Það er ekki alveg hægt að gera sér grein fyrir hvort svona grípi eða ekki en við vitum að það eru margir sem hafa lent í einhverju og þetta er góð leið til þess að kalla eftir breytingum hjá lögreglu og stjórnvöldum. Eftirfylgnin í þessum málum í dag er lítil sem engin. Nú er þessi bylting orðin of stór til þess að við náum að fylgjast með enda er þetta einhvers konar sameining á öllum þeim byltingum sem hafa átt sér stað á þessu ári. Slagorð göng- unnar er „Ég á mig sjálf“ og það á vel við það sem er að gerast í sam- félaginu,“ segir María Rut Kristins- dóttir, talskona druslugöngunnar. Guðfinna Jóhanna Guðmunds- dóttir borgarfulltrúi sagði í gær frá því að hún hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi þegar hún var ung. María telur þetta setja sterkt fordæmi fyrir eldri kynslóðir þar sem þöggunin er hvað mest. „Guð- finna er að sýna ótrúlegt hug- rekki með því að segja frá þessu. Það sem við viljum er að fleiri af hennar kynslóð segi sögu sína þar sem svo margir eru að burðast með sína skömm sem er svo tilgangs- laust. Ég veit hvernig þetta er og frelsið sem ég upplifði með því að segja frá.“ Druslugangan verður farin frá Hallgrímskirkju klukkan tvö í dag og endar á Austurvelli þar sem verða fluttar ræður og tónlistar- atriði. „Það er allt klárt. Við verðum með skiltagerð fyrir gönguna og svo erum við búin að redda meiri varn- ingi. Drusluderhúfurnar seldust upp á 20 mínútum í partíinu okkar á miðvikudaginn og við þurftum að grátbiðja um meira. Hægt verður að kaupa drusluvarning hjá Hallgríms- kirkju og á Austur velli á meðan birgðir endast.“ gunnhildur@frettabladid.is Þöggunin er enn til staðar Druslugangan verður gengin frá Hallgrímskirkju klukkan tvö í dag. Átakið „drusluákall“ hefur vakið mikla athygli seinustu daga. DRUSLU- GANGA Í dag verður druslugang- an gengin í fimmta sinn. MYND/ANDRI LAUGARDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 25. JÚLÍ 2015 Tónleikar 12.00 Orgelleikarinn János Kristófi leikur á tónleikum á Alþjóðlegu orgel- sumri í Hallgrímskirkju í dag og mun leika verk eftir J.S. Bach og Franz Liszt. Miðaverð er 2.000 krónur. 14.00 Sigurður Flosason spilar á tón- leikum í Menningarhúsinu Hofi á Akur- eyri ásamt djass- og blúsbandinu Blue Shadows. Einnig verða tvennir tónleikar á sunnudaginn, klukkan 14.00 og 20.00. Miðaverð er 2.900 krónur. 16.00 Þóra Einarsdóttir sópran og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleik- ari leika á tónleikum á Reykholtshátíð í Reykholtskirkju. Á tónleikunum verður brugðið upp svipmyndum frá upphafsárum tónleikahefðar á Íslandi til aldamótanna 1900. Miði á staka tónleika á hátíðinni kostar 3.500 krónur og hátíðar- passi 9.000 krónur. 20.00 Finnski lágfiðluleikarinn Atte Kilpeläinen spilar á kammertónleikum á Reykholtshátíð í Reykholtskirkju. Miðaverð á staka tónleika er 3.500 krónur og hátíðar- passi á 9.000 krónur. 21.00 Belgíski hönnuðurinn og listamað- urinn Nicolas Kunysz spilar í Mengi í kvöld en hann gefur einnig út plötuna Music for Islands í dag. Miðaverð er 2.000 krónur. 22.00 Rúnar Þór og hljómsveit spila á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Miðaverð er 2.500 krónur. 22.00 Börn, Kælan mikla og Antimony spila á tónleikum á Dillon í kvöld. Aðgangur ókeypis. 22.00 Andrea Gylfa og Bíóbandið halda tónleika á Café Rosenberg í kvöld. Miðaverð er 2.000 krónur. 23.00 Hljómsveitin Autonomous heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Á undan verður flutt Chili Peppers tribute dagskrá. Aðgangur ókeypis. Opnanir 15.00 Sýningin Kyrralíf / Still life verður opnuð í Kunstschlager í D-sal Hafnar- hússins í dag. Söfn 14.00 Kínasafn Unnar á Njálsgötu 33 er opið til klukkan 16.00 í dag. Uppákomur 14.00 Aflraunakeppnin Reykvíkingurinn 2015 verður haldin fyrir utan Frederik- sen Ale House. Ókeypis aðgangur verður að svæðinu og hefst keppnin með drumbalyftu. 14.00 Ljóðadagskrá á Loft hosteli í Bankastræti í dag. Gregory Betts flytur eigin ljóð og Ewa Marcinek og Randi Stebbins lesa báðar úr verkum sínum í fyrsta sinn. Anna Valdís Kro stýrir dagskránni en að henni stendur Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Allir velkomnir. Tónlist 21.00 Dj Simon FKNHNDSM þeytir skífum á Bravó í kvöld. 22.00 Dj Kári þeytir skífum á Kaffi- barnum í kvöld. 22.00 Dj Sir Danselot þeytir skífum á Slippbarnum í kvöld. 22.00 Logi Pedro þeytir skífum á Prikinu í kvöld. 23.55 Jón Eðvald og Steindór þeyta skífum á Paloma í kvöld. Markaðir 13.00 Götumarkaðurinn KRÁS verður haldinn í fjórða sinn í sumar í Fógetagarðinum. 13.00 Listamarkaður á Bernhöfts Bazaar á Bernhöftstorfu í dag á horni Banka- strætis og Lækjar- götu. Málverk, grafík, tískuteikn- ingar, skúlptúrar og fleiri listaverk verða til sölu og sýnis á seinasta Bazaar sum- arsins. Dj Thelma og Louise þeyta skífum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 26. JÚLÍ 2015 Tónleikar 15.00 Andri Ívarsson heldur tónleika í gróðurhúsi Norræna hússins þar sem hann fléttar tónlist inn í uppi- stand. Tónleikarnir eru hluti af Pikk- nikk tónleikaröðinni og er aðgangur ókeypis. 16.00 Fjölbreyttir lokatónleikar Reyk- holtshátíðar í Reykholtskirkju. Þrjár útsetningar eftir Herbert Ágústsson fyrir fiðlu og selló á þekktum þjóðlög- um, strengjatríó Jean Sibelius í g-moll flutt, þrjú íslensk dægurlög í útsetningu Þórðar Magnússonar flutt og píanó- kvartett í Es-dúr op. 47 eftir Robert Schumann. Miðaverð er 3.500 krónur. 17.00 János Kristófi leikur verk eftir J.S. Bach og Franz Liszt á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju. Miðaverð er 2.500 krónur. 21.00 Þýska hljómsveitin Urubugalin- has spilar á tónleiku í Frystiklefanum á Rifi. Síðustu Forvöð 14.00 Lokadagur einkasýningar Helga Þórssonar, Benelúx verkstæðið í Kling&Bang. Uppákomur 13.00 Jógaleikhús og leikir á Árbæjar- safni. Bríet blómálfur og Skringill skógarálfur bjóða alla velkomna á jógaleiksýningu klukkan 14.00 og einnig verður boðið upp á leikjadag- skrá. Frítt inn á safnið fyrir börn yngri en 18 ára. Tónlist 20.00 Trúbadorinn Andri P verður á English Pub. 21.00 Dj Halli Einars þeytir skífum á Lebowski Bar. 21.00 Trúbadorinn Siggi Þorbergs verður á American Bar. 21.00 Dj Árni Vector þeytir skífum á Kaffibarnum. 21.00 Dj Teksole þeytir skífum á Bravó. Söfn 14.00 Kínasafn Unnar á Njálsgötu 33 er opið í dag, fornir munir, nýtt te og piparkökur. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 8 F -B 3 6 0 1 5 8 F -B 2 2 4 1 5 8 F -B 0 E 8 1 5 8 F -A F A C 2 8 0 X 4 0 0 9 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.