Fréttablaðið - 25.07.2015, Page 64
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 36
Þórey Svana Þórisdóttir hefur
verið að safna postulínsstyttum af
dýrum í yfir 15 ár. Safnið telur í
kringum 66 styttur en það eru ekki
hvaða dýrastyttur sem er sem fá
að vera með í safninu. „Þetta eru
þrjú dönsk merki sem ég er að
safna frá. Það eru Royal Copen-
hagen, Bing & Grøndal og Dahl
Jensen. Ég kaupi þær ýmist sjálf
eða set þær á óskalistann fyrir
jólin eða afmælið. Uppáhaldsstytt-
urnar mínar eru frá Dahl Jensen
en þær eru svo lifandi, eins og þær
séu á hreyfingu.“
Bæði Bing & Grøndal og Dahl
Jensen hafa nú verið sameinuð
Royal Copenhagen og framleiðsl-
an verið færð til Taílands. „Allar
þær styttur sem ég á eru fram-
leiddar í Danmörku. Þær eru allar
gamlar og ég fæ þær oftast í antík-
búðum og skranmörkuðum. Þeim
hefur farið fækkandi hér á landi
en ég er nýkomin frá Danmörku og
ég keypti mér níu styttur í þeirri
ferð.“
Þrátt fyrir að Þórey eigi mikinn
fjölda af styttum þá er safnið ekki
nærri því fullkomið. „Það eru enn
þá styttur sem mig langar í sem
ég hef ekki enn þá tímt að kaupa
mér. Mig langar mjög mikið í uglu
í raunstærð og íslenskan fálka. Ég
myndi segja að helmingur safns-
ins sé fuglar en ég er að reyna að
vinna í því að lækka hlutfallið og
hafa meiri fjölbreytni. Það er bara
oft þannig að fuglastytturnar eru
langfallegastar. Þegar ég vel mér
styttu þá er mikilvægt að hún tali
til mín og sé lifandi, það þarf að
vera tenging. Ég hef ekki farið út í
það að safna styttum af mannfólki
þar sem þær horfa oftast niður og
mér finnst það mjög leiðinlegt og
líflaust. Dahl Jensen gerði þó flott-
ar mannastyttur en þær eru allt of
dýrar. Sú dýrasta sem ég hef keypt
mér kostaði 60.000 krónur en sú
ódýrasta var í kringum 3.000 krón-
urnar.“
Þórey er með sér glerskáp þar
sem hún geymir stytturnar en
hann er orðinn alltof lítill fyrir
sívaxandi safnið. „Ég var alltaf
með þær úti á hillu en nú þegar
þær eru komnar inn í skápinn þá
þarf ég ekki að þurrka jafn mikið
af þeim. Ég þríf þær alltaf vel
þegar ég er nýbúin að kaupa þær
og svo þarf ég voða lítið að hugsa
um þær.“
gunnhildur@365.is
Sættir sig ekki við
hvaða styttu sem er
Frá því að hún fékk fyrstu postulínsdýrastyttuna aðeins 16 ára gömul hefur
Þórey Svana safnað 66 styttum á 15 árum. Meirihluti safnsins eru fuglar.
ELSKAR STYTTUR Þórey á þrjár bækur sem fjalla um dýrastyttur frá merkjunum sem hún kaupir frá. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KONUNGLEGT POSTULÍN Stytturnar
hennar Þóreyjar eru með sinn eigin
skáp. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PIXELS 2, 5, 8, 10:15
ANT-MAN 3D 8, 10:30
SKÓSVEINARNIR 2D 2, 4, 6
MINIONS 2D 4, 6
TED 2 10:35
JURASSIC WORLD 2D 8
SKÓSVEINARNIR 3D 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
SÝND í
2D OG 3D
SÝND MEÐ
ÍSL OG ENS TALI
SÝND KL. 2SÝND KL. 2 SÝND Í 2D OG 3D
SÝND Í 2D
ÍSL
TAL
ÍSL
TAL
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
bio. siSAM
METRO NY
NEW YORK DAILY NEWS
SPARBÍÓ
IN TOUCH
VARIETY
CHICAGO SUN TIMES
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS
OG GUARDIANS OF THE GALAXY
EMPIRE
TOTAL FILMVARIETY
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
Góða skemmtun í bíó
2
4
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
F
-B
3
6
0
1
5
8
F
-B
2
2
4
1
5
8
F
-B
0
E
8
1
5
8
F
-A
F
A
C
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K