Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.07.2015, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 25.07.2015, Qupperneq 70
25. júlí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 42 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is NÆRMYND MAKI: Svanur Guðmundsson FÆDD: 14. apríl 1969 Svanur Guðmundsson eiginmaður Guðfinna er elskuleg, öflug, eldklár og ákveðin. Við erum búin að vera saman 24/7 frá því að við kynntumst fyrir tæpum tíu árum. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir vinkona Guðfinna er svo dugleg og drífandi að ég verð stundum hálfhrædd við hana. Hún er mann- eskjan sem slær upp veislu fyrir átján með klukkustundar fyrirvara og sú sem kaupir sextíu jólagjafir á hálf- tíma. Kristján Guðmundsson bróðir Ég er nýfluttur heim og hlakka til þess að eyða meiri tíma með henni. Ég ber gífurlega mikla virðingu fyrir henni og hennar störfum. Hreinskilnari manneskju hef ég ekki hitt. Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi og lögmaður Guðfinna Jóhanna er borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins. Hún er lögfræðimenntuð og starfar við það ásamt því að vinna hjá borginni. Hún á einn son og tvo sonarsyni. Í gær gerðist Guðfinna hug- rökk og sagði frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir þegar hún var ung og áfallastreituröskun sem hún hefur þurft að glíma við síðan. Guðfinna ásamt fleiri fórnarlömbum kynferðisofbeldis hefur sett frábært fordæmi með því að segja frá reynslu sinni í aðdraganda Druslugöngunnar sem fer fram í dag. „Þetta voru erfiðustu tökur sem við höfum tekið þátt í. Við erum eigin- lega búnir að vera á fullu í tökum frá því klukkan tíu á miðviku- dagsmorgni og þangað til núna,“ segir fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal. Hann og Steindi Jr. hafa undan farna daga verið í tökum fyrir nýtt tónlistarmyndband, sem er við Þjóðhátíðarlag þeirra félaga í útvarpsþættinum FM 95Blö. Lagið er tökulag en útgáfa Blö- bræðranna ber titilinn Ég fer á Þjóðhátíð. „Við lofuðum Þjóð- hátíðar lagi, síðast tókum við Backstreet boys-lagið Incomplete en núna er það lagið Titanium. Ég, Steindi og Ásgeir úr StopWaitGo sömdum textann og þeir í Stop- Wait Go hjálpuðu okkar að útfæra þetta,“ segir Auddi um lagið. Egill Einarsson var þó megin- drifkrafturinn í myndbandsgerð- inni þó svo að hann hafi verið vant við látinn í tökunum. „Ástæðan fyrir því að við ákváðum að kýla á að gera myndband og lag var sú að Egill var alltaf að tuða í okkur um að við yrðum að vera með nýtt lag og myndband klárt fyrir Þjóð- hátíð. Hann var samt staddur í 30 stiga hita á Tenerife með mojito þegar hann var að tuða í okkur, á meðan ég og Steindi þurftum að klífa fjöll og synda í sjó,“ segir Auddi um upphafið. „Myndbandið fjallar um það að Steindi ætlaði að koma að sækja mig fyrir Þjóðhátíð en hann kemur of seint og við reynum allt sem við getum til þess að ná að komast á Þjóðhátíð, styttum okkur leiðir og ég veit ekki hvað og hvað,“ útskýrir Auddi. Þess má til gamans geta að sögu þráður myndbandsins varð til í raun og veru því þeir félagar misstu af Herjólfi þegar þeir ætluðu til Vestmannaeyja til að skjóta hluta myndbandsins. „Við misstum af Herjólfi því Steindi var of seinn, hann fékk aldeilis að heyra það, kallinn. Við náðum samt að nýta tímann í aðrar tökur.“ Auddi lenti þó í smá hremm- ingum þegar í Landeyjahöfn var komið. „Það var bakkað á bílinn minn þannig að hann er klesst- ur. Ég þurfti að skilja hann eftir og við gerðum tjónaskýrsluna í Herjólfi,“ bætir Auddi við. Útvarpsþátturinn FM 95Blö verð- ur sendur út beint frá veitingastaðn- um 900 Grill í Eyjum næsta föstu- dag og þá ætla þeir félagar einnig að troða upp á Brekkusviðinu í dalnum. „Þetta er FM 95Blö og gestir. Þarna verða Steindi og Bent, Sverrir Berg- mann, Egill Einarsson ætlar að dj-a og svo verðum við með leynigest. Ég lofa þéttri og óvæntri skemmt- un,“ segir Auddi spurður út í atriðið þeirra á Þjóðhátíð. Myndbandið við Þjóðhátíðar lagið, sem framleitt er af framleiðslu- teyminu IRIS, verður frumsýnt á Vísi um helgina. gunnarleo@frettabladid.is Bakkað á bílinn og missa af Herjólfi Auðunn Blöndal og Steindi Jr. hafa lokið við að taka upp tónlistarmyndband við Þjóðhátíðarlagið sitt. Þeir félagar lentu í ýmsu við gerð myndbandsins. Alþjóðleg dómnefnd Evrópsku kvik- myndahátíðarinnar í Palic í Serbíu, sem nú er haldin í 22. skiptið, valdi Hrúta Gríms Hákonarsonar sem bestu mynd hátíðarinnar af þeim tólf sem kepptu í aðalkeppninni og hlýtur hún því Golden Tower-verð- launin þetta árið. Grímur Hákonarson leikstjóri og Grímar Jónsson, framleiðandi myndarinnar, voru gestir hátíðar- innar. „Þetta er mikill heiður, það voru sterkar myndir og reynslu- miklir leikstjórar með okkur í keppninni, menn eins og Nanni Moretti og Jaco Van Dormael, þannig að maður bjóst ekki við neinu. En það er vissulega gaman og ekki slæmt að hafa unnið til verð- launa alls staðar þar sem við höfum verið í keppni fram að þessu. Fram undan eru hátíðir og frumsýning- ar víðast hvar í heiminum og því mjög spennandi tímar fyrir Hrúta. Myndin er enn þá í bíó hérna heima og gengur bara vel,“ segir Grímar Jónsson. „Það eru mikil forrétt- indi að ferðast og hitta kollega sína á hátíðum sem þessum. Ég hitti sænska leikstjórann Roy Anderson þarna, sem var heiðursgestur hátíð- arinnar, og við töluðum um að það gæti verið áhugavert að gera mynd um rabarbarabónda í Færeyjum. Sjáum hvað setur með það,” segir Grímur Hákonarson. - glp Sigurganga Hrúta heldur áfram Hrútar var valin besta kvikmyndin á Kvikmyndahátíðinni í Palic í Serbíu í gær. SÁTTIR Grímur Hákonarson og Grímar Jónsson voru gestir á hátíðinni. SJÓMENN Auðunn Blöndal og Steindi jr. leggja ýmislegt á sig í myndbandinu. MYND/AÐSEND 2 4 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 F -7 8 2 0 1 5 8 F -7 6 E 4 1 5 8 F -7 5 A 8 1 5 8 F -7 4 6 C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 7 2 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.