Fréttablaðið - 28.09.2015, Síða 4
Nicotinell, lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Hætta skal alfarið reykingum meðan á meðferð með Nicotinell
stendur. Upphafsskammtur skal ákvarðaður út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Verði vart við aukaverkanir þegar hærri styrkleiki er notaður skal íhuga að skipta yfir í lægri styrkleika. Meðferðarlengd er einstaklingsbundinn. Samtímis neysla á súrum drykkjum, eins og t.d. kaffi og sódavatni, getur minnkað frásog nikótíns í munni.
Forðast skal þessa drykki í 15 mínútur fyrir notkun lyfjatyggigúmmís. Tyggja skal eitt stykki Nicotinell lyfjatyggigúmmí við reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stykki á sólarhring, þó ekki fleiri en 15 stykki af 4 mg lyfjatyggigúmmíi og 25 stykki af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Vegna eiginleika lyfjatyggigúmmís sem lyfjaforms getur nikótínþéttni
í blóði verið mismunandi á milli einstaklinga. Því skal miða tíðni skammta við einstaklingsþörf, innan uppgefinna hámarksskammta. Tyggja skal eitt lyfjatyggigúmmí þar til finnst sterkt bragð. Lyfjatyggigúmmíið skal því næst hvíla á milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal byrja að tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mínútur.
Í flestum tilfellum skal meðferðin standa í a.m.k. 3 mánuði. Eftir 3 mánuði skal draga smám saman úr notkun. Venjulega er ekki mælt með notkun Nicotinell lyfjatyggigúmmís lengur en í eitt ár. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin
til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Þeir sem reykja ekki og þeir sem hafa ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna eiga ekki að nota Nicotinell. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota Nicotinell ef þú: ert
þunguð, með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi. Einstaklingar undir 18 ára aldri mega ekki nota Nicotinell nema að læknisráði. Nikótín sem er gleypt getur valdið
versnun einkenna hjá sjúklingum sem eru með bólgu í vélinda, munni eða koki, magabólgu eða magasár. Einstaklingum með gervitennur, eiga við vandamál í liðamótum kjálka og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform en lyfjatyggigúmmí. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota
lyfjatyggigúmmíið. Athuga ber að lyfjatyggigúmmíið og munnsogstöflurnar innihalda natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321) sem getur valdið staðbundinni ertingu slímhúðar en sumar bragðtegundir innihalda að auki sorbitól (E420), maltitól (E965) eða aspartam (E 951) sem ekki allir mega taka. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
®
Ertu að hætta að reykja?
Veistu hvaða bragðtegund hentar þér?
Lyfjaauglýsing
Fæst í 6 bragðtegundum!
NICOTINELL
LYFJATYGGIGÚMMÍ
Nicotinell-6-bragdtegundir-5x10 copy.pdf 1 12/08/15 09:40
StjórnSýSla Fyrirtækið LC Ráðgjöf
ehf., í eigu Guðfinnu Bjarnadóttur,
fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins, sem vann að læsisverkefni
mennta- og menningarmálaráðherra
fyrir tæpar tólf milljónir króna, vann
á sama tíma verkefni fyrir atvinnu-
vegaráðuneytið um stefnumótun
í ferðaþjónustu. Hefur fyrirtækið
fengið greiddar 17,2 milljónir króna
fyrir að vinna að ferðamálastefnu
Íslands.
Fréttablaðið greindi frá því á
föstudag að fyrirtækið hefði gert tvo
aðskilda samninga við mennta- og
menningarmálaráðuneytið vegna
verkefnis um læsi, annars vegar í sept-
ember 2014 og hins vegar í febrúar.
Í þeim samningum, sem hljóða upp
á samtals 11,6 milljónir, var talað
um vinnu frá september til loka
des ember 2014 annars vegar, og frá
febrúar til júlí árið 2015 hins vegar.
Sú vinna skarast við vinnu fyrir-
tækisins um ferðamálastefnu fyrir
atvinnuvegaráðuneytið. Þar var
hlutverk fyrirtækisins að vinna að
stefnumótun og greiningu á stöðu
ferðamála á Íslandi. Greiddi atvinnu-
vegaráðuneytið 1,7 milljónir til fyrir-
tækisins í hverjum mánuði, alls átta
greiðslur, en einnig fékk fyrirtækið
eina milljón króna við undirritun.
Greitt var fyrsta hvers mánaðar, frá
september til apríl. Eins og í samn-
ingum við menntamálaráðuneytið
er skrifað undir samninginn löngu
eftir að vinna er hafin við verkið,
eða í þessu tilfelli þriðja nóvember.
Því hefur fyrirtækið starfað fyrir tvö
ráðuneyti síðasta árið hið minnsta og
fengið greitt fyrir það 28,8 milljónir
króna.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, um að
stjórnvöldum sé skylt að gera kaup
á þjónustu yfir 150 þúsund krónum
opinber. Birgitta Jónsdóttir fagnar
slíku frumvarpi sem myndi þýða að
svona samningar yrðu gerðir opin-
berir. „Það skiptir miklu máli að allir
landsmenn sjái hvernig málum er
háttað og ég tel eðlilegt að stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd fari yfir þessa
samninga“.
Grétar Þór Eyþórsson, prófess-
or í stjórnmálafræði, segir tengsl
Guðfinnu við Sjálfstæðisflokkinn
óneitan lega gera þetta tortryggi-
legt. „Það getur vel verið að þetta
sé innan allra reglna en það er svo-
lítið pólitískt svell að semja svona
við fyrrverandi liðsfélaga án þess
að leita tilboða. Menn ættu í ríkara
mæli að leita tilboða við sem flestum
verkum,“ segir Grétar Þór.
Guðfinna Bjarnadóttir hefur rekið
ráðgjafarfyrirtæki frá árinu 1986.
Hún var rektor Háskólans í Reykja-
vík þar til hún settist á þing fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn árið 2007 og sat þar
í tvö ár.
sveinn@frettabladid.is
Skemmtiferðaskip á Ísafirði. LC Ráðgjöf ehf, sem vann verkefni vegna læsis skólabarna fyrir Illuga Gunnarsson menntamála-
ráðherra, ráðlagði á sama tíma Ragnheiði Elínu Árnadóttur ferðamálaráðherra um nýja ferðamálastefnu. Eigandi fyrirtækisins
og annar starfsmaður er fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðið/Pjetur
Vann fyrir tvö ráðuneyti í einu
Fyrirtæki í eigu fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins vann ráðgjafarstörf fyrir tvö ráðuneyti ráðherra
flokksins fyrir samtals 28,8 milljónir króna án þess að leitað væri tilboða. Tengsl við flokkinn eru sögð gera
málið tortryggilegt. Þingmaður Pírata telur eðlilegt að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði samningana.
Flóttamenn Um miðjan ágúst
var tekið í notkun á Bæjarhrauni í
Hafnarfirði nýtt búsetuúrræði fyrir
hælisleitendur hér á landi. Þar búa
nú um 50 einstaklingar. Er þetta
þriðja búsetuúrræðið sem Útlend-
ingastofnun hefur úr að spila í dag.
Viðræður eru hafnar milli Hafnar-
fjarðarkaupstaðar og Útlendinga-
stofnunar um viðlíka samning um
aðstoð við hælisleitendur og stofn-
unin hefur gert bæði við Reykja-
nesbæ og Reykjavík. Málið var tekið
fyrir á fundi fjölskylduráðs Hafnar-
fjarðar á föstudag.
„Útlendingastofnun mætti á fund-
inn til okkar og leitaðist eftir því
að Hafnarfjarðarbær myndi gera
samning um þjónustu við tiltekinn
fjölda fjölskyldna um félagsaðstoð
og menntun,“ segir Guðlaug Krist-
jánsdóttir, forseti bæjarstjórnar og
Guðlaug
Kristjánsdóttir,
forseti bæjarstjórn-
ar og formaður
fjölskylduráðs
Hafnarfjarðar
Fimmtíu hælisleitendum komið fyrir á Bæjarhrauni í Hafnarfirði
Það getur vel verið
að þetta sé innan
allra reglna en það er svolítið
pólitískt svell að semja svona
við fyrrverandi liðs-
félaga án þess að
leita tilboða.
Grétar Þór Eyþórsson
prófessor í stjórn-
málafræði
formaður fjölskylduráðs Hafnar-
fjarðar. Tekið hafi verið vel í mála-
leitanina.
Árið verður metár í fjölda hælis-
umsókna og því hefur Útlendinga-
stofnun þurft að leita að hentugu
húsnæði til þess að hýsa fólk. Fjöldi
staða hefur verið skoðaður í því
ljósi, til dæmis St. Jósefsspítali í
Hafnarfirði sem stendur auður og
hefur gert í mörg ár.
Skúli Á. Sigurðsson, lögfræðingur
Útlendingastofnunar, segir fólk af
ýmsum þjóðernum búa nú þegar í
Hafnarfirði. „Eins og er búa þarna
um 50 hælisleitendur. þar á meðal
eru um tíu fjölskyldur með börn
sem búa á hæð ásamt einstæðum
konum. Á annarri hæð eru ein-
hleypir karlmenn og ekki er gengt
milli hæðanna,“ segir Skúli. Fólkið
sé héðan og þaðan úr heiminum. - sa
tyrkland Sautján flóttamenn, sem
taldir eru hafa verið frá Sýrlandi,
drukknuðu við strendur Tyrklands
í gær, þegar bátur sem þeir voru í
sökk. Tuttugu aðrir komust lífs af, en
þeir voru í björgunarvestum. Fimm
börn voru á meðal þeirra sem fór-
ust. Einnig drukknuðu fimm konur
og sjö karlar.
Svo virðist sem fólkið hafi verið
fast neðan þilja þegar báturinn
sökk. Talið er að flóttamennirnir
hafi verið að reyna að komast frá
þorpinu Gumusluk yfir til Grikk-
lands.
Alls hafa um 300 þúsund flótta-
menn komið á land í Grikklandi,
það sem af er árinu. Flestir fara svo
til annarra Evrópuríkja. - kak
Drukknuðu
við strendur
Tyrklands
Belgar gengu til stuðnings flóttafólki
í Brussel í gær. Á borðanum stendur
„enginn er ólöglegur“. Fréttablaðið/EPA
Orkumál Atvinnuvegaráðuneytið
áréttar að raforkutilskipun Evrópu-
sambandsins hafi ekki verið brotin.
Fréttablaðið greindi fyrir helgi frá
áliti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, í
þá veru.
Í tilkynningu segir að ESA hafi
borist kvörtun í ágúst í fyrra þar sem
bent var á að innleiðingu annarrar
raforkutilskipunarinnar væri ekki
lokið á Íslandi. Ráðuneytið hafi
verið í samskiptum við ESA, sem
ekkert ætli að aðhafast þar sem
unnið sé að innleiðingu þeirra þátta
tilskipunarinnar sem gerð hafi verið
athugasemd við. - srs
Segja tilskipun
ekki brotna
2 8 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 m á n u d a G u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
5
-D
1
7
0
1
6
C
5
-D
0
3
4
1
6
C
5
-C
E
F
8
1
6
C
5
-C
D
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K