Fréttablaðið - 28.09.2015, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 28.09.2015, Blaðsíða 13
Ö ll ve rð e ru b ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi llu r og /e ða m yn da br en gl . INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11- 17. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. PROTOUCH RUNTASTIC Hlaupajakki úr DRY PLUS efni með góðri öndun. Litir: Grár, gulur. Herrastærðir. PROTOUCH FLEE Þykkur hálfrenndur hlaupabolur. Litir: Grár, gulur. Herrastærðir. PROTOUCH FROST Hlaupabuxur úr DRY PLUS efni með góðu endurskini. Litur: Svartar. Herrastærðir. 7.490 7.490 7.990 6.490 6.490 PROTOUCH RUNTASTIC Hlaupajakki úr DRY PLUS efni með góðri öndun. Litir: Grár, bleikur. Dömustærðir. PROTOUCH CRUISE Hlaupabolur úr DRY PLUS efni með góðri öndun. Litir: Grár, bleikur. Dömustærðir. PROTOUCH FLEE Þykkar hlaupabuxur úr DRY PLUS efni. Litur: Svartar. Dömustærðir. 4.990 Flott úrval af æfinga-/hlaupafatnaði og fylgihlutum á frábæru verði! MEÐ STÆL RÆKTAÐU LÍKAMANN Allt fyrir sportið! Þegar ég var sjö ára orti ég mitt fyrsta og eina ljóð. Það fjallaði um afa minn og nafna og gönguferðir okkar um Þingholtin. Ég man fátt úr þessu ljóði annað en að hann sé að ganga um og leiða mig, góði maðurinn. Sá sem læsi þetta ljóð nú í ríkjandi umræðu- stemningu kynni að halda að ég væri þarna að veitast að honum, átelja hann: góði maðurinn! Ekki gat litla skáldið órað fyrir því að öllum þessum áratugum síðar yrði það útbreidd skammarglósa að tala um „góða fólkið“. Þessi glósa hefur smám saman orðið meira áberandi í málflutn- ingi sumra og í síðustu viku varð borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins það á að segja við fulltrúa meiri- hlutans í Reykjavík, að þeir vildu banna viðskipti við Ísrael í krafti þess að þeir væru „góða fólkið“, og að einn góðan veðurdag kæmust kannski nasistar til valda og færu að banna viðskipti við Ísrael, en borgarfulltrúar meirihlutans í Reykjavík teldu sig hins vegar ekki vera neina nasista því að þeir væru „góða fólkið“. Eða þannig. Svona getur farið fyrir vænsta fólki þegar það reynir að réttlæta ranglæti. Það er vanda- Sem sagt: Gott Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag samt að halda uppi vörnum fyrir óréttlætið sem innbyggt er í Ísra- elsríki eins og dæmin sönnuðu í síðustu viku. Sem sagt: Góða fólkið. Það er kannski orðið tímabært að velta fyrir sér þessu einkenni- lega hugtaki sem verður æ meira áberandi í þjóðfélagsumræðunni. Umskiptingar Þegar talað er um „góða fólkið“ á Írlandi er átt við huldufólk og álfa af því tagi sem Íslendingar trúa á – þetta er sama trúin, til okkar komin frá írsku þrælaþjóðinni sem við Íslendingar erum komin af. Reyndar er gæska huldufólksins á Írlandi málum blandin – rétt eins og í íslenskum þjóðsögum – það hyllir til sín menn og ærir þá í stöðugum glaumi, rænir börnum og setur umskiptinga í staðinn. Í þessari nafngift er virðing og ótti – það örlar á löngun til að styggja ekki huldufólkið, sem gæti fylgst með því hvernig við tölum um það. Í glósunni sem við heyrum í íslenskri dægurumræðu nútímans er hins vegar bara andúð á góð- vildinni. Hugtakið er smátt og smátt farið að nota sem háðsglósu um fólk sem langar að láta gott af sér leiða. Góður, ha ha ha. Manni finnst stundum eins og stjórn- málaumræðan hafi verið yfirtekin af umskiptingum. Upphaflega er þetta hugsað sem öfugmæli til að lýsa hræsni og yfir- drepsskap – inn í frasann er byggt ósagt „eða hitt þó heldur“. Orðin lýstu þeim sem þykjast yfir aðra hafin í krafti eigin meintra dyggða og flekkleysis. Þau voru notuð um fólk sem gaf sig út fyrir að sýna gæsku og auðmýkt en stundaði hvorugt í raun og veru – heldur hreykti sér á kostnað annarra, dæmdi aðra fyrir syndir og yfir- sjónir sem það gerði sig sekt um sjálft á laun. Þetta er úti um allt í dæmisögum Krists: viðskipta- vinir „bersyndugu“ konunnar sem ætla að grýta hana þar til hann stöðvar þá með orðunum um að sá yðar sem syndlaus sé kasti fyrsta steininum; faríseinn sem þykist betri en tollheimtumaðurinn; iðju- sami bróðirinn sem sér ofsjónum yfir gleði föðurins yfir glataða syninum. Þannig vakti hugtakið „góða fólkið“ lengi hugrenningartengsl um hræsni og yfirdrepsskap. En þetta hefur verið að breytast að undanförnu. Allt í einu hurfu gæsalappirnar. Hið ósagða „eða hitt þó heldur“ var allt í einu ekki þarna lengur. Maður á víst ekkert að vera góður. „Flátt er fagurt, fagurt ljótt …“ Þetta snýst allt um orð og yfirráð í tungumálinu. Þegar fólk er farið að nota orðið „góður“ markvisst og ævinlega í neikvæðri merkingu er full ástæða til að vera á varð- bergi. Við létum það óáreitt þegar markaðshyggjumenn tóku orðið „frelsi“ og létu það tákna leyfi til forréttinda og ránskapar. Nú sækja svipuð öfl að orðinu „góður“ og vilja reyna að láta fólk skammast sín fyrir kenndir á borð við sam- líðan, réttlætiskennd, samkennd og hjálpfýsi. Frasinn „pólitísk rétthugsun“ er af sama toga; reynt er að telja okkur trú um að réttsýni sé röng; ranglætið sé eftirsóknar- verðara en réttlætið – ranghugsun sé æskilegri. Þetta er umskiptinga- pólitík. Við megum ekki leyfa fólki að haldast uppi að gera það sífellt tortryggilegt að vilja láta gott af sér leiða. Það er æskilegt að hjálpa öðrum en óæskilegt að láta sér neyð annarra í léttu rúmi liggja. Það er ekki fyrirlitlegt að vorkenna fólki sem lent hefur í vandræðum eða reyna að rétta því hjálpar- hönd. Það er ekki hlálegt að mót- mæla misrétti og kúgun. Það er ekki rangt að leita hins rétta. Gott og illt takast á í sérhverri mann- eskju, á öllum tímum, og það getur verið misjafnt hvað við teljum gott og hvað illt í siðum og framgöngu hverju sinni, sífellt rísa álitamál um klæðaburð, kynhegðun, eigna- rétt og guð. En sumt er í öllum mannfélögum hafið yfir dægur- þras, siði og venjur: samlíðan, hjálpsemi, frelsi, góðvild. Leyfum ekki talsmönnum ranglætisins að gera skammaryrði úr því góða. Hugtakið er smátt og smátt farið að nota sem háðsglósu um fólk sem langar að láta gott af sér leiða. Góður, ha ha ha. Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í síðustu viku þegar dregin var til baka tillaga um viðskiptabann á vörur frá hernámssvæðum Ísraela. FRéttablaðið/Vilhelm s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 2 8 . s e p T e M B e R 2 0 1 5 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 5 -D 1 7 0 1 6 C 5 -D 0 3 4 1 6 C 5 -C E F 8 1 6 C 5 -C D B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 7 9 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.