Fréttablaðið - 28.09.2015, Side 16

Fréttablaðið - 28.09.2015, Side 16
Fólk| heimili Fólk er kynningarblað sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir gert það án þess að trén beri skaða af. Það er bara verið að bjóða hætt- unni heim með því að klippa þau því þannig eru meiri líkur á að þau sýkist. Varnarkerfi plöntunnar er ekki mjög virkt þegar hún liggur í dvala.“ grasFlötin og arFinn Mörg eru haustverkin í garðinum þótt trjáklippingar séu ekki eitt þeirra. Guðríður segir oft vera töluverðan vöxt í grasi seinni hluta sumars og fram á haust. Það sé allt í góðu að slá eina umferð yfir það fljótlega. „Ef fólk vill að flötin líti vel út fram á haustið og ætlar að slá þá ætti það ekki að slá grasið jafn mikið niður og gert er á sumrin. Það ætti að hafa svolítið borð fyrir báru í því, því þá eru plönturnar betur í stakk búnar til að takast á við veturinn.“ Gott er að hreinsa allt illgresi úr garðinum fyrir veturinn, þannig verða vorverkin auðveldari. „Illgresið vill gleymast eftir sumarið, fólk fer í haustfasann og hættir að spá í arf- anum sem er samt að vaxa langt fram eftir hausti. Það sem gerist er að þær plöntur sem eru að vaxa núna ná að fella alveg gífurlega mikið af fræi sem gerir enn meiri vinnu næsta vor því þá er kominn mikill fræbanki í jarð- veginn. Með því að fara út í garð og hreinsa arfann núna er því verið að spara sér mikla vinnu að vori,“ segir Guðríður. Fjölærar plöntur og laukar Fjölærar plöntur hugsa aðallega um sig sjálfar yfir veturinn vegna þess að stöngull þeirra fellur niður. „Sumar fjölærar plöntur sá sér mikið og þá getur verið sniðugt að klippa blóm- stönglana af og fjarlægja úr garð- inum svo maður sitji ekki uppi með þessa tilteknu fjölæru plöntu út um allt næsta sumar. Það er líka snið- ugt að taka þær plöntur sem garð- eigendum finnast of stórar og skipta þeim í tvo eða þrjá parta. Gróður setja svo einn partinn á sinn stað aftur og hinum má annaðhvort henda eða gefa ættingjum.“ Margir eru vanir því að setja niður lauka að hausti sem blómstra að vori. Guðríður segir gott að setja þá niður um leið og þeir birtast í búðum. „Það skiptir ekki máli með sumar tegundir þó að dragist að setja þær niður, til dæmis túlípana. Það er um að gera að búa sér til litríkt vor með því að setja niður sem mest af laukum. Þá er hægt að setja í beð innan um runna og trjáplöntur og fallegt að sjá lauk- ana blómstra innan um tré og runna áður en þeir laufgast. Suma lauka er hægt að setja niður í grasflatir, eins og páskaliljur og krók usa. Þá er best að nota plöntustaf til þess eða rista torfið ofan af og gróðursetja laukana ofan í. Einnig er sniðugt að setja lauka í ker og potta og geyma á skjólgóðum stað yfir veturinn, þá blómstra þeir á vorin. Þegar sú leið er farin er aðal- reglan þegar verið er að raða lauk- unum í kerið að setja stærstu laukana neðst og minni laukana ofar. Þá þarf að passa að grafa ekki of þétt þannig að litlu laukarnir ýtist út úr kerinu þegar þeir stóru fara að vaxa. Gott frárennsli þarf að vera í kerinu, það er allt í lagi þó að það sé þurrt á lauk- unum yfir veturinn en það þarf að vökva þá þegar fer að vora,“ útskýrir Guðríður. Guðríður segir einnig að ekki megi gleyma að minnast á augljósasta haustverkið, uppskeruna. „Nú er tími til að taka upp kál, grænmeti og kart- öflur sem er auðvitað stærsta verkefni haustsins. Það eru enn þá ber á fullt af runnum, reyniber eru til dæmis farin að þroskast núna og það getur verið skemmtilegt að sulta úr þeim.“  n liljabjork@365.is ekki klippa nÚna Haustið er tími þar sem trjágróður er að ganga frá sér fyrir veturinn þannig að þá er ekki góður tími til að klippa tré. Allar plöntur geyma núna þann forða sem þær náðu sér í í sumar í rótarkerfinu, sprotum og stönglum þannig að ef þær eru klipptar núna þá minnkar vetrarforðinn þeirra. að mörgu er að huga Uppskera er stærsta verk haustsins en að mörgu öðru þarf líka að huga. nORDICPHOTOS/GETTY Áheyrnarprufum er lokið en hægt verður að senda inn myndbönd til 30. september. Smelltu þér inn á www.stod2.is/talent ERTU BÚKTALARI? Leiðbeinendur eru: Halla Birgisdóttir fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi, Jónas Þór fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursson fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í., Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 7 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K _ g u m m i. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K _ g u m m i. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 5 -7 3 A 0 1 6 C 5 -7 2 6 4 1 6 C 5 -7 1 2 8 1 6 C 5 -6 F E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 7 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.