Fréttablaðið - 28.09.2015, Page 18
Fólk| heimili
eftir fimmtán ára búsetu á Reykjavíkursvæðinu og í Svíþjóð ákváðu hjónin Helga Björg Jón-asardóttir og Jóhannes Már Jóhannesson að
láta gamlan draum rætast; að búa í sveit. Þau festu
kaup á Hesjuvöllum, sem er lögbýli í Hlíðarfjalli
fyrir ofan Akureyri, og eru frístundabændur þar
með landnámshænur, endur, hesta, hunda og ketti.
Næsta verkefni þeirra hjóna er að breyta gamalli
skemmu í gróðurhús en vinnan hófst í fyrrahaust.
„Flestum þótti skynsamlegast að rífa þessa litlu
skemmu en ég var ekki sammála því. Með því
að taka bárujárnið af þakinu og setja báruplast í
staðinn sá ég möguleika á því að nýta hana sem
gróðurhús. Ég hef mikinn áhuga á matjurtarækt og
sjálfbærum lífsstíl. Planið er að nota gróðurhúsið
í forræktun á matjurtum og til að rækta tómata,
jarðarber og fleira gott.“
Síðan hjónin fluttu á býlið fyrir tveimur árum
hafa þau hægt og rólega verið að byggja upp og
finna leiðir til að nýta þær byggingar sem eru á
býlinu. „Fyrsta verkið var að breyta nautgripahúsi í
hesthús og svo notum við gamlan skúr fyrir hænur
og endur. Gróðurhúsið er næst á dagskrá og planið
er svo að taka fjósið í gegn næsta sumar og breyta
því í vinnustofu,“ segir Helga Björg en hún er vöru-
hönnuður, myndlistarmaður og kennari við List-
námsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri.
Allir njótA ávAxtAnnA
„Nýlega löguðum við þakið með góðri hjálp fjöl-
skyldumeðlima. Við létum leggja hitaveiturör í
sumar frá íbúðarhúsinu í skemmuna og stefnum
að því að nýta affallið af ofnunum til að halda hita
í gróðurhúsinu í mestu kuldunum. Næsta skref var
að endurbyggja stafnana, við erum langt komin
með neðri stafninn og líklega látum við fram-
kvæmdir við efri stafninn bíða næsta vors. Það
hindrar samt ekki að gróðurhúsið nýtist til að for-
rækta plöntur í vor fyrir matjurtagarðinn næsta
sumar.“
Endurhönnun smiðjunnar er samstarfsverkefni
Helgu Bjargar og föður hennar, Jónasar Sigurjóns-
sonar húsgagnasmíðameistara. „Við höfum reynt
að nýta efni sem við eigum, meðal annars glugga
sem voru smíðaðir í röngum stærðum í viðbygg-
ingu við gamla húsið okkar fyrir sunnan. Hönnunin
fer eiginlega fram jafnóðum í góðu samstarfi okkar
feðgina. Það hentar vel þegar smiður og hönnuður
vinna saman.“
Þótt gróðurhúsið verði formlega tilbúið næsta
sumar er ræktunin á bænum hafin. „Ég ræktaði
jarðarber, kryddjurtir, salat og gulrætur inni í
gróðurhúsinu í sumar þótt það héldi hvorki vatni
né vindum. Ræktunin hjá okkur er í smáum stíl,
til eigin nota og fyrir fjölskylduna. Þar sem upp-
byggingin er samvinnuverkefni fjölskyldunnar er
sanngjarnt að allir njóti ávaxtanna af ræktuninni
saman. Næsta vor verður gróðurhúsið notað til að
forrækta matjurtir í garðinn og vonandi náum við
heilsársræktun í gróðurhúsinu í framtíðinni.“
n starri@365.is
frjótt sAmstArf
smiðs og hönnuðAr
endurbætur Norðan heiða er verið að breyta gamalli skemmu í gróður-
hús. Stefnt er á heilsársræktun til eigin nota.
gróðurhús í fæðingu „Flestum þótti skynsamlegast að rífa þessa litlu skemmu en ég var ekki sammála því,“ segir Helga Björg,
sem hér er fyrir miðri mynd ásamt hluta vinnuhópsins sem telur m.a. eiginmann, föður, dóttur og tengdason. Myndir/Jón Einar Jóhannsson
vinnA frAm undAn
Í upphafi minnti skemman á flest annað en gróðurhús.
Allt Að komA
Gróðurhúsið fær smátt og smátt á sig endanlega mynd.
Inniheldur aðeins
náttúrulegar jurtir td.
Sítrónu Melissu og
Chamomillu ásamt
blöndu B vítamína og
magnesíum.
SOFÐU RÓTT
Í ALLA NÓTT
BESTA TÓNLISTIN FRÁ 1960 1985
ÞESSI GÖMLU GÓÐU
Á EINUM STAÐ
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
6
-2
A
5
0
1
6
C
6
-2
9
1
4
1
6
C
6
-2
7
D
8
1
6
C
6
-2
6
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K