Fréttablaðið - 28.09.2015, Side 40
Fólk| matur
Blómkálssúpa með Blaðlauk og
stökku Beikoni
Blómkálssúpa er afar góð, sérstaklega
á haustin þegar grænmetið er ferskt
og gott. Hægt er að gera súpuna á mis-
jafnan hátt, til dæmis mauka hana. Þessi
súpa er ákaflega bragðgóð en það má
sleppa beikoninu, sértu grænmetisæta.
Í staðinn má þá nota ristuð fræ og græn-
metissoð. Uppskriftin miðast við fjóra.
750 g blómkál
1 laukur
9 dl kjúklingasoð
2,5 dl mjólk
2 msk. sýrður rjómi
Hálfur blaðlaukur, fínt skorinn
Beikon, smátt skorið
Salt og nýmalaður pipar
Steinselja
Skolið blómkálið og rífið það í jafnstóra
bita. Skerið einnig stilkinn í litla bita.
Skiljið eftir nokkur „blóm“ til skreytinga.
Sjóðið saman soð og mjólk og bætið síð-
an blómkálsbitunum og lauk út í. Látið
sjóða í 15 mínútur eða þar til blómkálið
er orðið mjúkt. Þá er súpan maukuð
með töfrasprota. Bragðbætið súpuna
með sýrðum rjóma, salti og pipar.
Á meðan súpan er að sjóða er beikonið
steikt á pönnu þar til það verður stökkt.
Setjið á eldhúspappír og kælið. Setjið rest-
ina af blómkálinu á pönnuna ásamt smá-
vegis smjöri og hitið í gegn. Í lok suðu-
tímans er steikta blómkálið, blaðlaukur og
beikon sett út í. Það má líka setja þetta út
í eftir að súpan er komin í diska. Súpan er
sett í skálar og skreytt með steinselju og
smávegis af góðri ólífuolíu.
góð osta- og skinkuhorn með
súpunni
Þetta eru mjög góð ostahorn sem passa
vel með súpu. Þau er hægt að frysta og
nota sem nesti í vinnu eða skóla. Upp-
skriftin miðast við 18 horn.
18 sneiðar skinka
36 sneiðar brauðostur
2 egg til að pensla
2 dl sesamfræ (Má sleppa)
Gerdeig
1 kg hveiti
1 poki þurrger
2 msk. salt
65 g smjör
1 tsk. salt
2½ dl mjólk
3 dl vatn
Setjið öll þurrefni í hrærivélaskál.
Bræðið smjörið. Bætið vatni og smjöri
í þurrefnið og hnoðið vel saman. Látið
deigið hefast í eina klukkustund. Sláið
það niður og látið það hefast aftur í eina
klukkustund.
Skiptið deiginu í þrjá hluta og fletjið
hvern part eins og pitsu. Skerið
niður í sex þríhyrn-
inga. Setjið skinku
og ost á hvern part
og rúllið upp í
horn. Leggið á
bökunarpapp-
ír og látið
hefast í 20
mínútur.
Penslið
með hrærðu
eggi og stráið
sesamfræjum
yfir. Hitið
ofninn í 200°C
og bakið hornið í
15-20 mínútur. Kælið
á rist.
hollt að hausti
hollusta Þegar kólnar í veðri er gott að fá sér heita súpu. Blómkálssúpa er
alltaf góð og hana er einfalt að gera. Ekki er verra að bera hana fram með
nýbökuðu brauði.
gómsæt horn
Það er auðvelt að út-
búa horn og þau eru
góð með súpunni.
hlýjar að innan Blómkálssúpa er holl og góð. Nordicphotos/getty
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Active Liver
Eykur niðurbrot fitu
í lifrinni og styrkir
starfsemi hennar
„Finn mikinn mun á mér,
eftir að ég byrjaði að nota
Active Liver. Hef minni
löngun í óhallan mat,
sætindi, kaffi og áfengi.
Ég hef líka lést og er mjög
ánægð með árangurinn“.
-Kirsten
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
5
-F
D
E
0
1
6
C
5
-F
C
A
4
1
6
C
5
-F
B
6
8
1
6
C
5
-F
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K