Fréttablaðið - 28.09.2015, Side 44
Okkar ástkæra
Sonja Georgsdóttir
myndlistarkona,
lést á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi 21. september sl.
Útförin verður gerð frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 30. september kl. 13.00.
Hólmfríður Gunnarsdóttir Guðmundur B. Sigurgeirsson
Georg Ahrens Hauksson Ingibjörg Sveina Þórisdóttir
Ingi Haukur Georgsson Sigrún Guðný Pétursdóttir
Ágústa R. A. Georgsdóttir Þorsteinn Þórsson
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
Jóna Kristín Engilbertsdóttir
Selvogsbraut 25, Þorlákshöfn,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 22. september. Útförin fer
fram frá Þorlákskirkju miðvikudaginn
30. september kl. 14.00.
Guðfinnur Karlsson
Helga Frímannsdóttir
Reynir Guðfinnsson Rebekka Ómarsdóttir
Harpa Guðfinnsdóttir Arnar Sch. Thorsteinsson
Hrönn Guðfinnsdóttir Garðar Geirfinnsson
og barnabörn.
„Ég var himinlifandi að ná
kjöri og hlakka til að vinna
fyrir SÍF [Samband íslenskra
framhaldsskólanema],“ segir
Steinunn Ólína Hafliðadóttir
sem var kjörin for maður Sam-
bands íslenskra framhalds-
skólanema á aðalþingi sam-
bandsins á dögunum.
Aðspurð um hvers vegna
hún hafi boðið sig fram segist
hún ekki alveg viss. „Ég vissi
að ég hefði drifkraftinn og
mig langar til þess að breyta
heiminum, eins klisjukennt
og það hljómar,“ segir Stein-
unn en hún sótti þingið
fyrir hönd Nemendafélags
Menntaskólans við Hamra-
hlíð ásamt öðrum fulltrúum
þaðan. Steinunn segir skóla-
systkini sín hafa stungið upp
á því við hana á þinginu að
hún byði sig fram.
„Ég tek með mér femíníska
vinkilinn inn í starfið. Ég er
enn formaður femínistafélags
MH og sit í stjórn Landssam-
bands femínistafélaga fram-
haldsskóla Íslands,“ segir
Steinunn. „Ég legg áherslu á
hvernig kynin speglast í nem-
endafélagsstarfi skólanna.
Mér finnst til dæmis fárán-
legt að nemendafélögin ráði
miklu fleiri karlmenn til að
koma fram og vera kynnar
á viðburðum vegna hræðslu
við það að færri kaupi sér
miða ef kona er ráðin.“
„Mig langar að breyta því.
Það vantar femínískari nem-
endafélög,“ segir Steinunn.
Hún segir nýkjörna stjórn
SÍF enn vera að mynda stefnu
komandi vetrar.
„Eitt af því sem við munum
berjast fyrir er ókeypis sál-
fræðiaðstoð fyrir framhalds-
skólanema. Það er rosalega
stór hópur sem fellur brott
úr námi vegna andlegra veik-
inda og sá hópur fær ekki þá
aðstoð sem hann þarf,“ segir
Steinunn.
Eitt brýnasta verkefni SÍF,
að sögn Steinunnar, er að
stækka SÍF og færa það upp
á hærra plan. „Í útlöndum
eru sambærileg félög miklu
stærri, til að mynda sænska
félagið. Aðalþingi þess er
sjónvarpað og ef tekið er við-
tal við menntamálaráðherra
landsins um mál sem tengist
framhaldsskólanemum er
formaður félagsins með til að
veita andsvar,“ segir Steinunn
og bætir við: „Ég vil koma SÍF
á þennan stall.“
Þá segir Steinunn SÍF alltaf
hafa verið fylgjandi lækkun
kosningaaldurs í sextán ár,
en formenn Samfylkingar og
Vinstri grænna lögðu fram
frumvarp þess efnis í annað
sinn í vikunni. „Mér finnst
þó persónulega ekki hægt
að lækka kosningaaldurinn
samstundis. Fyrst þarf að
byrja að fræða í grunnskól-
um til að auka áhuga þessa
aldurshóps á stjórnmálum.
Þegar það er komið í gang
er fyrst hægt að lækka kosn-
ingaaldur,“ segir Steinunn
Ólína Hafliðadóttir.
thorgnyr@frettabladid.is
Kallar eftir femínískari
nemendafélögum
framhaldsskóla
Steinunn Ólína Hafliðadóttir er nýkjörinn formaður Sambands íslenskra framhalds-
skólanema. Hún segist taka með sér femínískan vinkil inn í starfið. Steinunn vill færa SÍF
upp á hærra plan og koma rödd sambandsins á framfæri.
Steinunn Ólína Hafliðadóttir, nýr formaður SÍF, Sambands íslenskra framhaldsskólanema, er líka formaður femínistafélags MH og situr í
stjórn Landssambands femínistafélaga framhaldsskóla Íslands. FréttabLaðið/GVa
Ég vissi að ég
hefði drif
kraftinn og mig langar
til þess að breyta
heiminum, eins klisju
kennt og það hljómar.
Fimm ár eru síðan Alþingi tók þá örlagaríku ákvörðun að
kjósa um að kalla saman Landsdóm til að taka fyrir mál ráð-
herra sem taldir voru bera ábyrgð á efnahagshruninu.
Þingheimur greiddi atkvæði um hvort draga ætti Geir H.
Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Árna M. Mathiesen
og Björgvin G. Sigurðsson fyrir Landsdóm. Eftir atkvæða-
greiðslu Alþingis var ljóst að einungis Geir yrði ákærður.
Fjölmiðlar greindu frá því á þessum degi að klofningur
hefði komið upp í Samfylkingunni í atkvæðagreiðslunni.
„Samfylkingin passar greinilega upp á sitt fólk, eins og
kom fram í þinginu, og menn skáskjóta sér á milli manna við
atkvæðagreiðslur til þess að koma tilteknum aðilum í skjól,“
sagði Geir í samtali við Fréttablaðið eftir atkvæðagreiðsluna.
Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, gaf
ekki mikið fyrir gagnrýni Geirs. „Ég hef alla tíð gagnrýnt
Landsdóm fyrir að hann gæti boðið upp á slíkt,“ sagði Jó-
hanna. „En í okkar þingflokki var það þannig að hver og einn
tók ákvörðun fyrir sig. Niðurstaðan var ekki í samræmi við
það sem ég lagði til.“ Jóhanna kaus gegn því að ákæra ætti
ráðherrana.
Dómurinn var svo felldur í apríl 2012 en Geir var sýknaður
af þremur ákæruliðum af fjórum. Hann var sakfelldur fyrir að
hafa ekki haldið ráðherra fundi um mik il væg stjórn ar mál efni.
Honum var ekki gerð nein refsing í málinu. -srs
Þ EttA g E r ð i St
2 8 . S E p t E M b E r 2 0 1 0
Alþingi dregur Geir fyrir
Landsdóm
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
5
-D
1
7
0
1
6
C
5
-D
0
3
4
1
6
C
5
-C
E
F
8
1
6
C
5
-C
D
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K