Fréttablaðið - 28.09.2015, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
www.betrabak.is Leggur grunn að góðum degi
Verð dýnu
Verð dýnu og Classic-
Tegund Stærð aðeins botni aðeins
GoldMattress 100x200 69.900 kr. 104.900 kr.
GoldMattress 120x200 79.900 kr. 119.900 kr.
GoldMattress 140x200 89.900 kr. 139.900 kr.
GoldMattress 160x200 99.900 kr. 152.900 kr.
GoldMattress 180x200 109.900 kr. 164.900 kr.
Frábært verð!
GOLD heilsurúm
Komdu og upplifðu
þægindin!
GAFL
SELDUR
SÉR
C&J Gold heilsudýna
5 svæða skipt yfirdýna. Laserskorið Conforma Foam heilsu- og
hægindalag tryggir réttan stuðning við neðra mjóbak og mýkir
axlasvæði.
Vandað pokagormakerfi. Minni hreyfing betri aðlögun.
Vandaðar kantstyrkingar.
Slitsterkt og mjúkt bómullaráklæði.
Þykkt 29 cm.
„Já, þetta er nú bara eitthvað sem
búið er að ágerast, ég hef ekki
þurft að hafa mikið fyrir þessum
vexti þannig séð,“ segir leikarinn
Jóhannes Haukur Jóhannesson,
sem nú skartar kafloðnu andliti og
síðu faxi. Ástæðu þessa hárvaxtar
segir Jóhannes tökur hinna vinsælu
þátta Game of Thrones en hann fer
með hlutverk í sjöttu seríu þátt-
anna, sem nú er verið að taka upp
á Írlandi um þessar mundir. „Tök-
unum lýkur í október, svo ég verð
að minnsta kosti út október svona
skeggjaður, en svo fær þetta líklega
að fjúka, “ segir Jóhannes, og bætir
við að honum þyki þetta smart, en
að það geti verið bölvað bras að
halda skegginu í skefjum. „Ég þarf
að bera í þetta olíu og eyða hellings
tíma í alls konar umhirðu. Þá festist
dálítið í þessu matur, og getur verið
heldur ósnyrtilegt. En litla strákn-
um mínum finnst einmitt frábært
að grafa höndunum sínum inn í
skeggið, og það vill oft verða með
litla fingur að þeir eru klístraðir.
Það getur verið frekar sársaukafullt,“
útskýrir Jóhannes með tilþrifum.
Jóhannes segist þó alsæll með
þessi forréttindi sem leikarahlut-
verkið hefur í för með sér, þar sem
honum leyfist að prófa alls kyns
útfærslur af hárgreiðslum án þess
að fólk dæmi hann sem persónu of
harkalega. Hann hafi til að mynda
prófað að vera sköllóttur og með
aflitaðan hanakamb. „Samfélagið er
svo fljótt að dæma og gera athuga-
semdir við svona breytingar, og þá
er ágætt að geta gert það undir for-
merkjum vinnunnar. En auðvitað
ætti maður bara að geta aflitað á sér
hárið og græjað á sig hanakamb án
þess að einhver væri að skipta sér af
því sérstaklega.“
Aðspurður um aðkomu sína að
Game of Thrones verður Jóhannes
þögull sem gröfin. „Ég get ekk-
ert sagt, það hvílir rosalega mikil
leynd yfir þessu öllu, og sem dæmi
má nefna að ég fæ ekki handrit af
þáttunum í hendurnar, ég veit ekk-
ert hvað er að gerast. Ég fæ rétt svo
mínar línur og svo er dulnefni yfir
þann sem ég er að leika á móti. Þetta
kemur sumsé aldrei í ljós fyrr en ég
mæti á settið.“
Þessi mikla leynd sem Jóhannes
talar um er ekki að ástæðulausu, en
nú er svo komið að þættirnir eru á
sama stað og bækurnar, svo raun-
verulega enginn veit hvað gerist
næst. „Ég er mjög spenntur fyrir
þessu líka. Sjálfur hafði ég aldrei séð
þessa þætti fyrr en ég fór í prufur,
þá tók ég þetta á einu bretti. Konan
mín hafði legið yfir þessu, lesið bæk-
urnar og séð þættina, svo hún fór
yfir þetta með mér. Hún var svona
uppflettirit fyrir mig. Fólk ætti
eigin lega að fá hana til að horfa með
sér á þessa þætti ef einhver á eftir að
sjá þetta,“ segir Jóhannes glettinn að
lokum og strýkur yfir skeggið.
gudrun@frettabladidl.is
Hárprúður og kafloðinn
Jóhannes Haukur
Bölvað vesen að halda þessu snyrtilegu, en finnst hann samt svolítið smart
svona loðinn. „Þetta fær líklega að fjúka þegar tökum á Game of Thrones lýkur í
október,“ segir Jóhannes og útskýrir leyndina sem hvílir yfir þáttunum.
Jóhannes gengur nú um göturnar alskeggjaður. Hann segir vissulega kost að skeggið haldi á honum hita í íslensku haustgol-
unni, en hann heldur utan til Írlands von bráðar og lýkur þar með tökum á Game of Thrones. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég get ekkert sagt,
það Hvílir rosalega
mikil leynd yfir þessu öllu,
og sem dæmi má nefna að Ég
fæ ekki Handrit af þáttun-
um í Hendurnar, Ég veit ekk-
ert Hvað er að gerast. Ég fæ
rÉtt svo mínar línur og svo
er dulnefni yfir þann sem
Ég er að leika á móti. þetta
kemur sumsÉ aldrei í lJós
fyrr en Ég mæti á settið.
Save the Children á Íslandi
2 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r26 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
5
-A
0
1
0
1
6
C
5
-9
E
D
4
1
6
C
5
-9
D
9
8
1
6
C
5
-9
C
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
9
2
0
1
5
C
M
Y
K