Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 2
Skál á spítalanumVeður
Suðaustan 5-10 m/s og lítils háttar
rigning eða skúrir víðast hvar, en
rofar til á norðanverðu landinu
síðdegis. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast
norðaustanlands. Sjá Síðu 18
NÁM Í TÖLVUVIÐGERÐUM
Næstu námskeið byrja 12. og 13. október
Þetta vinsæla námskeið er fyrir þá sem vilja starfa
við tölvuviðgerðir, uppfærslur og endurbætur.
Námskeiðið er verklegur undirbúningur fyrir A+
gráðurnar frá CompTIA.
Frábært skref inn í tækniheiminn.
DómSmál Íslensk kona sem er ákærð
fyrir morðtilraun í Ungverjalandi segir
að málið hafi haft áhrif á hana á allan
mögulegan hátt. Hún eigi erfitt með
vinnu og að sinna fjölskyldu sinni.
Konan er á fertugsaldri og er starf-
andi læknir hér á landi. Hún var í
læknisnámi í Debrecen, næststærstu
borg Ungverjalands, árið 2012 þegar
atvikið átti sér stað sem síðar leiddi
til ákæru á hendur henni. Samkvæmt
ungverskum fjölmiðlum er henni
gefið að sök að hafa byrlað nígerískri
vinkonu sinni svefnlyf og barið hana í
höfuðið með hamri. Konan vísar þessu
alfarið á bug.
„Hún í rauninni telur að þarna hafi
verið sviðsettur glæpur. Það er ekki
um að ræða höfuðkúpubrot í þessu
máli. Þarna er um að ræða, að mér
skilst, nokkur spor í höfuðið og það eru
áverkar sem umbjóðandi minn telur að
fórnarlambið svokallaða hafi valdið sér
sjálft,“ segir Ingibjörg Ólöf Vilhjálms-
dóttir, verjandi konunnar.
„Þetta er hið hræðilegasta mál í raun
og veru. Hún er ásökuð um mjög alvar-
legan glæp sem hún segir sjálf að hún
hafi ekki framið. Þannig að eðlilega er
hún í miklu uppnámi, þetta er mjög
alvarlegt mál.“
Ingibjörg segir að rannsókn málsins
ytra sé ábótavant. Konunni hafi hingað
til gengið illa að koma sinni hlið máls-
ins á framfæri við stjórnvöld. Þá hafi
sönnunargögnum sem hún hafi reynt
að koma á framfæri ekki verið gefinn
gaumur og sýni, sem hefðu verið tekin
í sambærilegu máli hér á landi, ekki
verið tekin.
„Það átti að dæma í málinu í síðasta
mánuði en eftir að ungversk yfirvöld
komust á snoðir um það að íslensk yfir-
Mjólkursamsalan stefnir að því að safna 15 milljónum króna til tækjakaupa fyrir Landspítalann með sérstöku átaki þar sem 30 krónur af hverjum
seldum lítra af D-vítamínbættri mjólk renna til málefnisins. Ætlunin er að bæta tækjabúnað og starfsaðstöðu á bæklunarskurðdeild Landspítalans. Full-
trúar MS og Landspítalans skáluðu í mjólk við upphaf söfnunarinnar í gær. FréttabLaðið/anton brink
FerðaþjónuSta Flugfélag Íslands er
ekki byrjað að selja Fokker-flugvél-
arnar sínar fimm en stefnt er að því
að skipta þeim út fyrir Bombard ier
Q400 vélar innan tíðar.
„Þær eru enn í notkun hjá okkur
og verða þar til hinar vélarnar
koma. Þannig að þær verða hjá
okkur að minnsta kosti fram á
vor,“ segir Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
Framleiðandi Fokker-véla varð
gjaldþrota árið 1996. Flugvélunum,
sem eru 25 ára, hefur þó verið sinnt
með varahluti og viðhald. „Það var
kominn tími á það að skipta um
týpu og þá ákváðum við að fara í
Bombard ier. Við höfum undan-
farin tíu ár verið með minni útgáfu
af þeirri vél og höfðum haft góða
reynslu af þeim. Það lá því beint
við að taka stærri útgáfuna sem er
rúmlega sjötíu sæta vél,“ segir Árni.
Markaðsverðið fyrir Fokker
er ekki hátt en Árni segir FÍ geta
losað sig við þær þegar þar að
komi. Félagið seldi eina Fokker-vél
á síðasta ári en Árni vill ekki gefa
upp hvað fékkst fyrir hana. „Mark-
aðsverð á svona vélum er kannski
í kringum eina til tvær milljónir
dollara. Ef við orðum það þannig.“
Í fréttatilkynningu frá flugfélag-
inu í júlí sagði: „Heildarfjárfesting-
in mun hækka heildareignir Ice-
landair Group samstæðunnar um
25 milljónir dollara, að teknu tilliti
til söluverðs allra fimm Fokker 50
flugvéla Flugfélags Íslands.“ – snæ
Fokker-vélar
ódýrar en á
leið úr landi
Þarna er um að
ræða, að mér skilst,
nokkur spor í höfuðið og
það eru áverkar
sem umbjóð-
andi minn
telur að
fórnarlambið
svokallaða hafi
valdið sér sjálft.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir,
lögmaður
eFnahagSmál InDefence-hópurinn
vill að sýnt verði fram á að greiðsla
334 milljarða stöðugleikaframlags
sem slita stjórnir föllnu bankanna
hafa lagt til sé jafn hagstætt fyrir
íslenskt þjóðarbú og greiðsla
stöðugleikaskatts sem skila átti
690 til 850 milljörðum króna sam-
kvæmt kynningu stjórnvalda síð-
asta sumar.
Í bréfi sem InDefence hefur
sent efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis er bent á að samkvæmt
stöðugleikaskilyrðum fái kröfu-
hafar að taka a.m.k. 500 milljarða
króna úr landi á næstu árum en
ekki sé kveðið á um slíkt samhliða
greiðslu stöðugleikaskatts.
„Það er því rangt að fullyrða að
stöðugleikaskatturinn og stöðug-
leikaframlagið séu jafngildar leiðir
út frá hagsmunum heimila,“ segir í
bréfinu. – ih
Framlag ekki
jafngilt skatti Ekki framseld þótt hún
yrði sakfelld í Debrecen
Íslenskur læknir, grunaður um morðtilraun í Ungverjalandi, segir að um svið-
settan glæp sé að ræða. Konan starfar hér á landi. Verjandi segir rannsókninni
vera ábótavant. Íslenskir ríkisborgarar eru ekki framseldir til annarra landa.
Háskólinn í Debrecen þar sem íslenskur læknir stundaði nám. NorDicpHotoS/Getty
völd vissu af málinu þá var því frestað,“
segir Ingibjörg. Aðspurð hvers vegna
hún telji að svo sé segir hún: „Það er
góð spurning. Ég held að það sé svona
spurning um að leggja saman ein-
hverjar tölur þarna. Það styður það sem
hún segir að þarna er einhver undarleg
málsmeðferð í gangi.“
Konan er starfsmaður Heilbrigðis-
stofnunar Suðurlands (HSU). Henni
hefur nú verið veitt leyfi frá störfum.
Samkvæmt 2. gr laga um framsal saka-
manna má ekki undir neinum kring-
umstæðum framselja íslenska ríkis-
borgara. Fari svo að konan verði dæmd
í Ungverjalandi á hún því ekki á hættu
að vera send þangað til að afplána
dóminn. Vafi ríkir um hvort hún myndi
yfirhöfuð afplána neinn dóm.
Fyrirtaka í málinu fer fram í nóvem-
ber á undirdómstigi sem svipar til hér-
aðsdóms hér á landi.
snaeros@frettabladid.is
6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 þ r I ð j u D a g u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-2
7
5
0
1
6
C
2
-2
6
1
4
1
6
C
2
-2
4
D
8
1
6
C
2
-2
3
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K