Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 18
Fólk|
40.000
fréttaþyrstir
notendur
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu
blaðið hvar sem er og hvenær sem er.
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna
og snjallsímann með Fréttablaðsappinu.
Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum:
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
heilsa
Fréttir af háu arsen-innihaldi í hrísgrjónum hafa
vakið ugg í brjósti margra foreldra enda er grjóna-
grautur algengur hversdagsmatur hér á landi og
margir hafa hrísgrjón með mat nokkrum sinnum í
viku. Þá nýtur sushi sívaxandi vinsælda og margir
kannast við að leyfa börnum sínum að naga hrís-
kökur á milli mála, en þær komu einna verst út úr
prófunum. Að mati sérfræðinga er þó óhætt að
borða hrísgrjón allt að fjórum sinnum í viku. Hins
vegar er fólk hvatt til að huga að fjölbreytni í fæðu-
vali til að forðast að óæskileg efni sem kunna að
vera í tilteknum fæðutegundum hlaðist upp í líkam-
anum. Sömuleiðis að kaupa vörur frá ólíkum fram-
leiðendum. Það getur þó verið hægara sagt en gert
að fá ung börn til að prófa ólíkan mat enda er þeim
eðlislægt að taka nýjum fæðutegundum með fyrir-
vara og getur tekið allt að 10-15 skipti að venja þau
á nýja fæðu. Eftirfarandi ráð hafa gefist vel.
stattu á þínu án þess að pína
Börnum er eðlislægt að taka nýjum fæðuteg-
undum með fyrirvara. Þau þurfa tíma til að
kynnast nýju bragði og áferð. Þó að þau
fúlsi við einhverju í upphafi er ekki þar
með sagt að þau muni aldrei borða þá
fæðutegund aftur. Það getur þurft að
venja þau við í nokkrum skrefum. Það er
gott að hafa það fyrir reglu að þau verði
að smakka einn bita en mega svo láta
fæðuna eiga sig þar til næst.
Ekki reyna að troða eða pína matinn
ofan í barnið. Það getur haft öfug áhrif.
Hins vegar ætti ekki að hætta að bjóða
sama mat síðar. Þá getur verið gott að
kynna nýjan mat í félagi við mat sem
barnið þekkir vel. Að leyfa því til dæmis
að dýfa gulrót eða rófu ofan í tómatsósu
eða annað sem því þykir gott.
ekki nota mat sem umbun eða refs-
ingu
Það er ekki talið æskilegt að umbuna barni
fyrir að borða vel með ís eða nammi. Það getur
átt þátt í því að það myndi óheilbrigt samband
við mat. Ekki ætti heldur að refsa því með því að
taka af því ís eða nammi sem búið er að lofa ef það
borðar ekki sem skyldi. Notaðu frekar annars kon-
ar umbunarkerfi eins og límmiða eða leyfðu barn-
inu að leika með uppáhaldsdótið ef það borðar vel.
Ekki tengja það við annars konar mat. Sætindi ættu
hvort eð er aðeins að vera í boði á tyllidögum og
ekki til umræðu við önnur tilefni.
leiktu þér með form og liti
Ung börn eru upptekin af litum og formum. Próf-
aðu að bjóða eingöngu upp á appelsínugulan mat
svo dæmi sé nefnt. Til dæmis stappaðar sætar
kartöflur, gulrætur, appelsínugula papriku og app-
elsínu. Næsta dag getur þemað verið grænt og þar
fram eftir götunum. Þú getur líka prófað að skera
grófa samloku með góðu áleggi með ólíkum pipar-
kökuformum eða raðað ostbitum, grænmeti og
ávöxtum upp á litla pinna. Það vekur yfirleitt lukku.
laumaðu hollustunni með
Flest börn eiga sér uppáhaldsmat. Oft er hægt að
lauma í hann meiri hollustu án þess að þau taki
eftir. Prófaðu að tæta bragðlítið kál í matvinnsluvél
og bæta við pitsabotninn. Það sama má gera við
heimagerðu tómatsósuna. Eins má skella soðnu
og maukuðu grænmeti á borð við gulrætur, brokk-
ólí, kúrbít eða sætar kartöflur í pönnuköku – eða
möffinsdeigið svo lítið beri á. Sömuleiðis banana,
hreinni jógúrt og berjum.
leyfðu barninu að taka þátt
Ekki halda barninu utan við eldhússtörfin. Leyfðu
því að hjálpa til við eldamennskuna endrum og
sinnum. Þannig kynnist það ólíkum hráefnum og
þau hætta að vera eins framandi.
Vertu góð fyrirmynd
Ekki örvænta þó barnið sé lengi að taka við sér. Ef
þú sem foreldri borðar hollan og fjölbreyttan
mat eru allar líkur á því að
barnið muni að endingu
gera það líka.
fjölbreytni sVarið
nokkur heilræði Margir foreldrar eru uggandi vegna frétta af háu arsen-
innihaldi í hrísgrjónavörum sem sænska matvælastofnunin greindi frá í síð-
ustu viku, en í miklu magni getur það verið krabbameinsvaldandi. Hrísgrjón
eru enda nær daglegt brauð hjá mörgum. Að mati sérfræðinga er fjölbreytni
svarið. Það getur hins vegar verið snúið að venja ung börn á fjölbreytt fæði.
lystauk-
andi Settu
matinn í skemmti-
legan búning. Það
vekur yfirleitt
lukku.
litaþema Ung börn eru ekki hrifin af því að blanda
saman grænmeti og öðrum mat. Hafðu það einfalt og
þess vegna litaskipt. Þau kunna yfirleitt að meta það.
maturinn hættir að Vera framandi leyfðu barninu að hjálpa
til við eldamennskuna endrum og sinnum. Þannig kynnist það ólíkum
hráefnum og þau hætta að vera eins framandi.
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-A
3
8
0
1
6
C
3
-A
2
4
4
1
6
C
3
-A
1
0
8
1
6
C
3
-9
F
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K