Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Óli Kr. Ármannsson olikr@frettabladid.is Framúrskarandi tónlistarlíf á Íslandi byggir ekki síst á öflugu starfi tónlistarskólanna. Því er mikið áhyggjuefni að rekstur nokkurra rótgróinna tón- listarskóla í borginni er afar tvísýnn og hefur nú einn skóli þegar sagt upp öllum sínum starfsmönnum. Í mínum huga er eina raunhæfa lausnin sú að ríki og Reykjavíkurborg með atbeina Sambands íslenskra sveitarfélaga taki höndum saman um að leysa bráða- vanda tónlistarskólanna og setjist svo niður með þeim og móti sjálfbært skipulag tónlistarnáms til framtíðar. Slíkt samkomulag um bráðavandann var í burðar- liðnum í vor og fól í sér tillögu í tólf liðum þar sem Reykjavíkurborg var tilbúin að leggja fram 90 milljónir, 30 milljónir áttu að koma úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga með lagabreytingu sem Alþingi samþykkti 30. júní sl. og svo átti ríkið að leggja fram 60 milljónir. Fulltrúar mennta- og menningarmálaráðherra og fjármálaráð- herra áttu aðild að þeirri vinnu sem fæddi af sér sam- komulagsdrögin. Borgaryfirvöld unnu minnisblað um málið um miðjan júní sem átti að leggja fyrir ríkisstjórn í sumar. Því miður hefur ríkisstjórnin ekki staðið við sinn hluta, án þess að skýringar hafi verið gefnar og málið er því í uppnámi. Stjórnir Sambands íslenskra sveitar- félaga og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa ályktað að gerður verði nýr samningur milli ríkis og sveitarfélaga á sama grunni og lagður var 2011 þar sem ríkið fjármagnaði framhaldsnám í hljóðfæraleik og mið- og framhaldsnám í söng. Reykjavíkurborg er tilbúin að leggja fram sinn hluta strax ef ríkið kemur á móti og það má engan tíma missa ef ekki á illa að fara fyrir þeim tónlistarskólum sem verst standa. Nú er mikilvægt að leggja til hliðar í bili áralanga deilu um ábyrgðarskil ríkis og sveitarfélaga enda er sú deila nú til meðferðar í dómskerfinu. Ríkið verður hins vegar að taka þátt í því með sveitarfélögunum að leysa bráðavandann svo tryggja megi áframhaldandi öflugt tónlistarnám í borginni til framtíðar. Stjórnvöld verða að sýna ábyrgð gagnvart þeim nemendum, foreldrum og kennurum sem treysta á farsæla lausn málsins. Leysum bráðavandann Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs Stjórnvöld verða að sýna ábyrgð gagn- vart þeim nemendum, foreldrum og kennurum sem treysta á farsæla lausn málsins. 40.000 fréttaþyrstir notendur Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar sem er og hvenær sem er. Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: Nýlegar fregnir af framgöngu Útlendinga- stofnunar í málefnum hælisleitenda […] eru ekki til þess fallnar að vekja traust á því að stofnunin valdi hlut- verki sínu. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, tók í óundirbúnum fyrirspurna-tíma á Alþingi í gær upp málefni hælisleitenda og innti Ólöfu Nordal innanríkisráðherra svara um beitingu Dyflinnarreglugerðarinnar hér á landi. Hún gengur út á að senda má hælisleitendur sem hingað koma aftur til þess Schengen-lands sem þeir komu frá, því þar beri þeim að leita úrlausnar mála sinna. Vísaði Helgi Hrafn til nýlegs úrskurðar Hæstaréttar um að senda skuli tvo menn til Ítalíu í stað þess að mál þeirra verði tekið upp hér. Þá rifjaði hann upp fyrri umræður um málið á Alþingi í síðasta mánuði þar sem innanríkisráðherra sagðist ekki telja að Ítalía, Grikkland og Ungverjaland væru örugg lönd fyrir hælisleitendur. Úrskurður Hæstaréttar endurspeglaði hins vegar brotalöm í kerfinu. Svör ráðherrans eru fagnaðarefni, en hún upplýsti að hún hefði beint því til Útlendingastofnunar að bíða með að vísa umræddum hælisleitendum á brott til Ítalíu þar til búið væri að leggja „almennilegt mat“ á það hvernig málum er háttað varðandi meðferð þeirra þar og hvort mögulega væri verið að steypa fólki í óöruggt umhverfi. Um leið áréttaði Ólöf að sá möguleiki væri einnig fyrir hendi að taka mál aftur til meðferðar. „Útlendinga- stofnun gerir það,“ sagði hún. Miðað við þau ósköp sem ganga á vegna flótta- mannastraums frá Sýrlandi til Evrópulanda og fregna af framkomu Ítala, Grikkja og Ungverja við flóttafólk, þá má vel taka undir með Helga Hrafni þegar hann hvetur stjórnvöld hér til að taka upp það verklag að hér verði fleiri mál hælisleitenda tekin til efnismeðferðar, fremur en að senda þá aftur út í óvissuna. Um leið verður að segjast að nýlegar fregnir af fram- göngu Útlendingastofnunar í málefnum hælisleitenda, svo sem gagnvart börnum hælisleitenda sem hafa ekki fengið inni í grunnskólum hér á landi nema með harm- kvælum og tilstuðlan fjölmiðla, eru ekki til þess fallnar að vekja traust á því að stofnunin valdi hlutverki sínu. Þannig er frá því greint í Fréttablaðinu í dag að Útlendingastofnun hafi ekki fyrr en í síðustu viku óskað eftir þjónustu frá Hafnarfjarðarbæ vegna hælisleitenda í nýrri móttökustöð sem sett hefur verið upp í Bæjar- hrauni. „Enn bíða tólf börn sem hafa stöðu hælisleitenda þess að hefja skólavist í Hafnarfirði,“ segir í fréttinni. Lappadráttur stofnunarinnar í þessum málum er mannréttindabrot. Eftir höfðinu dansa limirnir og ljóst að breyting þarf að verða á þeim skilaboðum og þeim stuðningi sem Útlendingastofnun þarf til þess að geta sinnt verkefnum sínum sómasamlega. Orð innanríkisráðherra á Alþingi í gær um að hraða þurfi málsmeðferð og leggja sjálf- stætt mat innanlands á mál fólks sem hingað kemur frá umræddum Evrópulöndum vekur vonir um breytingar til batnaðar. Vonarglæta um breytingar Misskilinn enn á ný Sigmundur Davíð sagði á Alþingi í gær að „menn hafi séð sér tækifæri í því að gera sér upp misskilning hér heima en það virðist reyndar vera orðinn fastur liður“, þegar hann var spurður um aðferðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er rétt hjá ráðherranum að hann kemur reglulega fram í fjöl- miðlum og segir þennan og hinn, almenning allan jafnvel, misskilja sig. En flísin í auga þjóðarinnar hlýtur að vera bjálkinn í auga Sig- mundar. Er ekki líklegra að ræður í véfréttastíl – eða fullyrðingar út í bláinn – séu til þess fallnar að fólk misskilji ráðherrann? Hann verður að tala skýrt og segja það sem hann meinar.  Mögulegur sigur, þrátt fyrir tap Það fór eins og marga grunaði að Ólöf Nordal gaf kost á sér til embættis varaformanns Sjálf- stæðisflokksins, en kosið verður 25. október. Nú bíða menn og sjá hvort hún fái mótframboð, en Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður virðist vera líkleg. Svo mikil stemning virðist vera fyrir Ólöfu að varla má búast við að Unnur Brá hefði erindi sem erfiði. Unnur Brá hefur sterka stöðu innan síns kjördæmis. En almennt séð hefur hún ekki notið mikillar athygli. Varaformannskjör gæti breytt því, jafnvel þótt ekki séu möguleikar á sigri, og þannig verið ákjósanlegur kostur. snaeros@frettabladid.is jonhakon@frettabladid.is 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð SKOÐUN 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 1 -F 5 F 0 1 6 C 1 -F 4 B 4 1 6 C 1 -F 3 7 8 1 6 C 1 -F 2 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.