Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 22
Sögulegir bílar
Bugatti Type 35 – Líklega fræg-
asti Bugatti-inn í sínum „Bleu de
France“ lit (franski kappaksturs-
liturinn). Sigursælasti bíll Bu-
gatti sem vann yfir þúsund keppn-
ir á sínum tíma. Hann kom fram á
sjónarsviðið árið 1924, kom alls í
fimm útgáfum og er áætlað að um
400 stykki hafi verið framleidd.
Áætlað verð á nokkrum týpum af
Type 35 er í kringum 3,5 milljónir
Bandaríkjadala í dag.
Bugatti EB110 – Árið 1987 eign-
aðist Ítalinn Romano Artioli Bug-
atti-merkið og lét reisa verksmiðju
í Modena á Ítalíu. Árið 1991 kom
svo út frumburður þeirrar verk-
smiðju sem bar nafnið EB110 og
átti sá bíll algjörlega að feta í fót-
spor forvera sinna. Bíllinn var
byggður úr kol trefjaefnum, var
fjórhjóladrifinn og í miðjum bíln-
um lá 3,5 lítra V12 vél með fjór-
um forþjöppum sem gáfu samtals
560-612 hestöfl, sem þótti gríðar-
lega mikið á þeim tíma. Mörg út-
litsleg einkenni voru fengin beint
frá eldri bílum Bugatti. Ástæðan
fyrir því að EB110 náði ekki þeim
vinsældum sem hann átti skilið er
að aðeins ári eftir að hann kom út
sendi lítið breskt kappakstursfyr-
irtæki frá sér sinn fyrsta bíl fyrir
almenning. Sá bíll hét McLaren F1
og var hraðskreiðasti framleiðslu-
bíll veraldar um nokkurt skeið og
er enn í dag einn frægasti bíll sög-
unnar. EB110 tók þátt í Le Mans
kappakstrinum og náði fimmta
sæti í sínum flokki þrátt fyrir að
hafa ekki náð að ljúka keppni.
Bugatti Veyron – Árið 1998, 45
árum eftir að Bugatti var í eigu
Frakka, keypti Volkswagen Group
merkið. Þess vegna er frekar
hæpið að Bugatti Veyron, sem
kom út árið 2005, sé í raun tal-
inn franskur bíll. Ég ákvað samt
að nefna hann hér því hann fylgir
áfram meginreglum Ettore Bug-
atti auk þess að vera byltingar-
kenndur bíll. Þegar hann kom út
var hann langhraðskreiðasti bíll
heims sem þú gast keyrt á götun-
um. Hann kom með 8 lítra vél sem
var með fremur sérstöku sniði,
en tvær V8 vélar voru splæstar
saman til að mynda W16 vél sem
skilaði rúmum þúsund hestöfl-
um með hjálp fjögurra forþjappna.
Síðan Veyron kom út hefur hann
líklega verið umtalaðasti bíllinn
en hann er í dag kominn til ára
sinna og hlýtur að fara að stytt-
ast í næsta Bugatti frá Volks wagen
Group.
Citroën Traction Avant (1934-
1957) – Fyrsti fjöldaframleiddi
framhjóladrifni bíllinn ásamt því
að vera einn af fyrstu bílunum
með sjálfstæða fjöðrun á öllum
hornum. Einnig var hann einn
af fyrstu bílunum sem ekki voru
byggðir á grind, heldur var styrk-
urinn í yfirbyggingunni sjálfri.
Citroën Rosalie – Í ljósi þess
hversu vinsælar dísilvélar eru í
dag þá varð ég að nefna þennan
bíl. Þrátt fyrir að Þjóðverjinn Ru-
dolf Diesel hafi fengið einkaleyfi á
dísilvélinni árið 1892 þá var fyrsti
fjöldaframleiddi bíllinn sem fáan-
legur var með dísilvél Citroën Ro-
salie sem kom fram á sjónarsvið-
ið árið 1936.
Citroën 2CV – Fyrir seinni heims-
styrjöld hafði Citroën prófað lítinn
hugmyndabíl en þegar stríðið hófst
hætti þróunarvinna við hann.
Loks árið 1948 kom Citroën 2CV
út. Hann var ódýr, lítill og sniðug-
ur bíll hugsaður fyrir bæði bænd-
ur og borgarbúa. Hann reyndist
vera algjör smellur og seldust á
árunum 1948-1990 tæpar 9 millj-
ónir eintaka. 2CV var einstak-
lega vel hannaður. Hann var hugs-
aður til að vera bæði ódýr í kaup-
um og rekstri, eyddi litlu eldsneyti
og auðvelt var að gera við hann
sjálfur. Einnig var hann með mjög
góða fjöðrun með mikilli slaglengd
sem nýttist bændum mjög vel.
Citroën DS – Þegar DS kom út
árið 1955 leit hann allt öðruvísi út
en allir aðrir bílar á þeim tíma.
Í dag er auðvelt að sjá að það er
vegna þess að allir bílar sem á
eftir honum komu voru hannað-
ir með DS í huga. DS breytti út-
liti bíla til frambúðar. Yfirbygging
og útlit bílsins var engin tilviljun
– hún skilaði hagstæðu loftflæði
um bílinn og minni loftmótstöðu.
Einnig var hann fyrsti fjöldafram-
leiddi bíllinn með diskabremsur
sem allir bílar hafa sem staðalbún-
að eftir það. Hann var með hálf-
sjálfskiptan gírkassa með engri
kúplingu og vökva- og gasfjöðr-
un sem hækkaði og lækkaði eftir
kröfum ökumanns og fjaðraði eins
og töfrateppi – eða þannig hefur
honum oft verð lýst. Bíllinn getur
meira að segja ekið á þremur hjól-
um því að fjöðrunin stillir sig sjálf
eftir aðstæðum og ekki þarf að
tjakka bílinn upp til þess að skipta
um dekk.
Norður- Ameríku útaf breyttum
lögum um hönnun bíla. Allt þetta
auk lélegrar stjórnunar Ítalanna
hjá FIAT orsakaði annað gjaldþrot
1974 þegar Peugeot PSA tók yfir.
Síðan þá hafa Peugeot og Citroën
sent frá sér bíla sem deila ýmsum
íhlutum og eru jafnvel nauðalík-
ir. Seinustu áratugi hafa þeir talist
frekar óáreiðanlegir og óvinsælir
bílar en þeir virðast vera að ná sér
upp úr því kviksyndi.
Bugatti vildi bara kappakstursbíla
Ettore Arco Isidoro Bugatti fædd-
ist á Ítalíu árið 1881 en flutti til
annarra landa sem ungur maður
í leit að vinnu. Hann var nýbúinn
með menntun sína í listum þegar
hann fékk vinnu hjá reiðhjólafram-
leiðanda í Frakklandi. Þar prófaði
hann sig áfram með því að setja
vélar í reiðhjól og þríhjól og keppti
síðan á þeim. Árið 1901 hannaði
Bugatti sinn fyrsta bíl sem vann
til verðlauna á alþjóðlegri bílasýn-
ingu í Mílanó. Hann var ráðinn
sem hönnuður til bílaframleiðand-
ans de Dietrich en á þeim tíma var
hann í sífellu að þróa kappaksturs-
bíla sem yfirmönnum hans fannst
hvimleitt svo að Bugatti var lát-
inn taka poka sinn. Á meðan hann
vann hjá de Dietrich á milli 1902
og 1904 hafði hann hannað bílana
Type 3, 4, 6 og 7 en þeir voru gefn-
ir út undir nafni Bugatti og de
Dietrich. Þaðan fór hann til Deutz
í Þýskalandi en aldrei þreifst hann
lengi á hverjum stað og vann best
sjálfur í kjallaranum heima hjá
sér. Árið 1910 stofnaði hann sitt
eigið fyrirtæki. Bugatti hannaði
fjóra kappakstursbíla á árunum
1910-1914, þangað til fyrri heim-
styrjöldin gekk í garð. Hann gerði
sér grein fyrir hvað væri að fara
að gerast í stríðinu svo að hann bar
feiti á vélarnar sínar, gróf þær í
garðinum og flúði til Ítalíu. Eftir
stríð flæddu verkefnin inn á borð
Bug atti og verksmiðja hans hafði
lifað styrjöldina af.
Bugatti vann flestar keppnir
Á milli 1922 og 1940 hannaði Bug-
atti fjórtán mismunandi kappakst-
ursbíla og svipað magn af farþega-
bílum til almenningseignar. Kapp-
akstursbílar hans vöktu mikla
athygli í fjölmiðlum enda litu þeir
öðruvísi út en aðrir kappaksturs-
bílar og skáru sig úr á mörgum
sviðum. Eitthvað virtist Ettore
vera að gera rétt því að bílar hans
unnu kappakstra um alla Evrópu,
svo sem Le Mans, Monte Carlo
o.fl. Hann stofnaði fyrsta eiginlega
kappakstursliðið sem fól í sér að
hann var með sína eigin ökuþóra,
tjald yfir þá og aðra starfsmenn,
rennandi vatn og allt sem þurfti til
að öllum liði vel. Bugatti hannaði
einnig bát, flugvél og lest og náði
meira að segja hraðameti með lest
sinni og bát. Árið 1939 dó sonur
Bugatti og hafði það mikil áhrif á
hann og á sama tíma reið seinni
heimsstyrjöldin yfir og Þjóðverj-
arnir notuðu verksmiðju hans til
að framleiða hernaðarfarartæki,
meðal annars Schwimm wagen.
Undir lokin keypti Ettore sér báta-
höfn undir risastóru snekkjuna
sína þrátt fyrir að vera nánast
kominn á hausinn. Snekkjan fékk
alla hans athygli og náði hann sér
í lungnabólgu á snekkjunni og lést
árið 1947. Eftir andlát hans reyndi
sonur hans að halda fyrirtækinu á
lífi en á endanum þurfti fjölskyld-
an að selja fyrirtækið og var það á
flakki þangað til árið 1998 þegar
Volkswagen Group keypti það og
endurlífgaði með tilkomu Bugatti
Veyron.
Citroën DS bjargaði Charles
de Gaulle
Charles de Gaulle Frakklandsfor-
seti lenti eitt sinn í árás hryðju-
verkamanna er hann var í Citro-
ën DS bíl sínum og höfðu árásar-
mennirnir náð að sprengja öll
dekk bílsins en sökum góðrar
fjöðrunar keyrði bíllinn áfram og
náði að koma forsetanum í skjól.
Eftir þetta atvik vildi de Gaulle
ekki láta keyra sig í neinu öðru en
Citroën DS og var sérstök forseta-
útfærsla framleidd sérstaklega
fyrir hann. Upptalningin er þó
ekki búin: Framljósin voru tengd
við stýrisbúnað bílsins svo að
hann lýsti alltaf inn í beygjurnar.
Sumir partar yfirbyggingarinn-
ar voru úr áli eða jafnvel plasti til
að draga úr þyngd. Öryggisbúnað-
urinn var líka nýstárlegur. Í yfir-
byggingunni voru krumpusvæði
fyrir árekstra, styrktur toppur
þýddi að bíllinn féll ekki saman
þótt hann ylti og vélin var hönnuð
til að færast undir bílinn í árekstri
í stað þess að enda inni í bílnum
og kremja lappir ökumanns og
farþega. Á fyrsta deginum voru
12.000 bílar seldir og var hann í
sölu í 20 ár. Þess má til gamans
geta að DS er borið fram á frönsku
eins og Déesse sem þýðir gyðja.
Peugeot 205 – Þrátt fyrir að til-
tölulega fáir Peugeot bílar hafi
verið byltingarkenndir miðað við
Renault og Citroën þá má ég til
með að nefna einn þeirra. Peugeot
205 kannist þið eflaust við. Hann
fór í framleiðslu árið 1983 og var
í framleiðslu til 1998, en þegar
hann kom út var Peugeot komið á
heljarþröm. Þessi litli framhjóla-
drifni hlaðbakur bjargaði Peu-
geot frá gjaldþroti þegar hann sló
í gegn. Hann var þekktastur fyrir
stórkostlega fjöðrun eins og marg-
ir aðrir franskir bílar en þessi var
svo lítill og sportlegur í akstri og
þó á viðráðanlegu verði.
205 kom út í alls konar út-
færslum og seldust alls 5,3 millj-
ónir eintaka. Þekktasta útfærslan
er þó GTi sem var sportútfærslan.
Sá bíll náði að keppa við sportbíla
sem kostuðu margfalt meira ein-
mitt vegna þess að hann var svo
lítill, léttur og með góða fjöðrun.
Þessir bílar komu Peugeot aftur á
kortið í kappakstri því að 205 var
gríðarlega sigursæll í heimsrallinu
á sínum tíma.
Bíllinn sem kom á eftir, Peugeot
206, var byggður á svipaðri hug-
mynd og varð enn vinsælli.
Renault 4 – Einn mikilvæg-
asti Renault-bíllinn kom út árið
1961 sem svar við 2CV frá Citro-
ën. Yfirmaður Renault á þeim
tíma, Pierre Dreyfus, vildi fá bíl
með flötu gólfi og lóðréttri skott-
hurð en gerði sér ekki grein fyrir
því að eina leiðin til að ná þessu
markmiði var að framleiða fram-
hjóladrifinn bíl. Renault 4 var
fyrsti framdrifsbíllinn frá Ren-
ault og jafnframt fyrsti hlaðbak-
urinn (e. Hatchback) í heiminum.
Hann seldist í yfir átta milljónum
eintaka. Nánast allir Renault-bílar
hafa verið framhjóladrifnir síðan.
Renault Espace – Renault voru
ekki bara fyrstir að hanna hlað-
bakinn. Þeir fundu einnig upp
annan flokk af bílum sem eru
nokkuð vinsælir í dag: Strumpa-
strætóinn sem oft er kallaður fjöl-
notabíll (e. Multi Purpose Vehicle).
Það voru nokkrir aðrir bílar sem
höfðu komið út áratugum áður sem
byggðust á svipaðri grunnhugsun
en Renault Espace var fyrsti fjöl-
notabíllinn eins og við þekkjum í
dag. Espace kom út árið 1984 og
seldist afar illa fyrstu mánuðina,
en svo uppgötvaði fólk hvað það
var sniðugt hve hann líktist sendi-
bíl ásamt því að hafa fleiri sæti.
Kappakstur í Frakklandi
24 heures du Mans eða Le Mans
24 klukkustunda kappaksturinn
er með frægari þolraunum bíla og
ökuþóra. Þar keppa yfirleitt þrír
ökuþórar á hverjum bíl og keyra
allt að 4 klukkustundir í einu. Mjög
margar uppfinningar og mikil
þróun hefur orðið í Le Mans kapp-
akstrinum líkt og í Formúlu 1.
Paris-Dakar kappaksturinn
varð til uppúr hugmynd Thierry
Sabine sem hafði villst í Tén-
éré-eyðimörkinni á bíl og fannst
landslagið kjörið fyrir kappakstur.
Fyrstu árin var alltaf keppt á milli
Parísar í Frakklandi og Dakar í
Senegal en síðar þurfti að breyta
leiðinni út af stríðsástandi sem
ríkir í Afríku. Þess vegna hefur
kappaksturinn verið haldinn í Suð-
ur-Ameríku frá árinu 2009.
Eins og sést í þessari grein hefur
franski bílaiðnaðurinn gefið okkur
alls kyns nýjungar ásamt framúr-
stefnulegri hönnun. Frakkarnir eru
kannski þekktir fyrir skrítna bíla
og það má jafnvel ásaka þá fyrir
að hafa framleitt frekar óspenn-
andi bíla undanfarna tvo áratugi.
Við megum þó ekki gleyma því að
oftar en einu sinni hafa þeir um-
breytt bílaiðnaðinum gjörsamlega
og er ég handviss um að þeir séu
ekki hættir því. Við skulum bara
vona að Renault fari aftur að fram-
leiða Alpine-sportbílana sem ég
náði ekki að tala um í þessari grein,
að Peugeot haldi áfram að gera
góða hluti með 208, arftaka 205, og
að Citroën framleiði aftur bylting-
arkenndan lúxusbíl í sérflokki líkt
og þeir gerðu með DS á sínum tíma.
Þegar þú hugsar um bíla núna, er
Frakkland þá fyrsta landið sem
kemur upp í hugann?
Bugatti Type 35
Bugatti Veyron
Citroën Rosalie
Citroën 2CV
Peugeot 205 GTI
www.visir.is/bilar
Bílar Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Bílar
Fréttablaðið
4 6. október 2015 ÞRIÐJUDAGUR
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-E
2
F
0
1
6
C
2
-E
1
B
4
1
6
C
2
-E
0
7
8
1
6
C
2
-D
F
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K