Fréttablaðið - 06.10.2015, Blaðsíða 41
„Fyrsta bókin mín, Afturgöng-
ur, kom út árið 1995. Eilífðir er
sú ellefta í röðinni og í henni er
handfylli af ljóðum úr hverri bók
sem komið hefur út á ferlinum.
Titillinn Eilífðir? Ég sá fyrir mér að
orðið mundi líta vel út og konan
mín, hún Sigurbjörg Sæmunds-
dóttir, bjó til kápumyndina sem
smellpassar við. Þetta er kápa
sem hægt er að hverfa inn í, maður
skynjar einhverja eilífðarpælingu
í henni.“
Kristian kveðst hafa safnað
ljóðum sem birst höfðu hér og
þar í sérstaka möppu og beðið
fólk sem hann þekkti og treysti
að velja þar 100 bestu ljóðin. „Að
stórum hluta var fólk sammála og
svo endurskoðaði ég valið og skar
ljóðafjöldann niður í 80.“
Það er Félag ljóðaunnenda á
Austurlandi sem gefur Eilífðir út,
enda hefur Kristian búin á Héraði í
tvö ár en er nýfluttur suður. Hann
segir blómlegt starf í ljóðakreðs-
unni fyrir austan og uppbyggilegt
andrúmsloft. „Félagið heldur reglu-
lega fundi og talsvert er um við-
burði og upplestra þar sem öllum
er boðið. Þar mætir fjölbreytilegur
hópur á öllum aldri. Mér finnst
gagnleg reynsla að lesa upp fyrir
fólk með ólíkan bakgrunn og fá
athugasemdir og uppbyggilega
gagnrýni. Það er bara gott að kom-
ast út í sveit þar sem allir heilsast
og bjóða góðan dag, allt er í göngu-
færi og lífið er afslappað.“
gun@frettabladid.is
Handfylli ljóða úr hverri bók
Kristian Guttesen fagnar tuttugu ára skáldaafmæli með nýrri
bók. Eilífðir heitir hún og þar birtist úrval ljóða hans.
„Ég fór að safna saman því sem ég hafði birt í tímritum og bókum og þegar ég fletti þeirri heildarmöppu sá ég að orðið eilífð
kom þar nokkrum sinnum fyrir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Lokaæfing HHHHH
Eftir Svövu Jakobsdóttur
Tjarnarbíó
Háaloftið
Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Leikarar: Þorsteinn Bachmann, Elma
Lísa Gunnarsdóttir og Kristín Péturs-
dóttir
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Búningar: Una Stígsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Sveinn Geirsson
Lýsing: Arnþór Þórsteinsson
Þann 4. október síðastliðinn hefði
Svava Jakobsdóttir orðið 85 ára
og leikfélagið Háaloftið minntist
þessarar merku konu með að
frumsýna eitt af hennar frægustu
leikverkum í Tjarnarbíói á þessum
sama degi. Lokaæfing fjallar um
flótta hjónanna Ara og Betu undan
yfirvofandi og mögulega ímynd-
uðum hörmungum heimsins en
leikverkið gerist í neðanjarðar-
byrgi sem Ari hefur hannað og
útbúið í kjallara þeirra.
Handritið hefur tekið ákveðnum
breytingum en hópurinn vinnur með
uppfærðan texta frá 1987 sem Svava
skrifaði og með leyfi rétthafa gera
þau einnig nokkrar lagfæringar. Með
núverandi heimsmynd, sem iðulega
er skilgreind út frá ótta og utanað-
komandi hættu, í huga er áhugavert
að taka kjarnorkusprengjuna út úr
leikritinu og færa óttann í víðara
samhengi. En útkoman er síður en
svo góð. Í staðinn fyrir háskerpu sam-
tímans verða allar kringumstæður
gruggugar og verkið veikist fyrir
vikið. Lokasetning sýningarinnar
vekur þannig furðu í stað þess að
hamra skilaboðin heim en hún hefur
verið færð frá Betu og sett fram sem
tilkynning í útvarpi, þessi ákvörðun
verður að skrifast á leikstjórann.
Þorsteinn Bachmann og Elma
Lísa Gunnarsdóttir leika lífshræddu
hjónin. Í byrjun sýningar ná þau
vel saman og skapa nokkuð sterkan
grunn fyrir það sem koma skal. En
því miður fara sprungur fljótlega að
koma í ljós en þau aftengjast hvort
öðru of snemma og ná tengingunni
aldrei aftur. Ákveðni og stjórnsemi
Ara birtist helst sem tilfinningaleysi í
leik Þorsteins sem er heldur tilbrigða-
laus. Elma Lísa nálgast Betu frá hinum
pólnum og tekur allan tilfinninga-
skalann. Stundum gengur það upp,
sérstaklega við miðbik sýningar,
en geðshræringin nær hámarki of
snemma. Lilja, píanónemandi Betu,
er leikin af Kristínu Pétursdóttur sem
er fín í sínu litla hlutverki þó að búið
sé að klippa út fallegan kafla úr verk-
inu sem útskýrir samband hennar og
Betu betur.
Sviðsmyndin er í höndum Stígs
Steinþórssonar og er ágæt en gull-
fallega stigann sem leiðir upp á yfir-
borðið ber þar hæst. Hugmyndin
um að byggja búr utan um hjónin er
skemmtileg og einnig að takmarka
gólfplássið til að undirstrika óþægi-
legu nándina sem hjónin koma sér
ekki undan. En að sama skapi liggur
vandamálið í naumhyggjunni því
sviðsmyndin virkar frekar tóm held-
ur en einangrandi og er skringilega
tímalaus.
Una Stígsdóttir sér um búningana
sem virðast spretta úr svipuðu tíma-
leysi og sviðsmyndin. Ari og Beta
klæðast gamaldags íþróttagöllum
og þegar þau skipta í fínni fötin virð-
ast þau vera í eldri kantinum, sem
verður enn augljósara þegar Lilja
mætir á svæðið í töluvert nútímalegri
klæðnaði. Tónlist og hljóðmynd er í
höndum Sveins Geirssonar en hvoru
tveggja er undarlega komið fyrir í
sýningunni, stundum koma hljóðin
að utan en á öðrum stöðum frá rým-
inu sjálfu. Þessi óregla verður frekar
óþægileg, sömuleiðis verður notk-
unin á útvarpinu óskýr.
Leikstjórnina skortir alla dýpt og
áhættu, Tinna skautar yfir átökin í
verkinu í staðinn fyrir að kafa á eftir
þeim. Ari og Beta eru ætíð furðulega
kurteis þó að tilfinningalegt ástand
þeirra fari síversnandi með hræði-
legum afleiðingum. Þegar Lilja birtist
er gerð bókstafleg tilraun til að dýfa
tánni út fyrir rammann sem gengur
ekki upp. Þó að stiginn tilkomumikli
hreinlega blasi við er hann sjaldan
virkjaður og sýningin mallar áfram
án þess að ná suðupunkti.
Áhorfendur verða að trúa tog-
streitu hjónanna og þá sérstaklega á
ákvörðun Betu um að húka í byrginu
með Ara en í staðinn sitjum við uppi
með skilningsleysi í bland við örlítil
leiðindi. Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Kraftlaus sýning sem
líður fyrir útþynnt handrit og ófrum-
lega leikstjórn.
Sprengjan sem aldrei sprakk
Þorsteinn, Elma Lísa og Kristín.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELm
Höfundakvöld
í Norræna húsinu
6. október kl. 19:30
Veitingastaðurinn Aalto bistro selur
veitingar fram að viðburði og í hléi.
12. janúar Kristina Sandberg (SE)
2. febrúar Gaute Heivoll (NO)
1. mars Åsne Seierstad (NO)
5. apríl Susanna Alakoski (SE)
3. maí tilkynnt síðar
1. september Jens Andersen (DK)
6. október Einar Már Guðmundsson (IS)
3. nóvember Camilla Plum (DK)
1. desember Rawdna Carita Eira
(NO/samisk)
Höfundakvöld Norræna hússins 2015–16
Sturlugata 5, 101 Reykjavík
Tel: 5517030, www.nordichouse.is
Norræna húsið
The Nordic House
Einar Már Guðmundsson mun ræða nýja bók sína, Hunda-
dagar, við Pál Valsson. Bókin fjallar um Jörund hundadaga-
kóng, Jón Steingrímsson eldklerk og fleira fólk fyrri alda.
Farið er um víðan völl í tíma og rúmi; sögulegar staðreyndir
eru á sínum stað en andagiftin er aldrei langt undan.
einmana ský
sigldi inn
í blóðrauðan
himininn
og kastaði akkerinu
þar sem sólin
hafði stungið sér
á kaf
Kvöldstund
9 .okt kl 20:00 UPPSELT
16.okt kl 20:00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
6 .nóv kl 20:00
„Ég hef ekki hlegid svona mikið síðan
ég skildi vid manninn minn.”
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
M e N N I N g ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21Þ R I Ð J U D A g U R 6 . o k T ó B e R 2 0 1 5
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-3
1
F
0
1
6
C
3
-3
0
B
4
1
6
C
3
-2
F
7
8
1
6
C
3
-2
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K