Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 41

Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 41
„Fyrsta bókin mín, Afturgöng- ur,  kom út árið 1995.   Eilífðir er sú ellefta  í röðinni  og í henni er handfylli af ljóðum úr hverri bók sem komið hefur út á ferlinum. Titillinn Eilífðir? Ég sá fyrir mér að orðið mundi líta vel út og konan mín, hún Sigurbjörg Sæmunds- dóttir, bjó til kápumyndina sem smellpassar við. Þetta er kápa sem hægt er að hverfa inn í, maður skynjar einhverja eilífðarpælingu í henni.“ Kristian kveðst hafa safnað ljóðum sem birst höfðu hér og þar í sérstaka möppu og beðið fólk sem hann  þekkti og treysti að velja þar 100 bestu ljóðin. „Að stórum hluta var fólk sammála og svo endurskoðaði ég valið og skar ljóðafjöldann niður í 80.“ Það er Félag ljóðaunnenda á Austurlandi sem gefur Eilífðir út, enda hefur Kristian búin á Héraði í tvö ár en er nýfluttur suður. Hann segir blómlegt starf í ljóðakreðs- unni fyrir austan og uppbyggilegt andrúmsloft. „Félagið heldur reglu- lega fundi og talsvert er um við- burði og upplestra þar sem öllum er boðið. Þar mætir fjölbreytilegur hópur á öllum aldri.  Mér finnst gagnleg reynsla að lesa upp fyrir fólk með ólíkan bakgrunn og fá athugasemdir og uppbyggilega gagnrýni.  Það er bara gott að kom- ast út í sveit þar sem allir heilsast og bjóða góðan dag, allt er í göngu- færi og lífið er afslappað.“ gun@frettabladid.is Handfylli ljóða úr hverri bók Kristian Guttesen fagnar tuttugu ára skáldaafmæli með nýrri bók. Eilífðir heitir hún og þar birtist úrval ljóða hans. „Ég fór að safna saman því sem ég hafði birt í tímritum og bókum og þegar ég fletti þeirri heildarmöppu sá ég að orðið eilífð kom þar nokkrum sinnum fyrir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Lokaæfing HHHHH Eftir Svövu Jakobsdóttur Tjarnarbíó Háaloftið Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir Leikarar: Þorsteinn Bachmann, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Kristín Péturs- dóttir Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: Una Stígsdóttir Tónlist og hljóðmynd: Sveinn Geirsson Lýsing: Arnþór Þórsteinsson Þann 4. október síðastliðinn hefði Svava Jakobsdóttir orðið 85 ára og leikfélagið Háaloftið minntist þessarar merku konu með að frumsýna eitt af hennar frægustu leikverkum í Tjarnarbíói á þessum sama degi. Lokaæfing fjallar um flótta hjónanna Ara og Betu undan yfirvofandi og mögulega ímynd- uðum hörmungum heimsins en leikverkið gerist í neðanjarðar- byrgi sem Ari hefur hannað og útbúið í kjallara þeirra. Handritið hefur tekið ákveðnum breytingum en hópurinn vinnur með uppfærðan texta frá 1987 sem Svava skrifaði og með leyfi rétthafa gera þau einnig nokkrar lagfæringar. Með núverandi heimsmynd, sem iðulega er skilgreind út frá ótta og utanað- komandi hættu, í huga er áhugavert að taka kjarnorkusprengjuna út úr leikritinu og færa óttann í víðara samhengi. En útkoman er síður en svo góð. Í staðinn fyrir háskerpu sam- tímans verða allar kringumstæður gruggugar og verkið veikist fyrir vikið. Lokasetning sýningarinnar vekur þannig furðu í stað þess að hamra skilaboðin heim en hún hefur verið færð frá Betu og sett fram sem tilkynning í útvarpi, þessi ákvörðun verður að skrifast á leikstjórann. Þorsteinn Bachmann og Elma Lísa Gunnarsdóttir leika lífshræddu hjónin. Í byrjun sýningar ná þau vel saman og skapa nokkuð sterkan grunn fyrir það sem koma skal. En því miður fara sprungur fljótlega að koma í ljós en þau aftengjast hvort öðru of snemma og ná tengingunni aldrei aftur. Ákveðni og stjórnsemi Ara birtist helst sem tilfinningaleysi í leik Þorsteins sem er heldur tilbrigða- laus. Elma Lísa nálgast Betu frá hinum pólnum og tekur allan tilfinninga- skalann. Stundum gengur það upp, sérstaklega við miðbik sýningar, en geðshræringin nær hámarki of snemma. Lilja, píanónemandi Betu, er leikin af Kristínu Pétursdóttur sem er fín í sínu litla hlutverki þó að búið sé að klippa út fallegan kafla úr verk- inu sem útskýrir samband hennar og Betu betur. Sviðsmyndin er í höndum Stígs Steinþórssonar og er ágæt en gull- fallega stigann sem leiðir upp á yfir- borðið ber þar hæst. Hugmyndin um að byggja búr utan um hjónin er skemmtileg og einnig að takmarka gólfplássið til að undirstrika óþægi- legu nándina sem hjónin koma sér ekki undan. En að sama skapi liggur vandamálið í naumhyggjunni því sviðsmyndin virkar frekar tóm held- ur en einangrandi og er skringilega tímalaus. Una Stígsdóttir sér um búningana sem virðast spretta úr svipuðu tíma- leysi og sviðsmyndin. Ari og Beta klæðast gamaldags íþróttagöllum og þegar þau skipta í fínni fötin virð- ast þau vera í eldri kantinum, sem verður enn augljósara þegar Lilja mætir á svæðið í töluvert nútímalegri klæðnaði. Tónlist og hljóðmynd er í höndum Sveins Geirssonar en hvoru tveggja er undarlega komið fyrir í sýningunni, stundum koma hljóðin að utan en á öðrum stöðum frá rým- inu sjálfu. Þessi óregla verður frekar óþægileg, sömuleiðis verður notk- unin á útvarpinu óskýr. Leikstjórnina skortir alla dýpt og áhættu, Tinna skautar yfir átökin í verkinu í staðinn fyrir að kafa á eftir þeim. Ari og Beta eru ætíð furðulega kurteis þó að tilfinningalegt ástand þeirra fari síversnandi með hræði- legum afleiðingum. Þegar Lilja birtist er gerð bókstafleg tilraun til að dýfa tánni út fyrir rammann sem gengur ekki upp. Þó að stiginn tilkomumikli hreinlega blasi við er hann sjaldan virkjaður og sýningin mallar áfram án þess að ná suðupunkti. Áhorfendur verða að trúa tog- streitu hjónanna og þá sérstaklega á ákvörðun Betu um að húka í byrginu með Ara en í staðinn sitjum við uppi með skilningsleysi í bland við örlítil leiðindi. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Kraftlaus sýning sem líður fyrir útþynnt handrit og ófrum- lega leikstjórn. Sprengjan sem aldrei sprakk Þorsteinn, Elma Lísa og Kristín. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELm Höfundakvöld í Norræna húsinu 6. október kl. 19:30 Veitingastaðurinn Aalto bistro selur veitingar fram að viðburði og í hléi. 12. janúar Kristina Sandberg (SE) 2. febrúar Gaute Heivoll (NO) 1. mars Åsne Seierstad (NO) 5. apríl Susanna Alakoski (SE) 3. maí tilkynnt síðar 1. september Jens Andersen (DK) 6. október Einar Már Guðmundsson (IS) 3. nóvember Camilla Plum (DK) 1. desember Rawdna Carita Eira (NO/samisk) Höfundakvöld Norræna hússins 2015–16 Sturlugata 5, 101 Reykjavík Tel: 5517030, www.nordichouse.is Norræna húsið The Nordic House Einar Már Guðmundsson mun ræða nýja bók sína, Hunda- dagar, við Pál Valsson. Bókin fjallar um Jörund hundadaga- kóng, Jón Steingrímsson eldklerk og fleira fólk fyrri alda. Farið er um víðan völl í tíma og rúmi; sögulegar staðreyndir eru á sínum stað en andagiftin er aldrei langt undan. einmana ský sigldi inn í blóðrauðan himininn og kastaði akkerinu þar sem sólin hafði stungið sér á kaf Kvöldstund 9 .okt kl 20:00 UPPSELT 16.okt kl 20:00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 6 .nóv kl 20:00 „Ég hef ekki hlegid svona mikið síðan ég skildi vid manninn minn.” Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is M e N N I N g ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21Þ R I Ð J U D A g U R 6 . o k T ó B e R 2 0 1 5 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 3 -3 1 F 0 1 6 C 3 -3 0 B 4 1 6 C 3 -2 F 7 8 1 6 C 3 -2 E 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.