Fréttablaðið - 06.10.2015, Qupperneq 4
Kjaramál Undirritun kjarasamn-
inga Starfsgreinasambandsins
(SGS) og Flóabandalagsins við ríkið
sem fara átti fram í gær var frestað
þangað til á morgun að beiðni ríkis-
ins. Heimildir blaðsins herma að
frestunin eigi rót sína í þeirri vinnu
sem á sér stað á vettvangi svonefnds
SALEK-hóps þar sem unnið er að því
að ná „heildstæðri niðurstöðu“ þar
sem undir séu allir samningar ríkis-
ins við stéttarfélög.
Á meðan samningur SGS og Flóans
hefur legið fyrir í rúma viku, er kjara-
deila þriggja stærstu félaga BSRB
strand og búið að boða verkföll sem
að óbreyttu hefjast í lok næstu viku.
Fundur hefur hins vegar verið boð-
aður hjá BSRB félögunum þremur,
SFR – stéttarfélagi í almannaþjón-
ustu, Sjúkraliðafélagi Íslands (SLFÍ)
og LL (Landssambandi lögreglu-
manna), með samninganefnd ríkis-
ins hjá ríkissáttasemjara klukkan
tvö í dag. Þegar samninganefndirnar
funduðu síðast fyrir viku var staða
deilunnar óbreytt og bar enn mikið
í milli.
SALEK-hópurinn (Samstarfsnefnd
um launaupplýsingar og efnahags-
forsendur kjarasamninga) fundaði
á föstudag, auk þess sem heimildir
blaðsins herma að fundað hafi verið
um helgina og í gær. Í hópnum
eiga sæti ríkissáttasemjari og full-
trúar samtaka á vinnumarkaði,
bæði atvinnurekenda og verkalýðs-
hreyfinga.
Meðal þess sem rætt hefur verið
á þessum vettvangi, þar sem að
frumkvæði ríkissáttasemjara hefur
síðustu vikur verið leitað leiða til
að innleiða hér nýtt fyrirkomulag
kjaraviðræðna að norrænni fyrir-
mynd, er hvort samræming lífeyris-
réttinda milli opinbera og almenna-
vinnumarkaðarins geti verið hluti
af „mjúkri lendingu“ yfirstandandi
samningalotu.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR,
segir vonir standa til þess að á fund-
inum í dag leggi ríkið eitthvað meira
til málanna en verið hafi á síðustu
fundum, sér í lagi í ljósi þess að fyrir
liggi samningur ríkisins við Flóann
og SGS. Til þess að ná samningum
við SFR, SLFÍ og LL þurfi hins vegar
að ræða við félögin. Að ná niðurstöðu
sem einnig feli í sér samræmingu líf-
eyrisréttinda sé bæði stórt og flókið
viðfangsefni. „Það er mjög erfitt að
klára þetta ein, tveir og þrír. En það
er ennþá verið að ræða þetta,“ segir
hann. olikr@frettabladid.is
Fundur í dag hjá ríki og BSRB
Draga kann til tíðinda í deilu þriggja stærstu félaga BRSB við ríkið á fundi í dag. Undirritun fyrirliggjandi
samnings við SGS og Flóann var frestað. Nái BSRB-félögin ekki samningi hefjast verkföll í næstu viku.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr. 134.900
m/morgunmat
Netverð á mann á Marcella Royal m.v. 2 í herbergi.
Róm
15. október í 4 nætur
Baráttufundur SFR, SLFÍ og LL um bætt kjör var í Háskólabíói um miðjan september. FRéttaBLaðið/anton
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, vonast eftir útspili frá ríkinu. FRéttaBLaðið/anton
OrKumál Landsvirkjun hyggst
draga til baka boðaðar takmarkanir
á afhendingu rafmagns til viðskipta-
vina í ljósi bættrar miðlunarstöðu
eftir mikið innrennsli í lón í sept-
ember.
Staða í miðlunum fyrirtækisins
í lok ágúst var slæm, sérstaklega í
Hálslóni. Þá tilkynnti Landsvirkjun
viðskiptavinum með mánaðar fyrir-
vara að líklega þyrfti að nýta ákvæði
í samningum og draga úr raforku-
framboði í vetur.
Heildarmiðlunarforði Landsvirkj-
unar stendur nú í rúmum 93 pró-
sentum. Lón á Þjórsársvæði standa
nú í 91 prósenti. Fylling Blöndulóns
er 75 prósent. Fylling Hálslóns er 95
prósent. – shá
Hætta við
skömmtun
Ólíkt fyrri árum fór Hálslón ekki á yfir-
fall í sumar. mynd/LandSviRkJun
mannréttindi Útlendingastofnun
óskaði ekki eftir þjónustu frá Hafn-
arfirði vegna hælisleitenda í nýrri
móttökustöð í Bæjarhrauni þar til
1. október.
Enn bíða tólf börn sem hafa stöðu
hælisleitenda eftir skólavist í Hafn-
arfirði. Fimm börn hófu skólagöngu
í Reykjavík eftir að Útlendinga-
stofnun sá að sér og sótti um vist
fyrir börnin. Stofnunin hafði látið
hjá líða að sækja um skólavist fyrir
börnin þrátt fyrir ítrekaðar áminn-
ingar frá lögfræðingi Rauða krossins
og Umboðsmanni barna.
Haraldur L. Haraldsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, segir að Útlend-
ingastofnun og Hafnar fjarðar bær
hafi ekki samning um þjónustu en
stefnt sé að því að börnin geti hafið
skólagöngu innan fárra daga
„Útlendingastofnun kemur ekki
beinlínis að skólagöngu barnanna,
túlkamál og annar stuðningur
kemur því í hlut skólanna sjálfra.
Stofnunin mun aftur á móti vinna
með skólunum í að koma þessum
atriðum í réttan farveg auk þess að
standa straum af mestum eða öllum
kostnaði við skólagöngu barnanna,“
segir Skúli Á. Sigurðsson, verkefna-
stjóri hælissviðs hjá Útlendinga-
stofnun. – kbg
Tólf ekki enn
komin í skóla
s tj ó r n sýs l a U m b o ð s m a ð u r
Alþingis telur þörf á að Seðlabank-
inn, fjármálaráðherra og Alþingi
taki afstöðu til þess hvort gera eigi
breytingar á fyrirkomulagi athugana
og rannsókna vegna ætlaðra brota
gegn gildandi reglum um gjald-
eyrismál. Þetta kemur fram í bréfi
sem umboðsmaður sendi Bjarna
Benediktssyni fjármálaráðherra, Má
Guðmundssyni seðlabankastjóra
og Þórunni Guðmundsdóttur, for-
manni bankaráðs. Gjaldeyriseftirlit
Seðlabankans hefur eftirlit með því
hvort reglum sé fylgt.
„Ég hef þá fyrst og fremst í huga
að tekin sé afstaða til þess hvort það
fyrirkomulag að fela Seðlabank-
anum að fara með þessi verkefni
samhliða almennri stjórnsýslu við
framkvæmd gjaldeyrishaftanna í
þeim mæli sem raunin er í dag full-
nægi nægjanlega þeim kröfum sem
talið er rétt að viðhafa í skipulagi
stjórnsýslu á aðgreiningu verkefna
sem meðal annars tekur mið af því
að tryggja að fyrir hendi sé nægjan-
leg þekking, reynsla og þjálfun í
úrlausn viðkomandi verkefna. Slíkri
aðgreiningu verkefna er líka ætlað
að treysta grundvöll málefnalegrar
stjórnsýslu,“ segir Tryggvi Gunn-
arsson, umboðsmaður Alþingis, í
bréfinu.
Nýlega var greint frá því að sér-
stakur saksóknari hefði fellt niður
rannsókn á meintu gjaldeyrisbrota-
máli Seðlabanka Íslands eftir þriggja
ára málsmeðferð. Átaldi Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri Samherja,
seðlabankastjóra fyrir meðferðina á
því máli. Umboðsmaður Alþingis
segir að Seðlabankinn þurfi að
huga betur að því við undirbúning
og ákvarðanatöku um athuganir og
rannsóknir, og hugsanlega kæru til
að lögreglu, að sá lagagrundvöllur
sem slíkar ákvarðanatökur byggi á
séu fullnægjandi. Eins og sjá megi af
tilurð og breytingum á lagaákvæð-
um og reglum um gjaldeyrismál er
ljóst að Seðlabanki Íslands hefur
haft verulega aðkomu að undirbún-
ingi þeirra. – jhh
Umboðsmaður gagnrýnir Seðlabanka
Ég hef þá fyrst og
fremst í huga að
tekin sé afstaða til þess hvort
það fyrirkomulag að fela
Seðlabankanum að fara með
þessi verkefni samhliða
almennri stjórnsýslu við
framkvæmd gjaldeyrishaft-
anna í þeim mæli sem raunin
er í dag fullnægi nægjanlega
þeim kröfum
sem talið er
rétt að
viðhafa í
skipulagi
stjórnsýslu á
aðgreiningu verk-
efna.
Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis
6 . O K t ó b e r 2 0 1 5 Þ r i Ð j u d a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-C
0
6
0
1
6
C
2
-B
F
2
4
1
6
C
2
-B
D
E
8
1
6
C
2
-B
C
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K